Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Side 13
Fréttir 13Helgarblað 18.–21. september 2015
BLEKHYLKI
TÓNERAR
PRENTARAR
RITFÖNG
GÓÐ VERÐ
GÓÐ ÞJÓNUSTA
SKÚTUVOGI 11
SÍMI: 553 4000
H E I L S U R Ú M
AFSLÁTTUR
Útsala Rekkjunnar
Síðustu dagar!
Lagersala á
rúmteppum og
handklæðum
Gamli Straumur selur hlut sinn í West Ham
milljarð króna n Svara engu um söluna
„Aðeins að tala um 9 milljarða króna“
Fjölmiðlar greindu í október 2006 frá
sögusögnum þess efnis að fjárfestirinn
Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrrverandi
eigandi Landsbanka Íslands, og félög
tengd honum, hefðu áhuga á að fjármagna
kauptilboð Eggerts Magnússonar, þá
verandi formanns Knattspyrnusambands
Íslands (KSÍ), í West Ham. Eggert hafði
fram að því fullyrt að hann væri einn að
skoða kaup á knattspyrnufélaginu.
Ásgeir Friðgeirsson, fyrrverandi
talsmaður Björgólfsfeðga, sem settist
síðar í stjórn West Ham, þvertók fyrir að
Björgólfur Thor kæmi að fjármögnun
kauptilboðsins. Hann sagði marga aðra
koma til greina enda væri verkefnið „ekki
svo stórt“.
„Við erum jú aðeins að tala um níu
milljarða króna. Það eru að minnsta kosti
þrjátíu Íslendingar sem gætu lagt milljarð
eða svo í þetta dæmi, verkefnið er ekki
eins stórt og menn vilja láta,“ sagði Ásgeir í
samtali við Viðskiptablaðið.
Þann 10. nóvember 2006 staðfesti
Björgólfur Guðmundsson, þá
verandi formaður bankaráðs
Landsbanka Íslands og einn
eigenda bankans, að hann
hygðist fjármagna kauptil
boð Eggerts Magnússonar,
fyrrverandi formanns KSÍ, í
enska knattspyrnufélagið West
Ham United. Eggert sat á þeim tíma
í stjórn StraumsBurðaráss en bankinn
var einn helsti lánardrottinn Hansa,
eignarhaldsfélag Björgólfs, sem keypti
West Ham. Kaupverðið var um 85 millj
ónir punda auk þess sem fallist var á að
taka yfir skuldir upp á 22 milljónir punda.
Fjárfestingin nam því alls 107 milljónum
punda, jafnvirði 14,1 milljarðs króna miðað
við þáverandi gengi, og var fjármögnuð
með sambankaláni íslenskra banka sem
StraumurBurðarás, sem var í meirihluta
eigu Björgólfsfeðga, fór fyrir.
Eftir að kaupin gengu í gegn
varð Eggert starfandi stjórn
arformaður knattspyrnu
félagsins og Björgólfur, sem
var skráður með 95 prósenta
eignarhlut, gegndi í fyrstu
hlutverki heiðursforseta
West Ham. Tilkynnt var um
breytingarnar á yfirstjórn liðsins, og
aðkomu íslensku fjárfestanna, á blaða
mannafundi sem haldinn var á Upton
Park, heimavelli West Ham, í úthverfi
Lundúna.
Erlendir og innlendir fjölmiðlar fjölluðu
mikið um kaupin á West Ham. Eftir að
bresku blöðin höfðu birt fyrirsagnir á
borð við „Innrás Íslendinga í Bretland“
fór athyglin að beinast að slæmu gengi
knattspyrnufélagsins í ensku úrvals
deildinni. Liðið bjargaði sér naumlega frá
falli vorið 2007 og stjórnendurnir voru í
kjölfarið gagnrýndir harðlega fyrir ákveðin
leikmannakaup sem ráðist var í eftir að
Björgólfur og Eggert keyptu sig inn.
Eggert hætti sem stjórnarformaður
West Ham haustið 2007 og seldi 5% hlut
sinn í félaginu í desember það ár. West
Ham var þá að fullu í eigu Björgólfs Guð
mundssonar og var síðar tilkynnt að hann
myndi setja þrjá milljarða inn í félagið til
að styrkja fjárhagsstöðu þess. Björgólfur
varð gjaldþrota í júlí 2009, Hansa fór í
greiðslustöðvun sama ár og West Ham
endaði í höndum kröfuhafa Björgólfs.
Hansa var formlega tekið til gjaldþrota
skipta í maí 2011 en í þeim sama mánuði
féll West Ham úr ensku úrvalsdeildinni.
Bresku fjárfestarnir David Gold og David
Sullivan höfðu ári áður keypt meirihluta í
West Ham af CB Holding.
Eignuðust West Ham haustið 2006
Nóvember
2006
Björgólfur og
Eggert eignast
West Ham United
Maí 2007
Knattspyrnu
félagið bjargar sér
naumlega frá falli
úr efstu deild
September
2007
Eggert hættir sem
stjórnarformaður og
selur síðan 5% hlut
sinn í félaginu.
Júlí 2009
Björgólfur er
úrskurðaður
gjaldþrota og
kröfuhafar
Hansa taka
West Ham yfir.
Júní 2015
ALMC, áður Straum
urBurðarás, losar sig
við síðustu hluti sína í
CB Holding.