Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Blaðsíða 21
Helgarblað 18.–21. september 2015 Umræða 21
Gamli GluGGinn úr
nýi GluGGinn í
svo einfalt
er það!
súðarvoGur 3-5, reykjavík
GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is
s: 5666630 / GluGGaGerdin.is
prins, lést í Mónakó árið 1944, en
hann hafði þá ekki hitt nokkurt
barna sinna frá því fyrir styrjöldina.
Systur Filippusar eru nú allar látnar.
Filippus prins og Páll I. Grikkja-
konungur voru bræðrabörn, en
sonur Páls, Konstantín II., varð
konungur Grikkja við lát föður síns
1964. Konstantín kvæntist sama ár
yngri systur Margrétar Þórhildar
Danadrottningar, Önnu-Maríu.
Anna-María og Konstantín eru því
fjórmenningar eins og sjá má á
meðfylgjandi ættartré. Konstantín
og þær systur Margrét Þórhildur og
Anna-María eru öll fjórmenningar
við Elísabetu Englandsdrottningu.
Englandskonungar
síðustu aldar
Viktoría drottning, móðir Játvarðar
krónprins, lést í hárri elli og sama
gilti um Kristján IX. Elstu synir
þeirra, Játvarður og Friðrik, biðu því
óralengi eftir að verða konungar og
ríktu báðir aðeins um skamma hríð.
Elsti sonur Játvarðar og Alexöndru
Danaprinsessu, Albert Viktor prins,
varð þó aldrei konungur, en hann
lést aðeins 28 ára að aldri úr inflú-
ensu. Talið er að Albert Viktor hafi
verið samkynhneigður, en illa gekk
að koma honum saman við að-
alskonur. Hann trúlofaðist þó Maríu
af Teck örstuttu fyrir andlátið. Mar-
ía giftist yngri bróður hans, Georg,
í staðinn og var drottning Englands
í 26 ár.
Elsti sonur Georgs V. og Maríu
drottningar var Játvarður VIII., en
hann tók við krúnunni að föður sín-
um látnum 1936. Hneykslismálin
í kringum sambúð þeirra Wallis
Simpson eru flestum kunn og ótal
kvikmyndir hafa verið gerðar um
þau skötuhjú. Játvarður afsalaði sér
krúnunni innan fárra mánaða til Al-
berts, bróður síns, sem krýndur var
Georg VI. Hann er faðir Elísabetar
drottningar, sem tók við krúnunni
að föður sínum látnum fyrir bráð-
um 64 árum.
Segir ekki meira af afkomendum
Kristjáns IX. að sinni. n
Kristján IX. Danakonungur
(1818–1906)
Margrét II.
(1940–)
Anna-María
prinsessa
(1946–)
Friðrik VIII. Danakonungur
(1843–1912)
Georg I. Grikkjakonungur
(1845–1913)
Alexandra Englandsdrottning
(1844–1925)
Kristján X. Danakonungur
(1870–1947)
Friðrik IX. Danakonungur
(1899–1972)
Georg V. Englandskonungur
(1865–1936)
Georg VI. Englandskonungur
(1895–1952)
Elísabet II. Englandsdrottning
(1926–)
Konstantín I.
(1868–1923)
Andrés prins
(1882–1944)
Páll I.
(1901–1964)
Filippus prins
(1921–)
Konstantín II.
(1940–)
Sólginn í pönnukökur Filippus fékk jafnan rjómapönnukök-
ur er hann átti viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Hér er hann með
Ragnari Péturssyni matreiðslumanni árið 1992.
Filippus prins Prinsinn sést hér flytja nokkur orð á íslensku af
svölum Alþingishússins sumarið 1964. Ásgeir Ásgeirsson forseti
stendur hjá honum.
Konstantín II. Grikkjakonungur og
Anna-María Danaprinsessa Þau
voru vinsælt myndefni glanstímaritanna á
sjöunda áratugnum.
Albert Viktor prins, elsti sonur Alexöndru Englandsdrottningar Hann lést
langt um aldur fram, en talið er að hann hafi verið samkynhneigður.
Drottningin og forsetinn Elísabet II. og Vigdís Finnbogadóttir heilsa barnaskara á
Fríkirkjuvegi árið 1992.