Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
T
vö ný hótel, annað á Siglu
firði og hitt í Húsafelli, verða
tilbúin í júlí. Samanlagt kost
aði tæpa tvo milljarða króna
að byggja þau. Þau bætast í
hóp fjölda hótela sem áætlað er að rísi
hér á landi á næstunni en DV greindi
frá því fyrir skömmu að hótelum á
höfuðborgarsvæðinu hefði fjölgað
um 80 prósent á síðastliðnum áratug.
Ástæðan fyrir því er stóraukinn ferða
mannastraumur til landsins.
Hótelið á Siglufirði, Sigló Hótel,
verður fullklárað í byrjun júlí. Byrj
að er að taka á móti gestum en her
bergin eru 68 talsins. Þar af eru þrjár
svítur og kostar ein nótt þar í kring
um eitt hundrað þúsund krónur. Úr
svítunum er útsýni yfir smábátahöfn
bæjarins.
500 milljónir fram úr áætlun
Kostnaðurinn við hótelið nam um
1,4 milljörðum króna. Lauslega áætl
uð fjárhagsáætlun í upphafi var um
900 milljónir. „Við vorum ekkert endi
lega að búast við því að þetta myndi
enda í 900 milljónum, enda setjum
við kröfur sem eru kannski meiri en
gengur og gerist,“ segir Sigríður María
Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri
Rauðku ehf., sem starfrækir hótelið.
„Við reynum að leggja mikið upp úr
hljóðeinangrun og reynum að halda
gamaldags útlitinu, þannig að allt líti
vel út og sé notalegt.“
Vonast eftir fjórum stjörnum
Veitingasalur og bar verða á hótelinu
og stefnt er að því það verði fjögurra
stjarna. „Það er ekki búið að taka okk
ur út enn þá en við vonumst eftir því,“
segir Sigríður María.
Í sumar verða um sextíu starfs
menn á hótelinu en á veturna verða
þeir um tuttugu talsins.
Hún segir ferðamannastrauminn
á Siglufirði hafa aukist um í kringum
40 prósent á ári síðustu ár og eftir
spurn eftir fleiri gistimöguleikum
hafa aukist í bænum. Fyrir eru þar
þrjú gistiheimili. „Við sjáum alltaf
fleira fólk sem er að koma fyrr og
er lengur. Mesti straumurinn er á
sumrin en fjöldinn á veturna, sérstak
lega eftir áramót, hefur aukist mikið.“
Hótel Húsafell
hverrar krónu virði
Hótel Húsafell á Vesturlandi verður
opnað 15. júlí. Kostnaðurinn nemur
rúmum 500 milljónum króna en upp
hafleg áætlun gerði ráð fyrir 460 millj
ónum. „Þetta er eitthvað yfir upp
haflegum áætlunum en hótelið er
líka umfram væntingar bæði í útliti
og gæðum. Þetta er hverrar krónur
virði,“ segir Þórður Kristleifsson verk
efnastjóri. Hótelið er í eigu bróður
hans Bergþórs Kristleifssonar og konu
Bergþórs, Hrefnu Sigmarsdóttur.
Íshellirinn hjálpar mikið
Á hótelinu verða 36 herbergi, þar af
sex „deluxe“herbergi. Venjulegu
herbergin eru 22 fermetrar og kostar
nóttin 38.500 krónur en „deluxe“
herbergin eru 28 fermetrar og kostar
nóttin þar um 50.000 krónur. „Við
erum með mjög góða bókunarstöðu
út október,“ segir Kristleifur og bætir
við að einnig sé byrjað að bóka fyrir
næsta ár.
Aðspurður segir hann að opnun ís
hellisins á Langjökli hjálpi mjög mikið
til við bókanirnar. „Það er búin að vera
bullandi traffík frá fyrsta opnunardegi
hjá þeim. Mjög margir sem bóka hjá
okkur fara líka í íshellinn,“ segir hann
en 20 kílómetrar eru upp að jökul
rönd. n
Tvö hótel á tvo milljarða
n Hótel Húsafell og Sigló Hótel bjóða upp á lúxusherbergi n Ein nótt kostar 50 til 100 þúsund krónur
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Hótel Sigló Hót-
elið kostaði um 1,4
milljarða króna.
„Þetta er eitthvað
yfir upphaflegum
áætlunum en hótelið er
líka umfram væntingar
bæði í útliti og gæðum.
Þetta er hverrar krónur
virði.
Þórður Kristleifsson,
verkefnastjóri
Lokafrágangur
Iðnaðarmenn að
störfum við Hótel
Húsafell sem verður
opnað 15. júlí.