Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Qupperneq 13
Vikublað 30. júní –2. júlí 2015 Fréttir 13
Á yfir 90% krafna SPB
og vill gjaldþrotaskipti
n Seðlabankinn á nánast allar kröfur á Sparisjóðabankann n Slitastjórnin segir ójafnræði milli kröfuhafa
S
litastjórn Sparisjóðabank-
ans (SPB) telur að „alvar-
legir hagsmunaárekstrar“
séu á milli annars vegar
minni kröfuhafa slitabús-
ins og hins vegar Eignasafns Seðla-
banka Íslands, eiganda meirihluta
allra krafna á hendur SPB, sem
geti hindrað það að hægt sé að ná
samkomulagi um nauðasamning
og með því uppfylla stöðugleikaskil-
yrði stjórnvalda fyrir árslok 2015. Að
öðrum kosti þarf SPB, áður Icebank,
að greiða 39% stöð-
ugleikaskatt af heildar-
eignum búsins en þær
námu ríflega 49 millj-
örðum króna í síðasta
mánuði.
Slitastjórnin,
sem hefur skilað inn
tveimur umsögnum
til efnahags- og við-
skiptanefndar vegna
frumvarps fjármála-
ráðherra um stöðug-
leikaskatt, segir að
eignarhald ESÍ á
stærstum hluta krafna á hendur SPB
skipti „verulegu máli“ þar sem félag-
ið eigi einnig lýsta en ósamþykkta
kröfu á búið að fjárhæð 215 millj-
arðar. Ágreiningur er um kröfuna
og er aðalmeðferð fyrirhuguð í hér-
aðsdómi 26. október næstkomandi.
Dómur gæti legið fyrir síðar á árinu
en verði málinu áfrýjað til Hæsta-
réttar þá mun niðurstaða hins vegar
liggja fyrir á vormánuðum næsta árs.
Slitastjórnin vill lengri frest
Fram kemur í síðari umsögn SPB,
sem var skilað til nefndarinnar síð-
astliðinn föstudag, að ólíkt minni
kröfuhöfum slitabúsins þá skipti það
Eignasafn Seðlabankans ekki sama
máli hvort það takist að ljúka slita-
meðferð með nauðasamningum
eða skattlagningu enda sé félagið í
eigu ríkisins. Frumvarpið geti leitt
til þess að ESÍ geti „komið í veg fyrir
nauðasamning nema leyst verði
áður úr framangreindu ágreinings-
máli með mögulegum samningi er
hentar ESÍ en með tilheyrandi tjóni
fyrir þá kröfuhafa sem ekki hugnast
slík niðurstaða. Slík samningsstaða
veldur klárlega ójafnræði gagnvart
einstökum kröfuhöfum SPB og felur
í sér ólögmæta þvingun gagnvart
viðkomandi.“
Slitastjórn SPB leggur til að
frestur búsins til að ljúka nauða-
samningum verði lengdur um tólf
mánuði í því skyni að forða tjóni
minni kröfuhafa sem getur „numið
verulegum fjárhæðum“ og jafnframt
samsvarandi „fjárhagslegri áhættu
vegna hugsanlegrar
bótaábyrgðar ríkisins“.
Á undanförnum
tveimur mánuðum hefur
ESÍ verið að kaupa upp
kröfur á hendur SPB,
með milligöngu banda-
ríska fjárfestingabank-
ans Morgan Stanley,
með það að markmiði að
eignast allar kröfur sem
eru í eigu erlendra að-
ila. Haukur C. Benedikts-
son, framkvæmdastjóri
Eignasafns Seðlabanka
Íslands, staðfestir í samtali við DV
að það eigi orðið yfir 90% allra sam-
þykktra krafna á hendur Sparisjóða-
bankanum. Aðeins sé beðið eftir því
að slitastjórnin staðfesti framsölin
þegar þau hafa borist henni.
Aðeins innlendir kröfuhafar
Haukur segir að í framhaldinu sé
ekkert sem eigi að standa í vegi fyrir
því að hægt verði að hefja útgreiðslu
eigna úr slitabúinu til kröfuhafa,
hvort sem það verði gert með því
að klára slitameðferð með nauða-
samningum eða gjaldþrotaskiptum.
Ljóst er að við útgreiðslu eigna úr
SPB mun Seðlabankinn fá talsvert
af gjaldeyri í sinn hlut en slitabúið á
um 25 milljarða í lausafé í erlendri
mynt.
Í síðari umsögn SPB er upplýst
að slitastjórnin hafi átt fund hinn
19. júní sl. með öðrum varafor-
manni framkvæmdahóps um losun
fjármagnshafta, þar sem fram hafi
komið hvaða stöðugleikaskilyrði
búið þyrfti að uppfylla með hliðsjón
af eignasafni þess og samsetningu á
kröfuskrá. Samkvæmt þeim skilyrð-
um þá þyrfti SPB að flytja innstæð-
ur sínar í gjaldeyri, sem nema 23,5
milljörðum, yfir í skuldabréf í evrum
þar sem gjalddagi höfuðstóls yrði
ekki fyrr en að sjö árum liðnum frá
útgáfudegi.
Það verður hins vegar að teljast
ólíklegt að það komi til þess að
Sparisjóðabankinn muni nokkurn
tíma þurfa að inna af hendi slíkt
stöðugleikaframlag til stjórnvalda
enda munu kröfuhafar búsins brátt
samanstanda einungis af innlend-
um aðilum. Það hefur verið skýr
afstaða hjá ESÍ, eins og slitastjórn
SPB bendir sjálf á í umsögn sinni,
að slitameðferðinni skuli ljúka með
gjaldþrotameðferð en ekki nauða-
samningi. Sem eigandi nærri allra
krafna á hendur SPB fer Seðla-
bankinn því með tögl og hagldir í
búinu og getur farið fram á það á
kröfuhafafundi að slitum ljúki með
gjaldþroti. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Kröfuhafi SPB Eignasafn
Seðlabankans á orðið yfir
90% allra samþykktra
krafna á hendur Sparisjóða-
bankanum.
Framkvæmdastjóri ESÍ
Haukur C. Benediktsson.
Trúlofunarhringar
- okkar hönnun og smíði
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind