Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Qupperneq 23
10 stærstu laxarnir
Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Föst sölulaun
Sölulaun eigna
yfir 60 milljónum
aðeins 1% með vsk
upp að 60 milljónum
299.900.- með vsk
VantaR – VantaR
Vegna mikillar sölu vantar
allar stærðir eigna á skrá.
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
HÚSAVÍK
AKUREYRI
SAUÐÁRKRÓKUR
ÍSAFJÖRÐUR
REYKJAVÍKKEFLAVÍK HÖFN
EGILSSTAÐIR
AVIS bílaleiga sími 591 4000 – avis.is
VANTAR
ÞIG BÍL?
Sport 19
Football Observatory n Bale og Fabregas ekki á listanum
8 Diego Costa
Aldur: 26 ára
Félag: Chelsea
Með samning til: 2019
Virði: 70–77 milljónir evra
n Costa hefur sýnt það, síðustu tvö keppn-
istímabil, að hann er markaskorari af guðs
náð. Hann skoraði 36 mörk í öllum keppnum
fyrir Atletico Madrid á þarsíðustu leiktíð og
svo 20 deildarmörk fyrir Chelsea í vetur – í
aðeins 26 leikjum. Meiðsli settu á síðustu
leiktíð strik í reikning Costa en hann er
líklegur til að skora 20 deildarmörk á næsta
keppnistímabili einnig.
9 Alexis Sánchez
Aldur: 26 ára
Félag: Arsenal
Með samning til: 2018
Virði: 68–75 milljónir evra
n Sánchez var einn albesti leikmaður ensku
úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni, eftir að
hafa komið frá Barcelona fyrir 35 milljónir
punda. Hann sýndi strax í fyrstu leikjunum
að enski boltinn hentar honum vel og – með
smá liðsauka – getur Arsenal með hann
innanborðs gert atlögu að titlum á komandi
árum. Frammistaða hans hjá Arsenal hefur
verið til þess fallin að auka verðgildi hans
til muna.
10 James
Rodríguez
Aldur: 23 ára
Félag: Real Madrid
Með samning til: 2020
Virði: 68–75 milljónir evra
n Rodríguez stal senunni með landsliði
Kólumbíu á HM í Brasilíu síðastliðið sumar
þegar hann varð markakóngur keppninnar.
Rodriguez skoraði sex mörk á HM. Í kjölfarið
var hann keyptur til Real Madrid þar sem
hann leikur í treyju númer 10, eins og Figo
gerði forðum. Hann skoraði 17 mörk fyrir
Real í vetur og á sjálfsagt enn eftir að bæta
sig nokkuð.
6 Raheem
Sterling
Aldur: 20 ára
Félag: Liverpool
Með samning til: 2017
Virði: 74–81 milljón evra
n Sterling er líklega orðinn of góður fyrir
Liverpool. Félaginu virðist ekki ætla að
takast að halda leikmanninum sem er
ítrekað orðaður við ýmis stórlið, svo sem
eins og Manchester City. Þessi eldfljóti
sóknarmaður er aðeins tvítugur að aldri og
á bjarta framtíð fyrir höndum. Næsta skref
hans á ferlinum gæti orðið örlagaríkt en svo
virðist sem dagaspursmál sé hvenær hann
kveður Anfield.
7 Paul Pogba
Aldur: 22 ára
Félag: Juventus
Með samning til: 2019
Virði: 70–77 milljónir evra
n Þessi stóri og stæðilegi Frakki er fram-
tíðarstjarna í Evrópuboltanum. Hann leikur
sem miðjumaður og þykir frábær á báðum
endum vallarins. Pogba var ungur á mála
hjá Manchester United sem lét hann, árið
2012, fara til Juventus fyrir lítið. Honum er
iðulega líkt við landa sinn – goðsögnina –
Patrick Vieira og var árið 2013 kjörinn bestur
á Evrópumóti U-21-liða.
5 Sergio Agüero
Aldur: 27 ára
Félag: Manchester City
Með samning til: 2019
Virði: 78–86 milljónir evra
n Fáir efast um að Agüero sé einhver allra
besti knattspyrnumaður samtímans.
Meiðsli hafa sett strik í reikninginn en 32
mörk í 40 leikjum á Englandi á síðustu
leiktíð segja allt um það hversu verðmætur
leikmaðurinn er. Hann hefur alls skorað 107
mörk fyrir lið sitt í 162 leikjum og er samn-
ingsbundinn liðinu næstu fjögur árin.