Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 38
Helgarblað 9.–12. október 201530 Sport Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi. Verðum líklega elstir í EM? Hár aldur landsliðsins í knattspyrnu vekur athygli. Áhugavert er að enginn leikmaður í núverandi varnarlínu Íslands verður undir þrítugu þegar flautað verður til leiks í Frakklandi. Hannes 32 ára, Birkir Már 32, Ragnar 30, Kári 34 og Ari 30. Ef hópurinn verður svipaður í Frakklandi og hann er núna verður meðalald- ur liðsins 29 ár. En það er langt í mót og nægur tími fyrir leik- menn til að spila sig inn í landsliðið og fyrir þá sem nú eru í liðinu til að spila sig út. n Átta ár frá fótboltahruni mánudagur 15. október 200712 Sport DV Eiður smári guðjohnsEn „Það er ömurlegt að tapa, alltaf. Sérstaklega á þennan hátt og á móti svona liði, sem í sjálfu sér er ekkert sérstakt. Þeir litu ágætlega út af því að við létum þá líta ágætlega út. Við vorum ekkert viðbúnir neinu. Við eigum ekkert að láta þá koma okkur á óvart, við erum á heimavelli og sjálfstraustið á að vera í fínu lagi eftir síðustu tvo leiki. Við byrjuðum frábærlega og síðan gefum við eftir á einhvern óskiljanlegan hátt. Við þurfum að horfa á leikinn til að finna einhver svör við því. Við gáfum þeim alltof mikið svæði. Það var allt of mikið svæði á milli varnar og miðju og miðju og sóknar. Ég held að það hafi ekki verið nein værukærð. Við höfum aldrei haft efni á því. áherslurnar hjá okkur voru bara engan veginn í takt og þegar liðið er ekki samstillt gerast svona hlutir. Í landsleikjum er þér refsað fyrir minnstu mistök. Ég held reyndar að Lettar hafi skorað úr öllum færum gegn okkur í þessari keppni. Það þýðir ekkert að kvarta yfir því. tvö mörk úr horni, sem á nú að vera það sterkasta í okkar varnarleik, að verjast í föstu leikatriði. Ég reyndi að gera allt sem ég gat. Ég þurfti oft á tíðum smá tíma til að jafna mig ef ég fór eitthvað af stað og gerði eitthvað. Þetta voru mínar fyrstu 90 mínútur síðan ég veit ekki hvenær. auðvitað er ég ánægður með að skora tvö mörk en þessi mörk fjúka bara út í vindinn og það sem situr eftir er að við töpuðum 4–2. auðvitað er maður stoltur af þessu (markametinu) en það er smá skuggi yfir metinu í dag, þó mað- ur eigi eftir að njóta þess í framtíðinni. Ég hefði gefið þetta markamet upp á bátinn fyrir önnur þrjú stig. Það er mun mikilvægara fyrir liðið að fá þrjú stig heldur en að ég bæti markametið. Ég sagði alltaf að ég myndi bæta markametið.“ AlEksAndrs stArkovs, þjálfAri lEttlAnds „Við erum með fjóra mikilvæga menn meidda. en þeir leikmenn sem komu í stað þeirra spiluðu vel. Leikurinn var góður og sigurinn var frábær. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa. guðjohnsen skoraði tvö góð mörk og í okkar liði vil ég hrósa sérstaklega markverðinum Vanins, varnarmannin- um gorkss og miðjumanninum Laizans, auk Verpakovskis sem skoraði tvö lagleg mörk. Það er því miður ekkert sem við höfum að keppa að í þessari undankeppni og um miðbik þessarar undankeppni skiptum við um þjálfara. nú er aðalmarkmið okkar að byggja upp nýtt lið og ég er mjög ánægður með að við skulum vera á réttri leið. Það er sennilega tilviljun að okkur gengur svona vel með Ísland. Við fengum góð tækifæri til að skora gegn dönum og Spánverjum.“ árni gautur Arason átti slæman dag og hefði getað gert betur í sumum marka Letta. kristján Örn sigurðsson átti stóran þátt í að minnsta kosti tveimur mörkum Letta. Ívar ingimarsson eins góður og Ívar var í síðustu leikjum var hann slakur í þessum leik. ragnar sigurðsson Vonandi fyrir hann voru forráðamenn roma ekki að horfa á leikinn. Brynjar Björn gunnarsson Slakasti leikur brynjars í langan langan tíma. ekkert gekk upp og boltinn virtist hreinlega þvælast fyrir honum. Emil hallfreðsson reyndi hvað hann gat. Þurfti oft að fara inn á miðjuna til að fá boltann enda spiluðu miðjumenn Íslands ekki vel. hjálmar jónsson Lagði upp fyrra mark Íslands. Hann lagði líka upp mörg færi fyrir Letta með lélegum sendingum út úr vörninni. jóhannes karl guðjónsson átti nokkrar ágætar sendingar í leiknum. átti að vera leikstjórnandi Íslands en skilaði ekki því hlutverki.4 4 4 4 4 3 3 5 SAGT EFTIR LEIK Íslenska landsliðið í knattspyrnu bauð 5.865 áhorfendum á Laugar- dalsvelli upp á arfaslaka frammi- stöðu á laugardaginn þegar lands- lið Lettlands kom í heimsókn. Lettar unnu sannfærandi 4–2 sigur. Lettar hafa nú skorað níu mörk í riðlinum, þar af átta á móti Íslendingum. Ní- unda markið var sjálfsmark. Íslendingar byrjuðu leikinn bet- ur og Eiður Smári Guðjohnsen kom Íslandi yfir strax á 4. mínútu. Ísland náði þá góðri skyndisókn og eft- ir sendingu frá Hjálmari Jónssyni skoraði Eiður Smári af stuttu færi. Þetta var átjánda landsliðsmark Eiðs Smára og nýtt markamet staðreynd. Eftir markið var engu líkara en ís- lensku landsliðmennirnir hafi haldið að eftirleikurinn yrði hægðarleikur einn. Næstu 40 mínútur voru vægast sagt skelfilegar á að horfa. Lettar réðu lögum og lofum það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og Maris Verpakovskis var tvisvar nálægt því að skora. Í fyrra skiptið átti hann skalla sem Árni Gautur Arason markvörður varði vel og í síðara skiptið fékk Verp- akovskis langbesta færi leiksins en skaut í stöngina fyrir opnu marki. Ísland varð fyrir áfalli á 25. mínútu þegar Grétar Rafn Steinsson þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla. Inn á fyrir hann kom Kári Árnason og hann átti stóran þátt í jöfnunarmarki Letta. Á 27. mínútu fengu Lettar horn- spyrnu og upp úr henni skoraði Oskars Klava með skalla. Klava var einn og yfirgefinn fyrir miðju marki og það var Kári Árnason sem átti að passa Klava. Þar með voru Lettar komnir á bragðið og fjórum mínútum síð- ar náðu þeir forystu. Eftir klaufalegt brot Kristjáns Arnar Sigurðssonar fengu Lettar aukaspyrnu við víta- teigshornið. Miðjumaðurinn Jurifs Laizans tók spyrnuna og skoraði með skoti á nærstöngina. Skotið var ekki fast og engin spurning að Árni Gaut- ur átti að gera betur í markinu. Á 37. mínútu skoruðu Lettar þriðja markið og aftur kom mark eft- ir hornspyrnu. Eftir vandræðagang í vítateig Íslands fékk Maris Verpakov- skis boltann, hann hafði nægan tíma til að snúa sér og skoraði með skoti af stuttu færi. hræðileg byrjun á síðari hálfleik 3–1 var staðan í hálfleik og það stóð ekki steinn yfir steini í leik Ís- lands. Hafi íslensku leikmennirn- ir gert sér vonir um að byrja síðari hálfleikinn vel, tók það Letta aðeins nítján sekúndur að skjóta Íslendinga niður á jörðina. Lettar byrjuðu með boltann í síð- ari hálfleik. Jurijs Laizans sendi út á hægri kant og var sparkaður nið- Eiður smári guðjohnsen bætti markamet ríkharðs jónssonar þeg- ar hann skoraði tvö mörk gegn Lettum. Það dugði hins vegar ekki til því lettar unnu sannfærandi 4–2 sigur á slökum Íslendingum. dAgur svEinn dAgBjArtsson blaðamaður skrifar: dagur@dv.is HöRmuLEG FRAmmISTAðA meiddur grétar rafn Steinsson þurfti að fara meiddur af velli. kristján Örn sigurðsson berst um boltann. DV Sport mánudagur 15. október 2007 13 Emil HallfrEðsson „Þetta byrjaði rosalega vel og maður hélt að við myndum vinna þetta eftir byrjunina. en við vorum slappir varnarlega, allt liðið ekki bara öftustu fjórir. Við fengum alveg einhver færi og við hefðum alveg getað sett fleiri mörk. oft komu ágætissóknir í síðari hálfleik en við náðum ekki að klára þær. en það verður að segjast að þetta fjórða mark þeirra kláraði leikinn.“ JóHannEs Karl GuðJónsson „Við í sjálfu sér náðum að byrja ágætlega en einhverra hluta vegna komust þeir inn í leikinn og mér fannst við vera eitthvað taugastrekktir og náðum ekki að þétta okkur. Við vorum allt of opnir og þegar kantararnir komu inn á völlinn mynduðust þarna holur. en við fengum mörk á okkur úr föstum leikatriðum. Við vorum náttúrlega miklu betri aðilinn í leiknum í síðari hálfleik og við höfðum trú á því að við gætum jafnað. en markmaðurinn varði oft vel hjá þeim og síðasta sending klikkaði oft en svona er þetta bara. “ raGnar siGurðsson „Í byrjun vorum við ekki nógu vel stemmdir og þeir teygðu vel á okkur og alls staðar voru fríir menn hjá þeim. Við vorum allt of langt frá þeim og þorðum ekki að mæta þeim ofarlega í fyrri hálfleik, því þeir eru með snögga framherja. en í síðari hálfleik ákváðum við að mæta þeim enda fengum við fullt af færum og þeir ógnuðu okkur sjaldan á bak við okkur. Við teljum okkur kannski frekar geta spilað fótbolta gegn Lettum en öðrum þjóðum og við sóttum stanslaust í síðari hálfleik. en föstu leikatriðin urðu okkur að falli.“ Gunnar HEiðar Þorvaldsson „Ég á ekki orð yfir því að við höfum tapað hér heima 4–2 fyrir Lettum. en ég meina hver einasti maður hjá þeim gat tekið boltann, snúið sér og gert hvað hann vildi við boltann. Við litum út eins og ég veit ekki hvað. Við ætluðum að koma til baka og selja okkur dýrar í síðari hálfleik. Ég hélt að við myndum valta yfir þá í byrjun en þeir komust inn í leikinn og svona er þetta bara, þetta var ekki alveg að ganga.“ Árni Gautur arason „mér fannst ég byrja vel en svo skora þeir upp úr föstu leikatriði. Ég átti lítið í það. en í aukaspyrnunni hefði ég kannski mátt gera betur, ég þarf að skoða það í sjónvarpinu. boltinn var nálægt stönginni og svona, en við sjáum til.“ Eiður smári Guðjohnsen Skoraði tvö mörk og bætti markametið. barðist eins og ljón en því miður voru aðrir ekki í takt við eið. Kári Árnason gaf miklu fleiri sendingar á Letta en Íslendinga. Þótt menn spili ekki í sinni stöðu er lágmarks- krafa að landsliðsmaður geti sent á samherja. Grétar rafn steinsson Var ógnandi þann stutta tíma sem hann var inni á. Þurfti að fara af velli á 25. mínútu vegna meiðsla. Gunnar H. Þorvaldsson Sást einu sinni í leiknum og klúðraði þá dauðafæri. Hefði átt að fara af velli miklu fyrr enda í engum takt við leikinn. Helgi sigurðsson ekki eftirminnileg innkoma hjá Helga enda erfitt að koma inn á í þeirri stöðu sem upp var komin. Ármann smári Björnsson kom inn á í stöðunni 2–4 og tvær mínútur eftir. Furðuleg skipting. Hafði engan tíma til að setja mark sitt á leikinn. 3 7 4 maður leiksins 6 Eiður smári Guðjohnsen SAGT EFTIR LEIK 4 „Ég er gríðarlega svekktur og sér- staklega með fyrri hálfleik. Það var einbeitingarleysi og agaleysi í okkar leik í fyrri hálfleik. Við fengum þrjú mörk á okkur úr föstum leikatriðum og spiluðum illa. Við stóðum langt frá mönnum og vorum bara hlaup- andi á eftir þeim. Það gengur eng- an veginn. Menn verða að vera á tánum, annars fáum við alltaf mörk á okkur,“ sagði Eyjólfur Sverrisson landsliðþjálfari eftir leikinn. Hann sagði að hann hafi ætlað að gera áherslubreytingar í síðari hálfleik en fjórða markið hafi komið sem rothögg. „Við ætluðum að þétta leikinn. Það var allt of langt á milli sóknar og varnar og þeir höfðu allt- af möguleika á að senda á sóknar- mennina. Það var allt of mikið svæði fyrir þá til að hreyfa sig. Við ætluðum að þrýsta liðinu upp í seinni hálfleik, sem og við gerð- um. Menn voru miklu ákveðnari. En að fá á sig mark á fyrstu mínútu var gríðarlega dapurt. Við reyndum eftir það og fengum færi. Markvörð- urinn varði nokkrum sinnum vel og við gáfum allt í þetta í seinni hálf- leik,“ sagði Eyjólfur og bætti við að það hafi samt sem áður ekki komið til greina að gera mannabreytingar í hálfleik. Hann sagði að hugarfarið fyrir leikinn hafi verið mjög gott. „Alveg eins og hefur verið í síðustu leikjum. Við skoruðum mark strax í byrjun og þá var eins og það hafi dofnað yfir liðinu. Það var bara værukærð yfir liðinu og það var eins og við værum að bíða eftir að þeir myndu jafna,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði einnig að það hafi riðlað leik liðsins að missa Grétar Rafn af velli. „Það var akkúrat hans maður sem var aleinn í teignum og skallaði boltann inn. Þá voru menn ekki búnir að átta sig á því hver ætti að taka hann. Það er gríðarlega svekkjandi. Þeir létu okkur finna fyr- ir því og við vorum bara í einhverj- um prímadonnuleik í fyrri hálfleik,“ sagði Eyjólfur. Spurður um sína stöðu sem landsliðþjálfari sagði Eyjólfur að sú ákvörðun væri í höndum KSÍ. „Ef maður reiðist telur maður upp að tíu og tekur skynsamlegar ákvarð- anir. Ég er fyrst og fremst bara gríð- arlega svekktur með að við höfum ekki náð að halda sama dampi og hefur verið,“ sagði Eyjólfur. SpILuðum ILLA Eyjólfur sverrisson landsliðsþjálfari var gríðarlega svekktur eftir leikinn: ur skömmu síðar. Dómarinn beitti hagnaðarreglunni og sókn Letta hélt áfram. Aleksejs Visnakovs sendi bolt- ann fyrir mark Íslands þar sem Kristj- án Örn Sigurðsson skallaði boltann beint fyrir fætur Maris Verpakovskis sem skoraði. Lettar voru þar með komnir í mjög vænlega stöðu og ekkert annað fyrir þá að gera en að bakka og halda sinni stöðu. Ísland náði hins vegar að klóra í bakkann á 53. mínútu þegar Eiður Smári skoraði sitt annað mark. Emil Hallfreðsson gaf á Eið Smára sem lék á varnarmenn Letta og skoraði með laglegu skoti í hornið fjær. Lengra komust Íslendingar ekki og 4–2 sigur Letta því staðreynd. Sig- ur Letta var fyllilega verðskuldaður. Ísland spilaði tvisvar við Letta í und- ankeppninni og tapaði samtals 8–2. Lettar hafa skorað níu mörk í undan- keppninni og átta þeirra komu gegn Íslandi. Níunda markið var sjálfs- mark Norður-Írans Chris Baird í 1–0 sigurleik Letta. Nú er það svo að árangur þjálf- ara er metinn eftir úrslitum en ekki frammistöðu. Það er deginum ljós- ara að úrslit Íslands í þessari undan- keppni eru heilt yfir slæm og spurn- ing hvor tími Eyjólfs Sverrissonar með landsliðið sé ekki liðinn. Ísland hefur fengið á sig 21 mark í undankeppninni til þessa. Aðeins fjögur lið af þeim 50 sem taka þátt í undankeppnini hafa fengið fleiri mörk á sig og það eru Færeyjar, San Marínó, Andorra og Liechtenstein. Eiður smári Guðjohnsen Var besti leikmaður Íslands. 1-0 fyrir Ísland Ísland byrjaði vel í leiknum Eyjólfur Í þungum þönkum „Ísland spilaði illa í leiknum“ 15. október 2007 n Síð s steinlágum við fyrir Lettum í Laugardal n A freð og Kolbeinn geta víst spilað saman Hjörvars Hafliðasonar Hápressa Í sland tekur á móti Lettum á morgun, laugardag, í undankeppni EM. Eins og allir vita erum við komin á EM. Leikirnir sem eftir eru gegn Lettum og Ty kjum skipta máli því hagstæð úrslit gætu þýtt ð við yrðum í 3. styrkleikaflokki þeg r dreg- ið verður í riðlakeppni EM í desember. Ég gleymi því aldrei þegar við mætt- um Lettum síðast á Laugardalsvelli í októbermánuði 2007. Það var kalt og við skíttöpuðum 4–2. En leikurinn verður í minnum hafður því Eiður Smári Guðjohnsen varð þá markahæsti landsliðsmaður sögunnar. Sló þá met Ríkharðs Jónssonar sem var 17 mörk. Alls eru fjórir leikmenn í leik- mannahópi Íslands í dag sem voru í hópnum 2007, Ragnar Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Kári Árna- son og Emil Hallfreðsson. Fjórum dögum síðar töpuðum við 3–0 á móti Liechtenstein. Alfreð og Kolbeinn geta byrjað saman Það er þekkt mýta á meðal íslenskra knattspyrnuáhugamanna að Alfreð Finnbogason og Kolbeinn Sigþórsson geti ekki leikið saman í fremstu víg- línu. Það er rangt að mínu mati. Þeir félagar léku mjög vel í eina leikn- um sem þeir hafa byrjað saman í undankeppni undir stjórn Lars og Heimis. Það var í leik gegn Slóveníu fyr- ir tveim árum. Leikur sem tapaðist 2–4 en sóknarleikurinn var glimrandi gó ur. Hafa ber í huga að Gylfa Sig- rðsson, langbesta leikmann Íslands í síðustu tveimur undankeppnum, vantaði í leikinn. Lars og Heimir hafa ekki viljað prófa þá félaga en nú er kominn tími til að láta á það reyna. Önnur líkleg útfærsla á framlínunni gæti verið; Kolbeinn/Jóhann Berg (sem við sáum gegn Tékkum heima), Kol- beinn/Jón Daði (byrjað sex leiki í undankeppninni) eða jafnvel Kol- beinn/Eiður (sem við sáum gegn Kasökum úti). n Breyttir tímar Meðfylgjandi mynd og fyrirsögn var birt í DV eftir tapleikinn við Letta 2007. Ekkert verið að skafa af því. Fjórir núverandi leikmenn ís- lenska lands- liðsins voru þá í hópnum; Eiður Smári, Emil, Kári og Ragnar. Kaldur Kolbeinn Kolbeinn Sigþórsson, fremsti sóknarmaður íslenska lands- liðsins, gekk til liðs við Nantes í Frakklandi í sumar. Kolbeinn hefur enn ekki komist á blað í Frakklandi í markaskorun en hefur nú þegar fengið rautt spjald og tvö gul spjöld í þeim sjö leikjum sem hann hefur leikið í Frakklandi. Þegar betur er að gáð kemur í ljós að á árinu 2015 hefur Kol- beinn aðeins skorað tvö mörk með félagsliði. Eitt gegn Heracles og eitt gegn Pec Zwolle í apríl fyrir Ajax. Þá hefur hann aðeins gert eitt landsliðsmark á árinu, markið mikilvæga gegn Tékkum hér heima í júní. En Kolbeinn er markaskorari af guðs náð. Hann skorar á laugar- daginn, jafnvel tvö mörk. n Hjálmar Jónsson Ari Freyr Emil Hallfreðs Bi kir Bjarn Kristján Sigurðsson Birkir Sævars Grétar Rafn Jóhann Berg Árni Gautur Hannes Ívar Ingimars Ragnar Sig Gunnar Heiðar Kolbeinn Sigþórs Jóhannes Karl Gylfi Sig Eiður Smári Alfreð Finnboga Bry jar Björn Emi Hallfreðs Ragnar Sig Kári Árna Liðið 2007 sem tapaði fyrir Lettum 4–2 (4-4-1-1) Lið mitt á laugardag (4-4-2) Síðasti „alvöru“ leikur Eiðs á Íslandi Leikurinn á laugardag markar síðasta alvöru leik Eiðs hér á Íslandi. Eiður er ekki að fara að hefja aðra undankeppni með okkur á næsta ári og einu leikirnir sem landsliðið mun leika hér á landi fram að EM í Frakklandi verða æfingarleikir. Stuðningsmenn ættu því að muna að sitja og klappa sérstak- lega fyrir Eiði Smára að leik loknum það er alls ekkert víst að hann spili aftur landsleik hér á landi. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.