Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Side 18
Helgarblað 18.–21. september 201518 Fréttir Erlent V A R M A D Æ L U R 19 dBA *Við ábyrgjumst lægsta eða sama verð og sambærileg varmadæla frá öðrum söluaðilum. Smiðjuvegur 70 - gulgata - 200 Kópavogur Gæði, þjónusta og gott verð. Hámarks orkusparnaður. T I L B O Ð Í S E P T E M B E R September tilboð á loft í loft Verð frá 160.000.-án vsk* * Virðisaukaskattur endurgreiddur vegna kaupa á varmadælu fyrir íbúðarhúsnæði. ** Verð frá 198.400.- með vsk Fórnaði konunni fyrir fallega ljósku á netinu n Rusher féll fyrir tvítugri stúlku frá Kaliforníu n Ekki var allt sem sýndist Þ etta var mér gífurlegt áfall,“ segir Rebecca Lewis, sem vissi vart hvaðan á hana stóð veðrið þegar hún komst að því að verðandi eiginmaður hennar átti í innilegu en rafrænu sambandi við unga, ljóshærða og fallega snót frá Kali­ forníu. Rebecca hafði reyndar tekið eftir því að eiginmannsefnið, Paul Rusher, hafði hagað sér sérkenni­ lega vikurnar á undan. Þau hjónaleysin höfðu trúlofað sig fáum vikum áður en Rebecca komst að hinu sanna, í júlí 2012, og höfðu verið saman í tvö ár, þegar þetta gerðist. Þau unnu bæði í stór­ markaði og kynntust þar árið 2010. Skömmu eftir að Paul bað um hönd Rebeccu, fékk hann vina­ beiðni frá Kristen, ungri og bráð­ myndalegri stúlku sem kvaðst vera frá Kaliforníu. Hann samþykkti vinabeiðnina og hófu að spjalla á netinu. Fyrr en varði rann upp fyrir Paul að hann var kolfallinn fyrir þessari elskulegu stúlku og var farinn að skipuleggja með henni framtíðina á laun. Gripinn glóðvolgur Dag einn fékk Rebecca nóg af undarlegri hegðun mannsins og skráði sig inn á Facebook í hans nafni, þegar hann brá sér á salernið. Við henni blasti gríðarlangur spjall­ þráður – með fjölda ljósmynda. „Ég fékk áfall,“ hefur Daily Mail eftir konunni. „Hann var augljóslega búinn að vera að fela eitthvað og ég vissi að það var önnur í spilinu. Ég komst að því að hann hafði spjall­ að við hana allt að tíu sinnum á dag og í spjallþræðinum voru hundruð mynda af stúlkunni í mismunandi stellingum.“ Rebecca fór yfir málið með Paul sem lofaði að binda endi á sam­ skipti sín og Kristen. Daginn eftir komst hún í símann hans á með­ an hann sat á klósettinu og fann glæný skilaboð þar sem manns­ efnið játaði þessari ungu stúlku ást sína. Henni var nóg boðið, tók saman föggur sínar og fór. Þetta var í október 2012. Hún hafði samband við Kirsten og sagði henni að hún væri búin að eyðileggja allt. Kirsten svaraði að þau væru ástfangin og að hún ætti að láta sig hverfa. Þrátt fyrir allt grunaði Rebeccu að ekki væri allt með felldu. Kristen kvaðst vera dóttir milljarðamærings en vantaði samt fé fyrir flugmiða yfir til Bret­ lands. „Ég elskaði hann ennþá og átti bágt með að trúa þessu öllu saman. Ég vonaðist til að við gætum allavega verið vinir áfram,“ sagði Rebecca. Paul viðurkenndi fyrir Rebeccu að hann saknaði hennar en að hann ætlaði að halda sig við Kristen. Allar tilraunir Rebeccu til að strá fræjum efasemda í kollinn á Paul mistókust. Fann umræðuþráð um svindlara Rebecca dó ekki ráðalaus. Hún kembdi internetið í leit sinni að sannleikanum og fann hann einn góðan veðurdag. Hún fann spjall­ þráð þar sem hundruð einstaklinga vöruðu við svikahrappi sem nýtti sér myndir af lítt þekktri fyrirsætu til að verða sér úti um fé. Kristen reyndist aðeins eitt af fjölmörgum nöfnum sem þessi óprúttni karl­ maður gaf upp. Paul var heltekinn af Kristen og vildi í fyrstu ekki trúa Rebeccu, sem hann hafði beðið nokkrum mánuð­ um áður. Þegar þau fóru betur yfir málið varð hann kindarlegur á svip og viðurkenndi að hann hefði einmitt verið beðinn um peninga fyrir flugmiða og að líklega hefði hann verið að tala við karlkyns svikahrapp allan tímann. Hann hafði þó aldrei millifært fé. Það var svo í mars 2013, um ári eftir að Paul kynntist Kristen, sem þau Rebecca tóku saman á ný, að undangengnum allnokkrum fyrir­ gefningarbeiðnum, loforðum og ástarjátningum. Þau fluttu á nýjan stað og ákváðu að láta reyna á ást sína að nýju. „Ég er ánægð með að þessi þrekraun er að baki. Nú vinn­ um við í því að segja skilið við þetta tímabil og við komum sterkari til baka. Ég hætti aldrei að elska Paul.“ Líður eins og bjána Paul líður eins og bjána. „Ég var upp með mér yfir þeim áhuga sem þessi fallega stúlka sýndi mér. Það var líka indælt að hafa einhvern til að tala við á kvöldin, þegar Rebecca var í vinnunni. Þessum aðila tókst að telja mér trú um að ég væri í óhamingjusömu sambandi. Ég skammast mín en er ánægður að ég lét hann ekki hafa peninga.“ Hann segist vilja óska þess að hafa aldrei skráð sig á Facebook og hefur eytt aðgangi sínum þar. „Nú hef ég feng­ ið annað tækifæri með Rebeccu og ætla aldrei að láta hana renna mér úr greipum aftur.“ n Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Hugguleg snót Kristen sendi Paul ótal myndir af sér. Féll fyrir ungri stúlku Unnustan komst að því að ekki væri allt með felldu. „Ég hætti aldrei að elska Paul Sker upp herör gegn matarsóun Landbúnaðarráðuneyti (USDA) og Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (EPA) hafa ákveðið að skera upp herör gegn óhóflegri matarsóun þar í landi. Stofnanirn­ ar segja að þriðjungur allra mat­ væla þjóðarinnar fari til spillis og magnið sé slíkt að fæða mætti tugi minni og fátækari ríkja, með því sem hafnar í ruslatunnum lands­ manna. Nú sé mál að linni. Í sam­ starfi við einkageirann hafa stofn­ anirnar sett sér það markmið að draga úr matarsóun um sem nem­ ur 133 milljörðum punda á ári og um 50 prósent fyrir árið 2030. Til þess þurfi að herða á að­ gerðum sem þegar eru til staðar auk þess að fræða neytendur um að hætta að sóa matvælum og beina þeim frekar til þeirra sem minna mega sín. „Gefum fólki að borða, ekki landfyllingum,“ segir Gina McCArthy yfirmaður EPA, um átakið. KitKat ekki einstakt Evrópudómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu að sælgætis­ framleiðandinn Nestle geti ekki sótt um að fá útlitið á KitKat­ súkkulaðistykkjunum sem skrá­ sett vörumerki. BBC greinir frá því að dómstóllinn hafi úrskurðað að lögun súkkulaðistykkjanna, sem eru fjórar samfastar súkkulaði­ kexstangir eins og flestir vita, sé ekki nóg til að þekkja það sem KitKat. Það var samkeppnisað­ ilinn Cadbury sem áfrýjaði til­ raunum Nestle til að fá útlitið sem skrásett vörumerki og hafði árangur sem erfiði. Úrskurðurinn þýðir að nú geta aðrir sælgætis­ framleiðendur haldið áfram að framleiða eins súkkulaðistykki, þrátt fyrir að Nestle líti svo á að KitKat hafi í áttatíu ár fest sig í sessi með þetta útlit.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.