Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 33
Umræða 25
L
angt er síðan annar eins hóf-
semdarmaður hefur komist í
fremstu víglínu breskra stjórn-
mála og nýkjörinn formað-
ur Verkamannaflokksins, Jeremy
Corbyn. Hann hefur verið sjálfum sér
samkvæmur þótt flokkur hans hafi á
síðasta hálfum öðrum áratug hneigst
til stefnu bæði í innanríkis- og utan-
ríkismálum sem að mínu mati er mjög
öfgafull.
Þannig tók Tony Blair, fyrrver-
andi formaður Verkamannaflokksins
og forsætisráðherra Bretlands, fullan
þátt í blekkingarleik Bush Bandaríkja-
forseta gagnvart umheiminum á sín-
um tíma, um að sannanir lægju fyrir
um að gereyðingarvopn væri að finna
í Írak undir handarjaðri Saddams
Husseins. Þessar fullyrðingar voru
síðan notaðar til að réttlæta viðskipta-
bann á Írak sem, að mati sérfræðinga
Sameinuðu þjóðanna, murkaði líf-
ið úr hálfri milljón írakskra barna að
ógleymdri innrásinni í Írak sem flest-
ir eru nú samdóma um að hafi verið
hrapallegt óráð.
Á móti brotaviljanum
Hið umhugsunarverða er að lygarnar
lágu alltaf meira og minna fyrir enda
voru staðhæfingar eftirlitsmanna SÞ
alla tíð afdráttarlausar. Þeir máttu sín
hins vegar lítils gegn mönnum með
einbeittan brotavilja. Bush er sagður
hafa látið þau orð falla á fyrsta fundi
sínum með ráðuneyti sínu, eftir að
hann var kjörinn forseti Bandaríkj-
anna, árið 2001: „Til stendur að gera
innrás í Írak, finnið fyrir mig ástæð-
urnar, „find me the reasons!““ Síðan
lögðust þeir báðir á bæn, Bush og
Blair, og létu þau boð út ganga að nú
skyldi halda í krossför hinnar 21. ald-
ar. Meintar öfgar Jeremys Corbyns
eru einörð andstaða hans við þessa
árásarstefnu og það sem verra var,
í hugum andstæðinga hans, stuðn-
ingur við friðsamlegar lausnir í Mið-
Austur löndum og almennt í heimin-
um í stað hernaðarstefnu.
Pólitísk stjórnmálafræði
Ég hef hlustað á menn sem koma fram
í nafni „stjórnmálafræðinnar“ í fjöl-
miðlum og útmála Corbyn sem öfga-
mann án þess að þurfa að færa rök
fyrir því í hverju meintar öfgar felist.
Í þá veru talaði til dæmis einn slíkur
fræðingur, varaþingmaður Samfylk-
ingarinnar, í hádegisfréttum Ríkis-
útvarpsins fyrir fáeinum dögum
og bætti því við að í röðum breskra
Íhaldsmanna væri nú án efa mikill
fögnuður að fá andstæðing á borð
við Corbyn og þá vegna þess hve úti á
jaðri hann stæði í pólitíkinni.
Spurningin er hins vegar þessi:
Hvor skyldi standa á jaðrinum Blair
eða Corbyn. Báðir bjóða þeir sig
fram undir merkjum félagshyggju
og jafnaðar. Annar ræðst stórstígur í
einkavæðingu innviða samfélagsins
og grípur til ráðstafana sem auka mis-
skiptingu í landinu og efla áhrif fyrir-
tækja og fjármagns á kostnað almenn-
ings og lýðræðis. Hinn talar og vill
framkvæma í anda jafnaðar og legg-
ur frá fyrsta degi á formannsstóli fram
tillögur í þá veru. Þar nefni ég hús-
næðismálin og tillögur um að færa al-
menningssamgöngur og einkavædda
innviði að nýju til almennings.
Í stað þess að leggja til kröfu um
lágmarkslaun setur hann fram til-
lögu um að bann verði sett við há-
markslaunum og að atvinnurekendur
skuli gera grein fyrir því á opinn og
gagnsæjan hátt á hvaða forsendum
þeir greiði laun, hve margar vinnu-
stundir búi þar að baki. Þar með er
kominn vilji til að gera kjarasamn-
inga að nýju opna og félagslega. Eru
þetta öfgar? Eflaust finnst þeim þetta
vera öfgar sem fitnað hafa á fjósbita
frjálshyggjunnar á undanförnum ára-
tugum! Sjálfum finnst mér þetta vera
fullkomlega réttmæt skynsemi. Og ef
hana væri bara að finna á jaðri stjórn-
málanna þá yrði svo að vera. Ég held
hins vegar að þetta séu sjónarmið
sem eiga fylgi að fagna og muni nú
blómstra þegar þau fá að njóta sín.
Mátti ekki hnýta bindið betur?
Fréttir frá Bretlandi herma að al-
menningi á vinstri kanti stjórnmál-
anna – Jeremy Corbyn hefur aldrei
reynt að vera allra – finnist ferskur
andblær fylgja hinum nýja formanni
Verkamannaflokksins og áherslum
hans á réttlæti. Fyrri valdaöfl flokksins
gera hins vegar allt sem í þeirra valdi
stendur til að bregða fyrir hann fæti.
„Af hverju söng hann ekki þjóð-
sönginn, God Save the Queen, við
athöfn til minningar um fórnarlömb
heimsstyrjaldarinnar seinni? Er það
vegna þess að hann er lýðveldissinni
og andvígur konungdómi? Varla er
hann laglaus. Og af hverju var hann
í svona jakka en ekki hinsegin jakka?
Mátti ekki hnýta bindið betur?“ Svona
er hamast, ekki bara í pressunni og á
netinu heldur einnig af hægri mönn-
um í Verkamannaflokknum sem sjá
á bak fengsælli og stundum fitandi
valdatíð.
Hverjir hlæja?
Og komum við þá aftur að yfirlýs-
ingu ívitnaðs stjórnmálafræðings um
meinta gleði Íhaldsmanna. Það má
vel vera að þeir sem hugsa í flokkum
en ekki hugmyndum og hugsjónum
telji að eitthvert slangur af hægra fylgi
í Verkamannaflokknum haldi nú á
fyrri slóðir. Raunverulegt hugsjóna-
fólk til hægri eins og járnfrúin breska,
Margaret Thatcher, hefði ekki hleg-
ið. Hún fagnaði nefnilega Blair þegar
hann settist á valdastól. Hún sá að þar
með ykjust líkur á að ýmsar hugsjón-
ir hennar yrðu að veruleika, auk þess
sem pólitíkin yrði öll færð í þá átt sem
henni væri að skapi. Það hlægir þau
ekki sem þannig hugsa í stjórnmálum
og standa til hægri, að nýkjörinn for-
maður Verkamannaflokksins breska,
skuli heita Jeremy Corbyn og vera sá
sem hann er og hefur verið. n
Helgarblað 18.–21. september 2015
Þetta var bara
frábært
Elísabet Jökulsdóttir upphafskona útvarpsauglýsinga vegna flóttamanna. – DV
Mýkja hann vel upp með
höggum og klára hann í gólfinu
Gunnar Nelson er byrjaður að plana næsta bardaga. – DV
Ekki manneskjur
heldur reikningsdæmi
Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri sýningarinnar Býr Íslendingur hér. – visir.is
Viltu læra bridge?
Bridgesambandið getur útvegað leiðbeinendur fyrir hópa, fyrirtæki
og skóla. Guðmundur Páll starfrækir Bridgeskólann, þar geta þeir lært
bridge sem eru að stíga sín fyrstu skref í bridge og einnig þeir sem
vilja bæta við kunnáttu sína.
Námskeið í Bridgeskólanum hejast 21. september n.k.
Upplýsingar hjá Guðmundi Páli í síma 898 5427
eða á gparnarson@internet.is.
Eldri borgarar spila alla mánudaga
og fimmtudaga kl. 13.00-17.00
í Síðumúla 37.
Bridgefélög og klúbbar eru starfræktir um allt land – upplýsingar á bridge.is
Bridgesamband Íslands – Síðumúla 37 – 108 Reykjavík – sími 587 9360 – www.bridge.is
Bridge gerir lífið skemmtilegra
Árlegt alþjóðlegt stórmót
Icelandair Reykjavík
Bridgefestival fer fram
28.-31. janúar 2016,
skráning á bridge@bridge.is
Lanslið Íslands hefur náð langt á alþjóðlegum
mótum, Norðurlandameistarar 2013 og aftur 2015
Ungir sem aldnir
spila bridge
Ögmundur Jónasson
alþingismaður
Kjallari
Fulltrúi hófsemi og skynsemi
Jákvæð áhrif
Rík krafa er á að íslensk stjórn-
völd bregðist við vandanum sem
flóttafólk frá Sýrlandi, býr við. Á
meðan grasserar, í litlum hópi,
andúð á áformum um móttöku
flóttamanna og eru þar dregin á
flot rök eins og að ekki sé til at-
vinna fyrir flóttafólk og að hjálpa
eigi þeim borgurum landsins
sem höllum fæti standi áður en
horft sé út fyrir landsteinana.
Samkvæmt Markaðspunktum
greiningardeildar Arion banka
bendir langflest til þess að efna-
hagsleg áhrif móttöku flótta-
manna séu jákvæð. Hér á landi
mun vanta vinnuafl í nánustu
framtíð og gætu flóttamenn sem
hingað koma uppfyllt þá þörf, að
minnsta kosti að hluta.
Sandkorn