Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.2015, Side 34
30 Fólk Vikublað 30. júní –2. júlí 2015
O-GRILLÍ ferðalagiðÁ svalirnar
Í garðinn
á pallinn
Allt árið
O-Grill 3500 kr. 32.950
O-Grill 1000 kr. 27.950
Borðstandur kr. 9.595
Taska kr. 2.995
VÍKURHVARF 6 • 203 KÓPAVOGUR
SÍMI 557 7720 • WWW.VIKURVERK.IS
Vingjarnlegasta fólk í heimi
n Íslendingaslóðir í Kanada heimsóttar n Þakka kuldanum vinalegt viðmót
K
anadamenn eru nánast yfir
náttúrulega vingjarnlegir
undir venjulegum kringum
stæðum, en þegar mað
ur kemur til Íslendinga
byggðanna í Gimli er samt eins og
vinsemdin stigmagnist enn. Ég er
ekki búinn að sitja lengi fyrir utan
New Iceland Heritage Museum
þegar eldri maður spyr hvort hann
megi setjast við hlið mér. Hann seg
ist heita Óli Óskar Jóhannes Narfa
son, og sé fæddur í langahúsinu á
Víðivöllum hér í Mani toba. Hann
talar að sjálfsögðu lýtalausa íslensku.
Engir Narfar eftir
„Ég hef farið þrisvar til Íslands,“
segir hann. „Eitt sinn settum við frú
in saman hópferð héðan. Jón Árni
Sigfús son frá Mývatni hafði skóla
rútur og keyrði okkur um landið.
Hann keyrði vörubíl og var fræg
ur þar um sveitir.“ Óli spyr að sjálf
sögðu frétta frá Íslandi. „Hvernig er
með Narfana, eru þeir margir eftir?
Ég hitti engan þegar ég var þarna.“ Ég
verð að játa að það séu ekki margir
Narfar eftir á Íslandi samkvæmt
minni bestu vitneskju. „Ég hef heyrt
að þetta sé norskt nafn, þeir hafa lík
lega verið glæpamenn,“ segir hann.
Bláfátækt fólk
Óli er fæddur árið 1925 og man því
tímana tvenna. Saga NýjaÍslands
virðist um margt undarlega kunn
ugleg fyrir okkur frá gamla landinu.
„Þetta var alíslenskt þangað til í
seinni stríði. Þá var settur upp flug
völlur og yfir þúsund manns sem
komu inn frá öðrum stöðum í
Kanada. Fólk fékk vinnu hjá flug
vellinum og stúlkurnar vildu gjarnan
kynnast þeim sem voru í júníformi.
Fram að þeim tíma gat maður alveg
eins talað íslensku eins og ensku á
götunum, en núna verður fólk að
koma frá Íslandi sem ég get rabbað
við.“
Ég spyr Óla hvað hann hafi fengist
við hér í Gimli, en margir af afkom
endum Íslendinganna eru rómaðir
fiskimenn á Winnipeg vatni. „Þetta
var bláfátækt, sumir voru kaupmenn
en fæstir áttu kost á að fara í Háskóla.
Þegar maður var 14–15 ára varð
maður að leita að vinnu. Flestir leit
uðu í vatnið og mér fannst það ágætt,
en það var erfitt að kreista nógu mik
ið fram til að geta eignast fjölskyldu.“
Átti íslenskan mann
Áður en ég kemst að því hvernig
tókst hjá honum Óla (grunar þó að
það hafi tekist ágætlega þar sem að
ég hitti barnabörn hans) kemur eldri
kona og blandar sér í samræðurn
ar, en þó á ensku. „Ég átti íslenskan
eiginmann,“ segir konan sem heit
ir Joyce. „Ég er viss um að hann hafi
verið góður maður,“ segir Óli. „Já, en
hann entist ekki lengi,“ segir Joyce.
„Ég vildi að hann hefði lifað lengur,
því þá hefði ég kunnað meira í mál
inu.“
Það kemur í ljós að eiginmað
ur hennar varð rétt jafn gamall og
blaðamaður er nú, eða 38 ára. „Ég
var eini drengurinn í fjölskyldunni
og mér þótti betra að þiggja þann
kost að taka við búinu,“ segir Óli.
Með ólæstar útidyr
Önnur kona og talsvert yngri kemur
inn. Lisa nefnist hún. Ég spyr hana
hvernig standi á því að allir hérna séu
svo vingjarnlegir. „Ég held að það sé
kuldinn,“ segir hún. „Þá verður hlýj
an að koma að innan.“ Blaðamaður
hefur ferðast víða um norðurslóðir
og er ekki með öllu sannfærður um
að þetta sé raunin.
Haraldur Arnbjörnsson bætist í
hópinn, Íslendingur frá Vestfjörðum
sem hefur búið í Gimli í 28 ár og efn
ast ágætlega sem flugmaður. „Ég
held að það sé bara vegna þess að
fólk hefur ákveðið að vera vingjarn
legt, og síðan breiðir það út frá sér,
frekar en að fólk sé stöðugt að tor
tryggja hvert annað,“ segir Haraldur.
„Ég kýs að treysta fólki og hef alltaf
ólæst,“ segir Joyce. „En fólk sem hef
ur flutt hingað í seinni tíð er farið að
læsa heima hjá sér.“ Ég held af stað
með Haraldi sem hefur boðist til
hýsa mig að bæði vestfirskri og vest
uríslenskri vinsemd. Það er ólæst
heima hjá honum. „Ef fólk vill brjót
ast inn brýst það inn,“ segir hann
stóískur. „En það veldur þá minni
skaða.“ n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Óli og Lorna 17. júní sló
Íslendingafélagið upp veislu,
en Eygló Harðardóttir, félags-
og húsnæðismálaráðherra, var
sérstakur gestur.
Íslenska Vestur-Ís-
lendingarnir hafa margir
hverjir haldið íslenskunni
vel við og tala jafnvel
lýtalausa íslensku.
Læsa ekki Margir íbúa í Gimli læsa ekki að
sér á nóttunni. Þeir treysta náunganum.
Fæddur í Manitoba Óli Óskar Jóhannes
Narfason nærir íslenskar rætur sínar og
hefur þrisvar komið til Íslands.