Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.09.2015, Page 46
38 Menning Helgarblað 18.–21. september 2015 Kolaportið er umkringt af bílastæðahúsum. Vesturgata · Mjóstræti Fjöldi stæða 106 Ráðhúsið · Tjarnargata 11 Fjöldi stæða 130 Traðarkot · Hverfisgata 20 Fjöldi stæða 270 Kolaportið · Kalkofnsvegur 1 Fjöldi stæða 270 K V IK A Opið alla verslunar- mannahelgina Laugardag, sunnudag og mánudag frá 11-17 Þ egar hún beið eftir að réttað væri yfir henni vegna þátt- töku hennar í mótmælum árið 2009 ákvað hin rétt rúm- lega tvítuga Nazanin Askari að flýja heimaland sitt, Íran. Hún var af vel stæðri fjölskyldu sem gat að- stoðað hana við fjármögnunina og skipulagningu. Hún flúði í gegnum Evrópu á fölsuðum vegabréfum og stefndi til Kanada. Árið 2011 er hún var komin langleiðina, á litla eyju í miðju Atlantshafi, komst hún ekki lengra og sótti um stöðu flóttamanns. Þremur árum síðar stendur Nazanin ein á sviðinu í Tjarnarbíói og segir sögu sína, sögu af pólitískum ofsóknum, sögu af ævin týralegum en þungbærum flótta, af afskiptaleysi og vonbrigðum í nýju heimalandi, af söknuði og heimþrá, en umfram allt von um betri heim. Það er Marta Nor- dal sem leikstýrir nýju leikhúsverki sem ber nafn írönsku flóttakonunnar og skartar henni í aðalhlutverki. Handtekin fyrir mótmæli Í Íran stundaði Nazanin háskólanám í enskum bókmenntum og kenndi ensku. Hún var virk í pólitísku starfi, barðist fyrir kvenréttindum og lýð- ræði. Hún tók þátt í stærstu mótmæl- um í landinu, frá íslömsku byltingunni 1979, í kjölfar forsetakosninganna 2009 þar sem hinn íhaldssami Mahmud Ahmadinejad var sakaður um kosningasvik. Nazanin var í kjöl- farið hótað fangelsis vist. Vitandi hvernig klerkastjórnin hafði tekið á pólitískum aðgerðasinnum í gegnum tíðina sá faðir hennar þann kost vænstan að smygla einkadóttur sinni úr landi áður en lokadómur í máli hennar var kveðinn upp. Hann greiddi fylgdarmanni fyrir að flýja með hana um Tyrkland og í gegnum alla Evrópu á fölsuðum vega- bréfum. Þrátt fyrir að hafa lifað af og loks komist á öruggan stað tók flótt- inn mun meira á en hún hafði búist við. „Ég held ég hafi að mörgu leyti verið mjög dekruð heima þar sem ég er eina stelpan í fjölskyldunni og flótt- inn tók mjög mikið á mig. Hann var mjög erfiður. En maður tekur bara þá ákvörðun að flýja ef maður er í raun- verulegri hættu og er því tilbúinn að samþykkja þessa erfiðu og hættulega ferð. Maður þarf að laumast yfir landamæri, sofa úti, ferðast yfir ár, höf og í gegnum skóga,“ segir Nazanin. Martraðir um flóttann „Lengi vel var mjög erfitt fyrir mig að hugsa um flóttann. Þetta hafði verið svo mikil þjáning að ég var að reyna að gleyma þessu öllu. Ég var með martraðir og þurfti að leita til sál- fræðings. Fyrst þegar ég reyndi að segja frá þessu grét ég og féll í yfir- lið. En smám saman varð ég sterkari og þegar Marta bað mig um að taka þátt í sýningunni ákvað ég að slá til,“ segir hún. Hún stendur ein á sviðinu og segir sögu sína sem Marta Nordal hefur raðað upp á leikhúslegan máta. Þá hefur Helena Stefánsdóttir skapað myndbandsverk sem vinnur með frá- sögn Nazanin, sýnir og skýrir ástandið í Íran og túlkanir á draumum hennar. „Sýningin fjallar um af hverju ég yfirgaf Íran. Ég segi mína sögu, um líf mitt í Íran, um mig sem konu. Þetta fjallar líka um af hverju ég sem einstaklingur og kona ákvað að flýja landið, um flótta, um hversu erfitt það er að flýja, leiðina sem ég fór og um mig sem flóttamann. En þetta fjallar líka um hvernig konur eru kúgaðar Pólitískar ofsóknir og ævintýralegur flótti n íranska flóttakonan nazanin askari segir sögu sína í nýju leikriti eftir Mörtu nordal Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Nazanin Askari Nazanin er írönsk flóttakona. ÞorMAr ViGNir GuNNArssoN „fyrst þegar ég reyndi að segja frá þessu grét ég og féll í yfirlið Metsölulisti eymundsson 9.–15. september 2015 1 Stúlkan í trénuJussi Adler-Olsen 2 Ljósmóðir af guðs náð Katja Kettu 3 Fjarsjóður herra Isakowitz Danny Wattin 4 Það sem ekki drepur mann David Lagerkrantz 5 Secret GardenJohanna Basford 6 Í nótt skaltu deyjaViveca Sten 7 HugarfrelsiHrafnhildur Sigurðardóttir/Unnur Arna Jónsdóttir 8 Enchanted Forest Johanna Basford 9 SmáskammtarAna María Shua 10 Stórbók-Sitji guðs englar Guðrún Helgadóttir Jussi Adler-olsen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.