Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Page 40
32 Skrýtið Sakamál Helgarblað 9.–12. október 2015 PHILIPPE STARCK Philippe Starck hefur útfært hugmyndir svo lengi sem hann man. Þó háþróaðar hugmyndir hans hafi ekki fengið hljómgrunn kennara hans, var hann þó um tvítugt búinn að afla sér heimsfrægðar og viðurkenningar fyrir hönnun og arkitektúr. Velkomin í stórglæsilegan sýningarsal okkar að Draghálsi 14-16. Gæði fara aldrei úr tísku Banvæn hjúkrun n katariina Pantila var hjúkrunarkona n reyndist vera einn af mörgum „englum dauðans“ Í nóvember 2007 var í haldi finnsku lögreglunnar 26 ára hjúkrunar- kona, Katariina Pantila. Katari- ina var grunuð um að hafa banað tveimur andlega fötluðum sjúk- lingum á endurhæfingamiðstöð í Ylöjärvi, bæ í Vestur-Finnlandi. Talið var að Katariina hefði vit- andi vits gefið sjúklingunum ban- væna skammta af insúlíni í mars þetta sama ár. Einnig var hún grunuð um að hafa orðið 91 árs konu að bana á hjúkrunarmiðstöð í borginni Nokia. Katariina hafði séð um um- önnun þeirrar konu síðustu daga hennar og hafði lík hennar verið grafið upp og rannsakað. Við rann- sóknina fundust leifar banvæns magns af morfíni. Katariina fékk hið sígilda viðurnefni Engill dauðans. Viðamikil rannsókn Reyndar var dauðsfall þessarar 91 árs gömlu konu bara eitt fimm dauðsfalla sem lögregluyfirvöldum þótti ástæða til að kanna nánar. Um var að ræða sjúklinga sem höfðu ver- ið í umsjá Katariinu og höfðu líkams- leifar þeirra verið grafnar upp tveim- ur mánuðum fyrr, í september. Það sem kom lögreglunni á spor- ið var insúlíneitrun átta mánaða gamals drengs, ættingja Katari- inu. Drengurinn hafði veikst sökum insúlíneitrunar í fjölskylduveislu í sumarbústað í Kuru. Atvikið varð til þess að lögreglan kannaði nánar dauða vistmannanna tveggja sem getið er í upphafi; 54 ára karlmanns og 79 ára konu. Morfín og insúlín Hin ýmsu efni fundust í þeim líkum sem grafin voru upp en við fyrstu sýn virtist sem áðurnefnd 91 árs kona hefði verið sú eina sem fékk ban- vænan skammt af morfíni. Insúlín fannst hins vegar í öllum líkunum og þó hafði einungis einn umræddra einstaklinga þjáðst af sykursýki. Þegar þarna var komið sögu hafn- aði Katariina alfarið að bendlast þessum dauðsföllum með nokkrum hætti og í raun var ekki hægt að sjá nokkra ástæðu fyrir morðunum. Hvað sem því líður var talið hafið yfir allan vafa að Katariina væri sek og þann 19. maí, 2009, fékk hún lífs- tíðardóm og reyndist tilraun hennar til að myrða varnarlaust þungt lóð á vogarskálina. Dauði Engils dauðans Þann 8. mars, 2010, framdi Katariina sjálfsmorð í fangaklefa sínum í Tur- ku, þá 28 ára að aldri. Lífgunartil- raunir báru ekki árangur. Viku áður hafði áfrýjunardómstóll kveðið upp þann úrskurð að lífstíðardómur- inn sem Katariina fékk árið 2009 skyldi standa. Hvernig Katariina Pantila framdi sjálfsmorð fylgir ekki sögunni. n Katariina Pantila Hvað fékk finnsku hjúkrunarkonuna til að fremja morð er ekki vitað. „Það sem kom lögreglunni á sporið var insúlíneitrun átta mánaða gamals drengs, ættingja katariinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.