Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 39
Helgarblað 9.–12. október 2015 Sport 31
Ögurstund frændþjóða
n Norðmenn, Danir og Svíar eygja von um beint sæti á EM n Albanir og Norður-Írar í vænlegri stöðu
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
N
orðmenn, Danir og Sví-
ar og jafnvel Finnar eiga
möguleika á að komast á
EM í knattspyrnu í Frakk-
landi næsta sumar. Fram
undan eru tvær síðustu umferðirnar.
Norðmenn standa ágætlega að vígi
en bæði Danir og Svíar eiga í vök að
verjast. Líklegast er að Danir og Svíar
fari í umspil en frændur okkar Finnar
þurfa á kraftaverki að halda til að ná
umspilssæti.
Ísland er eins og frægt er orðið
komið á EM. Spennan í okkar riðli
einskorðast við baráttu Hollendinga
og Tyrkja um þriðja sætið, þar sem
Tyrkir standa betur að vígi. Sæti í
umspili í þeirra höndum en báðar
þjóðir eiga eftir að mæta Tékkum.
Hollendingar eiga eftir að fara til
Kasakstan en Tyrkir taka á móti
Íslendingum í lokaleiknum. Af
öðrum liðum sem hafa komið á
óvart má nefna Norður-Íra, sem eru
efstir í F-riðli og Wales, sem leiðir
í B-riðli. Þá hafa Albanir komið
mikið á óvart og eru í vænlegri stöðu
fyrir lokaleikina tvo. Þeir gætu gert
Dönum skráveifu. Hér er rýnt í stöðu
riðlanna í undankeppni EM, en
úrslitin ráðast á mánudagskvöldið.
Efstu tvö liðin í hverjum riðli
komast beint á EM auk þess liðs í
þriðja sæti sem hefur besta árangur-
inn. Hin átta liðin, sem hafna í þriðja
sæti, þurfa að spila hvert við annað í
umspili um fjögur laus sæti. n
A-riðill
Stig Mörk
Ísland 19 +12
Tékkland 19 +6
Tyrkland 12 +2
Holland 10 +3
Lettland 4 –12
Kasakstan 2 –11
Spennan í A-riðli snýst um hvort Holland eða Tyrkland kemst í umspil.
Hollendingar eiga þægilegri leiki eftir en þurfa fleiri stig. Íslendingar
og Tékkar hafa þegar tryggt sér efstu tvö sætin en berjast nú um hvort
liðið endar ofar. Atlagan um umspilssætið ræðst að líkindum í loka-
umferðinni.
Leikir eftir:
Ísland – Lettland
Kasakstan – Holland
Tékkland – Tyrkland
Lettland – Kasakstan
Holland – Tékkland
Tyrkland – Ísland
Spennustig 1/3
B-riðill
Stig Mörk
Wales 18 +7
Belgía 17 +14
Ísrael 13 +5
Bosnía H. 11 +2
Kýpur 9 –1
Andorra 0 –27
Spennan í B-riðli er hverfandi. Wales og Belgía eiga bæði eftir að mæta
máttlausu liði Andorra og eru því sama og örugg á EM. Spennan um
umspilssæti er þó mikil. Ísrael, Bosnía og Kýpur gætu öll gert atlögu að
því en Ísrael stendur best að vígi.
C-riðill
Stig Mörk
Spánn 21 +15
Slóvakía 19 +8
Úkraína 16 +9
Hvíta-Rússland 7 –7
Lúxemborg 4 –15
Makedónía 3 –10
Spánverjar og Slóvakar standa best að vígi en Spánverjar eiga heimaleik
gegn Lúxemborg í fyrri umferðinni – og geta þar tryggt sæti sitt.
Slóvakar eiga á sama tíma afar mikilvægan leik gegn Hvít-Rússum.
Úkraínumenn, sem eru öruggir með sæti í umspili, geta stolið sætinu
af Slóvökum ef hinir síðarnefndu misstíga sig á heimavelli. Þeir eiga þó
Spánverja í lokaleiknum.
D-riðill
Stig Mörk
Þýskaland 19 +15
Pólland 17 +22
Írland 15 +12
Skotland 11 +4
Georgía 6 –9
Gíbraltar 0 –44
Þjóðverjar ættu að eiga greiða leið á EM, jafnvel þótt Írar valdi þeim skrá-
veifu í Dublin. Þeir eiga Georgíumenn á heimavelli í seinni umferðinni. Írar
eiga bæði eftir að mæta Þjóðverjum og Pólverjum og þurfa á kraftaverki
að halda til að komast beint á EM. Umspilssætið er innan seilingar en
Skotar gætu gert atlögu að sætinu með því að vinna Pólverja á heima-
velli. Þeir mæta svo slöku liði Gíbraltar í lokaumferðinni.
E-riðill
Stig Mörk
England 24 +23
Sviss 15 +8
Slóvenía 12 +5
Eistland 10 –2
Litháen 9 –8
San Marínó 1 –26
Englendingar eru öruggir áfram og nánast má fullyrða að Svisslendingar
séu það líka – þeir hafa þriggja stiga forskot á Slóvena og eiga heimaleik
gegn San Marínó eftir. Slóvenar eru næstum öruggir með þriðja sætið
enda eiga þeir eftir að leika við tvö neðstu liðin á meðan Eistar eiga eftir
að mæta tveimur bestu liðunum. Röð liðanna mun líklega ekki breytast.
F-riðill
Stig Mörk
Norður-Írland 17 +6
Rúmenía 16 +6
Ungverjaland 13 +2
Finnland 10 –1
Færeyjar 6 –7
Grikkland 3 –6
Hér leikur allt á reiðiskjálfi. Gullöld Grikkja er sannarlega á enda og Norð-
ur-Írar eru á toppi riðilsins. Hver hefði trúað því? Rúmenar standa einnig
vel að vígi en eiga eftir að mæta Finnum og Færeyingum. Það er eiginlega
ómögulegt að spá fyrir um þennan riðil en Norður-Írar geta með sigri á
Grikkjum á heimavelli tryggt sér sæti á EM. Rúmenar geta nánast tryggt
sér farmiða vinni þeir Finna heima. Hér verður barist til síðustu mínútu,
enda er enginn leikur gefinn.
G-riðill
Stig Mörk
Austurríki 22 +13
Rússland 14 +13
Svíþjóð 12 +2
Svartfjallaland 11 +0
Liechtenstein 5 –19
Moldóva 2 –9
Austurríki hefur tryggt sér farseðil á EM en baráttan um annað og þriðja
sætið er grjóthörð. Rússar hafa tveggja stiga forskot og þeim nægja
líklega fjögur stig gegn Moldóvum og Svartfellingum. Svíar eiga aftur
á móti auðveldari leiki eftir, gegn Liechtenstein og Moldóvu. Baráttan
stendur fyrst og fremst á milli Rússa og Svía en Svartfellingar eiga tvo
erfiða leiki fyrir höndum og þurfa á kraftaverki að halda.
H-riðill
Stig Mörk
Ítalía 18 +6
Noregur 16 +2
Króatía 14 +11
Búlgaría 8 –2
Aserbaídsjan 6 –7
Malta 2 –10
Ítalía, Noregur og Króatía munu skipa þrjú efstu sætin í riðlinum. Röðin
getur hins vegar breyst. Ítalir og Norðmenn eiga eftir að mætast innbyrð-
is en sá leikur getur, vinni Króatar Búlgari í fyrri umferðinni, ráðið úrslitum
um hvort það verða Norðmenn eða Króatar sem fylgja Ítölum beint á EM.
Hin þjóðin fer í umspil. Fyrir frændur okkar er algjört lykilatriði að vinna
Maltverja á heimavelli í fyrri umferðinni.
I-riðill
Leikir Stig Mörk
Portúgal 6 15 +4
Danmörk 7 12 +4
Albanía 6 11 +4
Armenía 7 2 –6
Serbía 6 1 –6
Í þessum fáliðaða riðli getur allt gerst. Albanir eru, öllum að óvörum, í
nokkuð góðri stöðu til að komast beint á EM. Þeir eiga tvo leiki eftir, gegn
slökum Armenum og Serbum, þjóðum sem báðar eru úr leik. Danir eru
sem stendur í öðru sæti en eiga aðeins eftir útileik við Portúgal. Albanir
munu, fyrir leik sinn gegn Armenum, vita hvað þeir þurfa að gera í þeim
leik til að komast beint á EM. Þeir eru þó þegar öruggir í umspil.
Leikir eftir:
Andorra – Belgía
Bosnía H. – Wales
Ísrael – Kýpur
Belgía – Ísrael
Kýpur – Bosnía H.
Wales – Andorra
Leikir eftir:
Makedónía – Úkraína
Slóvakía – H.-Rússland
Spánn – Lúxemborg
H.-Rússland – Makedónía
Lúxemborg – Slóvakía
Úkraína – Spánn
Spennustig 1/3
Spennustig 2/3
Leikir eftir:
Georgía – Gíbraltar
Írland – Þýskaland
Skotland – Pólland
Þýskaland – Georgía
Gíbraltar – Skotland
Pólland – Írland
Spennustig 1/3
Spennustig 2/3 Spennustig 3/3
Spennustig 3/3
Spennustig 1/3
Spennustig 3/3
Leikir eftir:
England – Eistland
Slóvenía – Litháen
Sviss – San Marínó
Eistland – Sviss
Litháen – England
San Marínó – Slóvenía
Leikir eftir:
Ungverjaland – Færeyjar
N.-Írland – Grikkland
Rúmenía – Finnland
Færeyjar – Rúmenía
Finnland – N.-Írland
Grikkland – Ungverjaland
Leikir eftir:
Liechtenstein – Svíþjóð
Moldóva – Rússland
Svartfjallaland – Austurríki
Austurríki – Liechtenstein
Rússland – Svartfjallaland
Svíþjóð – Moldóva
Leikir eftir:
Aserbaídsjan – Ítalía
Noregur – Malta
Króatía – Búlgaría
Búlgaría – Aserbaídsjan
Ítalía – Noregur
Malta – Króatía
Leikir eftir:
Albanía – Serbía
Portúgal – Danmörk
Armenía – Albanía
Serbía – Portúgal
Grænmerktir leikir eru lykilleikir í riðlunum.