Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Side 14
14 Fréttir Helgarblað 9.–12. október 2015
Símtal frá Íslandi felldi mest
eftirlýsta glæpamann heims
n Kattavinurinn Anna leysti frá skjóðunni n Bulger var uppljóstrari FBI í áratugi
S
ímtal til bandarísku alríkis
lögreglunnar frá íslenskri
fegurðardrottningu felldi
einn þekktasta og hættuleg
asta glæpaforingja heims,
James Joseph „Whitey“ Bulger.
Bulger var umfangsmikill glæpa
foringi í Boston um árabil. Hann
slapp undan handtöku árið 1994
og tókst síðan að fara huldu höfði í
tæp 17 ár. Bróðurpartinn af þessum
tíma var hann í öðru sæti, á eft
ir Osama Bin Laden, á lista banda
rísku alríkis lögreglunnar yfir mest
eftirlýstu glæpamennina og voru
tvær milljónir dollara settar til
höfuðs honum. Fall bin Laden,
flækingskötturinn Tiger og íslensk
fyrirsæta voru áhrifavaldarnir að
handtöku Bulgers.
Höfuðpaur
WinterHill-klíkunnar
„Whitey“ Bulger náði með misk
unnarlausu ofbeldi og útsjónarsemi
að rísa til æðstu metorða í undir
heimum Boston. Hann afplánaði
níu ára fangelsisdóm, meðal annars
í Alcatrazfangelsinu alræmda, fyrir
vopnað rán en fékk reynslulausn
árið 1965 og hófst þá handa við að
vinna sig upp metorðastigann inn
an Winter Hillglæpaklíkunnar. Eft
ir miklar sviptingar innan klíkunn
ar stóð Bulger uppi sem höfuðpaur
hennar árið 1979, ásamt félaga sín
um, Stephen Flemmi.
Hikaði ekki við að beita ofbeldi
Helsta tekjulind Winter Hill
klíkunnar var sú að krefjast verndar
gjalds frá fjölmörgum sem stunduðu
vafasöm viðskipti í Boston, til
dæmis okurlánurum og aðilum
sem stunduðu umfangsmikið veð
málabrask. Ef honum tókst ekki að
ná sínu fram með klækjum þá hik
aði Bulger ekki við að beita ofbeldi.
Hann lét reglulega myrða glæpa
menn úr öðrum klíkum en einnig þá
sem hann taldi sér stafa ógn af inn
an eigin raða. Einnig losaði hann sig
við fólk sem vissi of mikið, til dæmis
stjúpdóttur áðurnefnds Flemmi og
fyrrverandi kærustu hans.
Uppljóstrari FBI
Veldi Bulgers byggðist fyrst og
fremst á því að í áratugi var hann
uppljóstrari bandarísku alríkislög
reglunnar. Gegn mikilvægum upp
lýsingum, sem aðallega snerust um
ítalska mafíu sem var í samkeppni
við Winter Hillklíkuna, þá sá FBI í
gegnum fingur sér varðandi starf
semi hans. Það var ekki fyrr en árið
1994 sem ákveðið var að ráðast til
atlögu við hann og þeim skilaboð
um kom spilltur FBImaður á fram
færi við samstarfsmenn Bulgers. Þá
hófst tæplega sautján ára flótti sem
lauk svo með símtali frá Íslandi.
Bar kennsl á Greig
Bulger var handsamaður, ásamt
ástkonu sinni, Catherine Greig, í
júní 2011 eftir ábendingu frá Önnu
Björnsdóttur. Hann var þá 81 árs
gamall en Greig sextug. Anna bar
kennsl á Greig eftir innslag á CNN
sjónvarpsstöðinni og sama kvöld
tók hún upp símtólið og hringdi hið
afdrifaríka símtal til FBI. Alríkislög
reglan hafði ákveðið að gera átak í
að lýsa eftir Greig því að þeir töldu
að líklegra væri að fólk bæri kennsl
á hana í stað hins aldna Bulgers.
Það reyndist vera rétt mat. Nú hef
ur verið gerð mynd, Black Mass, um
ævi hans og handtökuna, en það er
Johnny Depp sem fer með hlutverk
glæpaforingjans.
Fegurðardrottning,
fyrirsæta og leikkona
Anna er í dag 61 árs gömul. Hún
var kosin fegurðardrottning Íslands
árið 1974 og keppti fyrir hönd lands
og þjóðar í World Universekeppn
inni sama ár. Þar var hún valin vin
sælasta stúlkan. Hún flutti með þá
verandi eiginmanni sínum, Jakobi
Frímanni Magnússyni, til Los Ang
eles þar sem þau lifðu hinu ljúfa
lífi. Anna hafði góðar tekjur af fyrir
sætustörfum, meðal annars fyrir
Vidal Sasoon og Noxzema, auk þess
sem hún reyndi fyrir sér sem leik
kona. Hún fór með lítil hlutverk í
myndum eins og „More American
Graffiti“ og „The Sword and the
Sorcerer“ auk hlutverka í sjónvarps
þáttunum „Remington Steel“ og
„Fantasy Island“. Þar kom hún fram
sem Anna Bjorn.
Spjót Neptúnusar felldi
bin Laden … og Bulger
Í tólf ár var James „Whitey“ Bulger annar á
eftir Osama Bin Laden á lista bandarísku
alríkislögreglunnar yfir eftirsóttustu
glæpamennina. Fyrir utan þessar
2 milljónir dollara sem voru
settar honum til höfuðs var
öllu til kostað til að handsama
Bulger. FBI-fulltrúar voru sendir
út um allan heim til þess að fylgja
eftir vísbendingum sem bárust. „Við
fengum allt sem við báðum um,“ sagði
ónafngreindur FBI-maður.
Þann 2. maí átti sér afdrifaríkur atburður
fyrir Bulger. Osama Bin Laden var felldur
í Abbottabad í Pakistan í aðgerð sem var
kölluð spjót Neptúnusar (e. Operation
Neptune Spear). Áhrifin á Bulger
urðu þau að allt í einu var hann
orðinn efstur á lista FBI og
athyglin beindist að honum,
auk þess sem umtalsvert meira
fjármagn var til staðar en áður.
Ákveðið var að fara í herferð þar sem
áherslan var á myndbirtingar af kærustu
hans, Catherine Greig. Slíka mynd sá Anna
Björnsdóttir og tók upp símtólið.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
James „Whitey“ Bulger Var dæmd-
ur fyrir 19 morð en er talinn hafa fleiri á
samviskunni.
Anna Björnsdóttir Mynd úr bók Jakobs Frí-
manns Magnússonar þar sem hann fjallar um
samband sitt og fyrrverandi eiginkonu sinnar.
Líkleg tilnefning til Óskarsverðlauna
Í vikunni hófust sýningar hérlendis á kvikmyndinni „Black Mass“ eftir leikstjórann Scott Cooper. Þar fer stórleikarinn Johnny Depp með
hlutverk „Whitey“ Bulger og er vel studdur af öflugum aukaleikurum eins og Joel Edgerton, Benedict Cumberbatch og Kevin Bacon.
Myndin hefur fengið gríðargóða dóma og þykir frammistaða Depp líkleg til þess að skila honum tilnefningu til Óskarsverðlauna. Leikar-
inn góðkunni hefur þrisvar fengið tilnefningar til verðlaunanna eftirsóttu án þess að hljóta þau.
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki
Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is
→ Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við
fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.