Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Qupperneq 20
Helgarblað 9.–12. október 2015 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 20 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Ég held að ég hafi ekki verið í jafngóðu formi í áratugi Ég var búin að útbúa laga- lista fyrir jarðarförina Mér finnst stundum eins og heimurinn sé að springa Refsiglaðir dómstólar Ólafur Ólafsson stundar Crossfit á Kvíabryggju. – Viðskiptablaðið Anna Karen Sigurðardóttir reyndi tvisvar að svipta sig lífi. – bleikt.isGuðrún Margrét Guðmundsdóttir þekkir stríð eftir búsetu við Arabaflóa. – DV N ýlegur fíkniefnadómur í Hér­ aðsdómi Reykjavíkur hefur vakið athygli og sætt gagnrýni vegna þess hversu þung refs­ ingin er. Hollensk kona, sem sannað er að var burðardýr, var dæmd í ellefu ára fangelsi og maður sem tók á móti fíkni­ efnunum var dæmdur í fimm ára fang­ elsi. Á meðan ganga höfuðpaurarnir í málinu lausir, frelsinu fegnir og skima eftir nýjum burðar dýrum sem síðan verða, ef upp um glæpinn kemst, látin sæta harðri refsingu. Brynjar Níelsson, hinn skörulegi en um leið umdeildi þingmaður Sjálf­ stæðisflokksins, hefur gagnrýnt þenn­ an nýlega dóm harðlega. Hann sagði í stöðuuppfærslu á Facebook: „Þegar refsiramminn er nýttur í botn gagn­ vart burðardýrum er ekkert svigrúm til hærri refsinga gagnvart eigendum efnanna og skipuleggjendum inn­ flutnings þeirra.“ Rétt er að taka und­ ir þetta sjónarmið Brynjars. Þingmað­ urinn spyr í færslu sinni mikil vægrar spurningar: „Trúa menn enn að þungar refsingar séu réttu viðbrögðin við þeim heilbrigðisvanda sem neysla fíkniefna er?“ Sjálfsagt finnast enn allmargir inn­ an dómskerfisins sem eru sannfærðir um að harðar refsingar séu einmitt rétta leiðin til að stemma stigu við því böli sem fíkniefnaneysla er. Æ fleiri viðurkenna þó að baráttan við fíkni­ efnastríðið sé töpuð, meðal annars vegna þess að sú aðferð að fangelsa burðardýr og láta þau dúsa árum saman í fangelsi, hefur ekki skilað neinu nema troðfullum fangelsum. Þetta er aðferð sem má jafnvel flokka sem mannvonsku, því burðardýrin svokölluðu eru iðulega fólk sem minna má sín, hefur lent í mótlæti, berst við fjárhagserfiðleika og sér fáar leiðir til að sjá sér farborða. Það lætur glepjast af harðsvíruðum glæpamönn­ um sem nýta sér neyð þess. Refsiglað­ ir dómstólar taka síðan við þessu fólki. Fyrr á þessu ári heimsótti Barack Obama fangelsi, fyrstur Bandaríkjafor­ seta, eins og frægt er orðið. Hann ræddi í því sambandi um of harða dóma í fíkniefnamálum og mildaði fangels­ isdóma yfir tugum einstaklinga sem dæmdir höfðu verið fyrir fíkniefnabrot sem þeir höfðu framið án ofbeldis. Bandaríkjaforseti veit að miskunnar­ laus refsistefna í fíkniefnamálum skil­ ar ekki árangri. Fleiri þjóðarleiðtogar mættu hugsa á þann veg. Fíkniefnaváin er harmleikur í lífi of margra. Bæði þeirra sem leiðast út í harða neyslu og aðstandenda sem horfa upp á efnilega manneskju um­ breytast og festast í myrkum heimi fíknarinnar. Þarna skila refsingar engu, gera aðeins illt verra. Þessar manneskjur þurfa hjálp. Hið sama má segja um burðardýrin sem hljóta harða refsingu og eiga í miklum erfið leikum með að fóta sig í sam­ félaginu eftir það. Gleðilegt er að heilbrigðisráðherra, Kristján Þór Júlíusson, er yfirlýstur talsmaður nýrra aðferða við að takast á við fíkniefnavandann. Hann vill draga úr bölinu sem fylgir vímuefnaneyslu og gerir sér grein fyrir að sú refsistefna sem hefur verið fylgt í þessum málum í áratugi hefur ekki skilað árangri. Nú er komið að því að leita nýrra og ár­ angursríkra leiða þar sem refsigleðin er ekki höfð að leiðarljósi. n Fer Árni Páll í bíó? Talsverð eftirvænting ríkir fyrir frumsýningu heimildarmyndar­ innar Jóhanna – síðasta orrustan, 16. október næstkomandi. Myndin fjallar um tímabil Jóhönnu Sigurðardóttur í embætti forsætis­ ráðherra vorið 2013. Líklegt er þó að Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, bíði frumsýn­ ingarinnar með meiri kvíða en eft­ irvæntingu. Í stiklu úr myndinni sem birt var í gær má sjá Jóhönnu skjóta afar föstum skotum á Árna Pál. Þar segir hún hann hafa sagt ósatt um umboð sitt frá þing­ flokki Samfylkingarinnar varðandi þá ákvörðun að leggja frumvarp að nýrri stjórnarskrá til hliðar. Kannski Árni Páll fari bara í leik­ hús næstkomandi föstudag. Hvað verður um Bankasýsluna? Ekki verða settir neinir fjármunir í Bankasýslu ríkisins á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Slíkt er í samræmi við frumvarp Bjarni Benediktssonar frá síðasta vorþingi sem gerði ráð fyrir að stofnunin yrði lögð niður á árinu. Sumir þykjast hins vegar sjá merki þess að Bjarni ætli sér ekki að binda endi á starfsemi Bankasýsl­ unnar. Það vakti þannig athygli þegar Lárus Blöndal, hæstaréttar­ lögmaður og trúnaðarmaður Bjarna, var skipaður stjórnar­ formaður Bankasýslunnar fyrir skemmstu. Ólíklegt þykir að Lárus hafi samþykkt að taka að sér það verkefni í aðeins nokkra mánuði heldur standi hugur hans til þess að koma að vinnu stofnunarinn­ ar við sölu á hlut ríkisins í Lands­ bankanum. NÁTTÚRULEGAR Þ Y K K I N G A T R E F J A R The Science of Thicker Hair™ Fæst í apótekum um land allt og á heimkaup.is E ftir hrun fjármálakerfisins myndaðist sérkennilegt and­ rúmsloft í íslensku samfé­ lagi sem virðist ríkja enn. Ýmsar mikilvægar stofnan­ ir hafa misstigið sig illilega við þær fordæmalausu aðstæður sem hrunið olli. Fjöldinn allur af tilefnislausum kærum barst til sérstaks saksóknara frá stofnunum sem áttu að fara með eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Nú síðast fór Seðlabanki Íslands í um­ fangsmikla rannsókn á Samherja vegna gruns um misferli í gjaldeyris­ viðskiptum. Þar var beitt mjög þung­ bærum þvingunaraðgerðum við rannsókn málsins. Seðlabankinn hefur skyldu til að hafa eftirlit með og rannsaka hvort farið sé eftir lögum um gjaldeyris­ viðskipti. Við rannsóknir og eftirlit þarf bankinn, eins og önnur stjórn­ völd, að gæta meðalhófs. Er það sér­ staklega mikilvægt þegar heimilt er að beita þvingunarúrræðum við rannsókn mála. Við þær aðstæður er það lágmarkskrafa að refsiheim­ ildin sé skýr um það brot sem sak­ borningur er grunaður um. Miðað við niðurstöðu ákæruvaldsins skorti talsvert upp á að svo væri. Jafnframt verður ekki annað lesið úr niður­ stöðu ákæruvaldsins en að rann­ sókn bankans hafi verið eitt alls­ herjar fúsk. Allt þetta klúður hefur auðvitað valdið félaginu tjóni og að auki skaðað einstaklinga sem þar starfa. Neyðarlögin undantekning Nú hafa einhverjir þær hugmyndir að undanþiggja starfsmenn Seðlabank­ ans bótaábyrgð – án þess að nokkurn tímann hafi reynt á slíka ábyrgð. Slíkt fer gegn almennum meginreglum skaðabótaréttar og einnig gegn al­ mennri jafnræðisreglu. Starfsmenn Seðlabankans væru komnir með sér­ kjör umfram aðra. Starfsmenn Seðlabankans fara með mikið vald og gáleysisleg með­ ferð þess valds getur hæglega valdið tjóni. Ef hefðbundin skaðabóta­ ábyrgð væri afnumin myndi það draga úr aðhaldi að starfsmönnum Seðlabankans og þeim varnaðar­ áhrifum sem skaðabótareglum er al­ mennt ætlað að hafa. Í þessu sambandi þýðir ekki fyrir starfsmenn Seðlabankans að vísa til neyðarlaganna sem fordæmis. Öllum var ljóst þegar þau ákvæði voru sett að um undantekningu var að ræða vegna fordæmalausra að­ stæðna. Ljóst var að grípa þurfti til umfangsmikilla aðgerða sem vörðuðu mikla fjárhagslega hags­ muni á skömmum tíma og með tak­ mörkuðum undirbúningi. Sem bet­ ur fer tókust þær aðgerðir vel. Ef eitthvað er, þá er ljóst að að­ hald með starfsmönnum stjórn­ sýslunnar vegna misbeitingar valds er ekki nægilega virkt. Sem dæmi má nefna að í nýlegu hefti Úlfljóts, tímarits laganema við Háskóla Ís­ lands, er fjallað um lagareglur sem gilda um töku þjónustugjalda. Þar kemur fram að slíkar reglur hafa oft verið brotnar og einnig að slík brot geti bæði varðað refsiá­ byrgð og starfsmannaréttarlegum viðurlögum. Engin dæmi eru hins vegar um að slíku hafi verið beitt vegna ólögmætra þjónustugjalda. Þá kann að vera ástæða til að kanna hvernig ýmsar stofnanir hafa farið með vald eftir bankahrun með hlið­ sjón af nýlegu áliti umboðsmanns Alþingis og bók Eggerts Skúlasonar „Andersen skjölin“. Endurskoða þarf vald og rannsóknarheimildir Vald er mjög vandmeðfarið. Þess vegna er nauðsynlegt að þeir gæti sín vel sem með vald fara. Við getum einfaldlega ekki haft fólk undir saka­ málarannsókn í allt að sjö ár og jafn­ vel lengur og beitt ýmsum verulega íþyngjandi aðgerðum við rannsókn­ ina og látið svo sem ekkert sé þegar í ljós kemur að ekki stóð steinn yfir steini. Frá hruni hafa hund­ ruð manna tapað háum fjárhæðum vegna ásakana hinna ýmsu stofnana og sumir jafnvel glatað aleigu sinni við að verjast við rannsókn mál­ anna. Þar að auki er litið á sakborn­ inga sem holdsveika og geislavirka sem hvergi má ráða í vinnu. Þetta ástand verður ekki við unað lengur og endurskoða þarf vald og rannsóknarheimildir hinna ýmsu stofnana og tryggja virkt aðhald með starfsmönnum sem með valdið fara. Það verður ekki gert með að firra þá skaðabótaábyrgð á saknæmri og ólögmætri háttsemi. n Ábyrgð eða skaðleysi? Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins Aðsent „Þar að auki er litið á sakborninga sem holdsveika og geisla- virka sem hvergi má ráða í vinnu. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.