Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 6
6 Fréttir Helgarblað 9.–12. október 2015
Sigurður formlega gjaldþrota
Skiptastjóri auglýsir eftir kröfum í þrotabúið
S
kiptastjóri hefur verið skipaður
yfir þrotabúi Sigurðar Einars
sonar, fyrrverandi stjórnarfor
manns Kaupþings, sem lýsti
sig gjaldþrota á dögunum. DV greindi
fyrst fjölmiðla frá gjaldþroti Sigurðar
í síðasta mánuði og staðfesti hann í
samtali við DV að hann hefði óskað
eftir gjaldþrotaskiptum.
Á vef Lögbirtingablaðsins kemur
síðan staðfesting á því að Héraðsdóm
ur Reykjavíkur hafi úrskurðað Sigurð
gjaldþrota þann 23. september síð
astliðinn og var Helgi Jóhannesson,
hæstaréttarlögmaður hjá LEX Lög
mannsstofu, skipaður skiptastjóri í
búi Sigurðar. Helgi er einn reyndasti
og virtasti lögmaður landsins en ljóst
er að hans kann að bíða ærið verkefni
að ljúka skiptum á þrotabúi Sigurðar.
Í auglýsingu í Lögbirtingablaðinu
er skorað á alla þá sem telja sig eiga
kröfu í þrotabú stjórnarformannsins
fyrrverandi að lýsa henni innan
tveggja mánaða frá birtingu innköll
unarinnar.
Skiptafundur til að fjalla um skrá
um lýstar kröfur á eignum og réttind
um búsins verður haldinn 6. janúar á
næsta ári. Líkt og fram kom í umfjöll
un DV um gjaldþrot Sigurðar í síð
asta mánuði þá sagði hann í samtali
við blaðið að það ætti ekki að þurfa að
koma neinum á óvart, miðað við það
sem á undan var gengið, að hann lýsti
sig gjaldþrota nú. n
Brim í brotsjó
n Tapaði 2.500 milljónum í fyrra n Dýrkeyptur gengisdómur og erfitt ár
Þ
etta er sjávarútvegurinn,
hann er upp og niður.
Það eru ekki alltaf jól í
þessu,“ segir Guðmundur
Kristjáns son, forstjóri og
eigandi útgerðarfélagsins Brims hf.,
sem tapaði rúmum 2,5 milljörðum
króna í fyrra samkvæmt ársreikn
ingi fyrirtækisins. Munar þar lang
mestu um gengisdóm sem Brim
tapaði fyrir Héraðsdómi Reykja
víkur í fyrra, og Hæstiréttur stað
festi svo í apríl síðastliðnum. Sam
kvæmt ársreikningi Brims eru áhrif
þess gengisdóms metin á rúma 2,7
milljarða króna.
Sættir sig við niðurstöðuna
Í málinu komust dómstólar að þeirri
niðurstöðu að lánasamningur Brims
við Haf Funding ltd. frá 22. júní 2007
að fjárhæð að jafnvirði tveggja millj
arða króna væri samningur um lög
mætt lán í erlendum gjaldmiðlum.
Lánið hafði verið í eigu Haf Funding
frá því Glitnir stofnaði félagið í lok
júlí 2008 í þeim tilgangi að endur
fjármagna bankann. Í samtali við DV
í lok janúar síðastliðinn, eftir að Brim
hafði áfrýjað dómi héraðsdóms, lýsti
Guðmundur óánægju sinni með
niðurstöðuna í héraði enda hefði
hann litið svo á að lánið hefði verið
greitt út í gengistryggðum krónum
og því ólögmætt. Hæstiréttur var því
hins vegar ekki sammála.
„Maður verður bara að sætta sig
við niðurstöðu dómarans. Það er
bara þannig,“ segir Guðmundur að
spurður um dóminn sem hafði svo
afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækis
ins í fyrra.
„Árið í fyrra var að vissu leyti
mjög erfitt hjá okkur, það var mik
il ótíð fyrri hluta ársins. Svo lenda
frystitogarar mjög illa í veiðigjöld
um þannig að það eru nokkrir þættir
sem gerðu að verkum að árið í fyrra
var svona.“
Skuldir ekki áhyggjuefni
Samkvæmt ársreikningi Brims, sem
er níunda stærsta útgerð landsins,
námu rekstrartekjur samstæðunn
ar 8,6 milljörðum króna á árinu en
tapið sem fyrr segir 2,5 milljörðum.
Samkvæmt efnahagsreikningi námu
eignir samstæðunnar 32 milljörðum
í árslok 2014 á móti skuldum upp á
23,5 milljarða króna. Eigið fé í árslok
nam 8,5 milljörðum króna og eigin
fjárhlutfall 26,5 prósentum. Enginn
arður var greiddur til hluthafa vegna
ársins 2014. Aðspurður kveðst Guð
mundur ekki hafa áhyggjur af mikl
um skuldum Brims sem hækkuðu
um 6,8 milljarða milli ára.
Ljóst er að niðursveifla Brims,
þegar litið er til tapsins í fyrra, er um
talsverð samanborið við árið 2013
þegar hagnaður fyrirtækisins nam
757 milljónum króna og arðgreiðslur
til hluthafa námu 750 milljónum. Og
enn meiri samanborið við árið 2012
þegar hagnaðurinn nam 3,7 millj
örðum.
Sligandi veiðigjöld
„Brim er frystitogaraútgerð og ef þú
tekur gengislánadóminn frá þá sérðu
að afkoman er ekki góð. Enda eru all
ir að fjárfesta í ísfiskskipum og land
vinnslu sé litið til fjárfestinga undan
farin ár.“
Guðmundur bendir á að Brim sé
að greiða upp undir 700 milljónir í
veiðigjöld á ári og segir að sum fyrir
tæki, meðal annars Brim, lendi illa í
þeim.
„Sumar fisktegundir lenda illa
í veiðigjöldunum og svo eru sum
fyrirtæki með 50% afslátt af veiði
gjöldum. Þannig að það eru sumir
sem lenda illa í þessu. Ég er ekki að
tala um greinina í heild. Við erum
kannski að greiða þrisvar sinnum
meira í veiðigjöld en sambærileg
fyrir tæki. En það hefur enginn áhuga
á þessu og við höfum ekki komið
þessu í gegn. Það tala allir eins og við
séum að væla. Ég er ekkert að væla,
ég er bara að segja að svona er þetta
og þetta er afleiðingin. Ég er búinn
að benda á þetta trekk í trekk.“
Deilumál vofir yfir
En það eru fleiri óveðursský á lofti
í nánustu framtíð útgerðarfélags
ins en gengisdómurinn örlaga
ríki. Yfir vofir ágreiningur Brims við
skilanefndir föllnu bankanna vegna
uppgjörs á skiptasamningum í kjöl
far bankahrunsins í október 2008.
Ágreiningur er um gildi skipta
samninga og hvort þeir samningar
teljist gildir, og þá á hvaða gengi
samningarnir skuli gerðir upp. Í árs
reikningi Brims segir að mikil óvissa
ríki um lyktir þess máls. Kröfur vegna
skiptasamninganna nema um 2.765
milljónum króna auk dráttarvaxta
frá október 2008.
Aðspurður kveðst Guðmundur
ekki hafa miklar áhyggjur af þessu
sjö ára deilumáli, þar sem 2,7 millj
arðar geta fallið á fyrirtækið ef allt
fer á versta veg. „Við teljum það ekki
raunhæft. Það eru endurskoðend
urnir sem vildu setja þetta inn, en við
erum algjörlega ósammála þessu.“
Guðmundur kveðst síður en svo
svartsýnn á framtíðina þó að síð
asta ár hafi reynst útgerðinni erfitt og
telur að Brim muni takast að sigla í
gegnum brimrótið.
„Já, já. Við erum með nærri tíu
milljarða í eigið fé – við erum ekkert
á hausnum.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
„Það
eru
ekki alltaf
jól í þessu
Ekki alltaf jólin Brim
tapaði 2,5 milljörðum í fyrra.
Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri og eigandi Brims, segir
árið í fyrra hafa verið erfitt og að
afkoman hafi verið slök jafnvel
þótt gengisdómurinn hefði ekki
fallið á fyrirtækið. MynD DV
Þjófur hótar
fjölskyldunni
Innbrotsþjófur sem braust inn
til fjögurra manna fjölskyldu í
Breiðholti á þriðjudagsmorgun
stendur nú í hótunum við
fjölskylduna en hann vill fá til
baka peysu sem hann gleymdi
þegar innbrotið stóð yfir. Bjarni
Kristinn Egilsson, tveggja barna
faðir og fjölskylda hans eru
mjög óttaslegin vegna málsins.
DV greindi frá innbrotinu á
þriðjudaginn en þá vaknaði
fjölskyldan við innbrotsþjóf á
stofugólfinu. Bjarni Kristinn og
eiginkona hans voru bæði heima
ásamt ungum sonum þeirra
þegar innbrotsþjófurinn byrjaði
bókstaflega að tæma íbúðina.
Bjarni Kristinn náði að hrekja
hann í burtu en þjófurinn hafði
ógnað honum með hníf og endaði
á því að kasta múrsteini í gegnum
rúðu í svefnherbergi barnanna.
Þýfið úr innbrotinu fannst vítt
og breitt um Breiðholt. „Ég fékk
textaskilaboð frá þessum manni.
Hann hefur greinilega komist að
símanúmerinu og nafninu mínu
þegar fjallað var um innbrotið á
þriðjudaginn. Hann segist eiga
peysu og úlpu þarna heima. Ég sá
þessi föt eftir innbrotið og kannað
ist ekkert við þau. Núna veit ég að
innbrotsþjófurinn á fötin og hann
vill þau til baka og segist ætla að
mæta heim til okkar aftur,“ seg
ir Bjarni Kristinn en hann hafði í
kjölfarið samband við lögregluna
sem, eftir því sem DV kemst næst,
veit deili á manninum.
„Ég fæ enga hjálp þar. Þeir
sögðu mér bara að mæta honum
og hringja svo. Ég veit ekkert
hvað ég á að gera. Ég þori ekki
að fara aftur upp í íbúð hjá mér
núna þegar hann segist ætla að
mæta þangað. Ég vil fá aðstoð frá
lögreglunni en fæ enga. Hvað á ég
að gera þegar ég mæti honum?“
spyr Bjarni Kristinn.
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu
Ég lifði af