Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Qupperneq 30
Helgarblað 9.–12. október 20156 Jólahlaðborð - Kynningarblað
Jólahlaðborð, gisting og upp-
lyfting í hjarta Suðurlands
Minniborgir bjóða bæði upp á gistingu og akstur með jólahlaðborðinu
M
inniborgir eru staðsett-
ar rétt hjá Borg í Gríms-
nesi og samanstanda af
veitingastað og 22 bú-
stöðum. Hér er kjörin
aðstaða fyrir hópa að lyfta sér upp,
gæða sér á kræsingum af jólahlað-
borði og gista í fallegu umhverfi,
auk þess sem Minniborgir bjóða
upp á akstur til og frá Reykjavík.
„Hér höfum við bæði gistiað-
stöðu veitingar. Fólk getur verið
hérna og haft það kósí, tekið jafn-
vel langa helgi ef því er að skipta,“
segir Einar Þorsteinsson, eigandi
Minniborga. Segir hann að jafnt
einstaklingar sem hópar geri sér
glaðan dag á Minniborgum, stað-
urinn bæði tilvalinn fyrir hjón eða
fjölskyldur til að slaka á og fyrir-
tækjahópa að hrista sig saman og
efla liðsandann.
„Bústaðirnir mynda tvö þorp
og síðan eru átta stök hús. Inni í
hvoru þorpi er samkomuhús sem
rúmar um 40 manns og þau getur
fólk nýtt sér eftir jólahlaðborðið,“
segir Einar.
Jafnframt er
í boði akstur til
og frá Reykja-
vík gegn vægu
gjaldi en Einar
hefur til umráða
53 manna rútu.
Gistipláss er fyrir
100 manns og
sæti eru fyrir 90
manns í veitinga-
salnum.
Jólahlað-
borðsmatseðill-
inn inniheldur
til dæmis þrjár
tegundir af síld, grafinn lax, reykt-
an silung, sveitapaté og hangikjöt í
köldum réttum. Heitir réttir eru til
dæmis gljáð jólaskinka, kalkúna-
bringa og lambalæri.
Nánari upplýsingar er að finna
á vefnum minniborgir.is Fyrir-
spurnir og pantanir fara á netfang-
ið booking@minniborgir.is eða í
síma 863 3592. n
Minniborgir kjörin aðstaða fyrir hópa að lyfta sér upp, gæða sér á kræsingum af jólahlaðborði og gista í fallegu umhverfi kjörin aðstaða fyrir hópa að lyfta sér upp, gæða sér á kræsingum af jólahlaðborði og gista í fallegu umhverfi.