Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Page 10
10 Fréttir Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k .
b i l o@b i l o. i s • w w w. b i l o. i s
Skoðaðu heimasíðuna okkar
ww
w.
bi
lo
.is
Ef
þú
er
t í b
ílahugleiðingum?
... með okkur!
FRÁ KR. 48.900
n Erfiðlega gengur að vinna á staflanum n Lögfræðingar ráðnir tímabundið n Eru núna að afgreiða 16. apríl
U
m 11 þúsund skjöl bíða þing-
lýsingar hjá sýslumanns-
embættinu á höfuðborgar-
svæðinu í kjölfar verkfalls
lögfræðinga hjá BHM. Lítið
gengur að vinna á staflanum því fjöl-
margar þinglýsingabeiðnir berast til
viðbótar á degi hverjum. Sviðsstjóri
þinglýsingarsviðs segir starfsmenn
gera allt sem í þeirra valdi stendur til
þess að leysa vandamálið og ráðist
hefur verið í tímabundnar ráðningar
vegna ástandsins. Þó verði að vanda
til verka því mistök séu dýrkeypt.
Framkvæmdastjóri Félags fasteigna-
sala segir að félagið leggi áherslu á
að vinna náið með sýslumannsemb-
ættinu. Almennt hafi þó gengið vel
að leysa úr málum miðað við for-
dæmalaust ástand.
Um 11.000 skjöl
sem bíða afgreiðslu
„ Við komum til vinnu 15. júní og þá
hófst vinna við skjöl sem komu inn 30.
mars. Þetta eru um 11 þúsund skjöl
sem bíða afgreiðslu. Um er að ræða
kaupsamninga, afsöl, veðskuldabréf,
tryggingabréf, skilmálabreytingar,
lóðaleigusamninga, eignaskiptayfir-
lýsingar og húsaleigusamninga. Eins
og er þá erum við að afgreiða skjöl frá
16. apríl en húsaleigusamningarnir
eru komnir aðeins lengra, þar erum
við að afgreiða samninga frá 11.
maí,“ segir Bergþóra Sigmundsdóttir,
sviðsstjóri þinglýsinga- og leyfasviðs
hjá sýslumanninum á höfuðborgar-
svæðinu. „Núna eru að koma inn
yfir 300 skjöl á dag til viðbótar. Fimm
reynslumiklir lögfræðingar geta af-
greitt um 1.500 skjöl á viku, en það er
nokkuð stíf vinna og þá er miðað við
vaktir um helgar og yfirvinnu. Það er
því ekki verið að vinna neitt ógurlega
mikið niður,“ segir Bergþóra.
Að hennar sögn hefur þó emb-
ættið brugðist við aðstæðunum með
ýmsum hætti. „Við erum búin að
ráða inn tvo lögfræðinga tímabund-
ið og munum ráða inn fleiri. Svo
sjá laganemar um að þinglýsa
húsaleigu samningum hjá okkur. Það
eru ekki eins flókin skjöl sem reynsl-
uminna fólk getur vel afgreitt. Það
hefur gengið afar vel,“ segir Bergþóra.
Flókin mál – villuhætta má ekki
vera of mikil
Embættið hefur með ýmsu móti
reynt að koma til móts við fólk sem
bíður. „Á heimasíðunni okkar, syslu-
menn.is, setjum við inn upplýsingar
hvernig vinnunni miðar. Fólk á að
hafa kvittun í höndunum og getur
þar fylgst með því hvenær kemur að
afgreiðslu skjala þess. Við verðum
hins vegar stundum vör við það
að fólk telji að þetta muni leysast á
nokkrum dögum þar sem verkföll-
um er lokið. Þetta er hins vegar ekki
einfaldur stimpill á skjölin. Hvert
mál tekur sinn tíma því það þarf að
fara yfir fjölda laga til að gæta þess að
skjölin séu þinglýsingartæk og hægt
sé að innfæra þau inn í þinglýsinga-
bækur, sú vinna snertir eiginlega alla
flóru hins mannlega lífs. Málin eru
oft á tíðum flókin og það þarf að gæta
þess að allt sé í lagi. Villuhættan má
ekki vera of mikil því mistök geta ver-
ið dýrkeypt,“ segir Bergþóra.
„Við gerum allt sem við getum“
Hún vill taka skýrt fram að það skort-
ir ekki á vilja fólks innan þinglýsinga-
sviðs embættisins til að leysa málið.
„Starfsmenn eru afar viljugir til þess
að vinna yfirvinnu sem og um helg-
ar til þess að hraða ferlinu. Sumar-
leyfi spila eitthvað inn í hjá okkur
en starfsmenn hafa hliðrað þeim
til vegna ástandsins. Við gerum allt
sem við getum,“ segir Bergþóra Sig-
mundsdóttir.
Mál sem tóku 2–4 daga taka allt
að tveimur mánuðum
„Þetta er náttúrulega gríðarlegur
fjöldi af skjölum sem að bíður af-
greiðslu og sýslumannsembættið
vinnur hörðum höndum að því að
vinna þennan bunka niður,“ segir
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri
Félags fasteignasala. „Þetta er að
sjálfsögðu hvimleitt fyrir okkar fé-
lagsmenn því að skjöl sem áður tók
2–4 daga að afgreiða taka nú allt upp
í tvo mánuði.“
Þessi biðtími gerir að verkum að
uppgjör fasteignaviðskiptanna er oft
á tíðum í uppnámi. Félag fasteigna-
sala sendi hins vegar út ákveðna
meginreglu sem félagsmenn gátu
farið eftir: „Við sendum út til okkar
félagsmanna hvernig best væri að
afgreiða þessi mál. Kaupandi ætlaði
kannski að koma með 20 milljóna
króna lán þann 1. maí en svo eru
skjölin föst í þinglýsingu og þá geta
menn ekki borgað. Þessi kaupandi
flytur svo inn í eignina án þess að
borga neitt. Við miðuðum við að 6
prósent vextir kæmu ofan á þessa
greiðslu sem að tefst. Ég veit til þess
að þessari meginreglu hafi verið víða
framfylgt en að sjálfsögðu er hvert
mál einstakt og á þeim geta verið
annars konar vinklar sem þurfa aðrar
lausnir,“ segir Grétar.
Skjölum vísað frá vegna
smávægilegra ágalla
Að sögn Grétars leggur Félag fast-
eignasala mikla áherslu á að vinna
náið með sýslumannsembættinu á
höfuðborgarsvæðinu að lausn vand-
ans. „Við héldum fund með sýslu-
mannsembættinu þar sem farið var
yfir stöðuna til þess að allir aðilar í
ferlinu væru upplýstir. Eitt af því sem
að okkar félagsmenn hafa kvartað
yfir var að verið væri að vísa frá skjöl-
um sem smávægilegur ágalli væri á
sem hamlaði því að þau væru þing-
lýsingartæk. Það gerði að verkum að
skjölin færu svo aftast í röðina sem
þýddi enn fleiri mánuði í tafir og oft
getur það þýtt verulegt fjárhagslegt
tjón fyrir þá sem standa að málinu.
Það er skemmst frá því að segja að
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
„Fimm reynslumiklir
lögfræðingar geta
afgreitt um 1.500 skjöl á
viku, en það er nokkuð
stíf vinna og þá er miðað
við vaktir um helgar og
yfirvinnu. Það er því ekki
verið að vinna neitt ógur
lega mikið niður.
Ellefu þúsund skjöl
bíða þinglýsingar