Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Qupperneq 42
34 Lífsstíll Helgarblað 9.–12. október 2015
Smart haustfatnaður
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54
Grænkálssnakk
n Næstum því of hollt n Ljúffengt og einfalt
G
rænkál er auðvelt að rækta
á Íslandi og notkun þess fer
vaxandi. Það er náskylt öðr-
um káltegundum, en einnig
mustarði, piparrót og karsa.
Grænkál er auðvelt að rækta í
íslensku veðurfari en geymslutím-
inn er frekar stuttur þegar búið er
að uppskera, eða um vika í kæli.
Það er hitaeiningasnautt og inni-
heldur ríkulegt magn af A-, B- og C-
vítamíni. Auk þess er það góð upp-
spretta kalíums, fosfórs og járns, líkt
og annað dökkgrænt grænmeti.
Grænkál má elda á ýmsa vegu,
steikja, sjóða, gufusjóða eða nota
það hrátt í salöt. Sé það notað hrátt
er best að hnoða það með olíu og
sítrónusafa til þess að brjóta niður
trefjar og gera bragðið mildara.
Þurrkað og kryddað grænkál er
fyrirtaks snakk sem getur komið í
staðinn fyrir ýmsa óholla kosti, eins
og kartöfluflögur eða bland í poka.
Aðferðin er sáraeinföld og fljótleg
og útkoman sérlega ljúffeng.
Efni: 1 poki grænkál 2
msk. ólífuolía saltflög-
ur chili-flögur
Aðferð: Rífið
grænkálið af stilk-
unum og í hæfi-
lega bita ofan í skál.
Bætið olíunni við og
blandið með höndun-
um. Dreifið á bökunarplötu
sem er þakin með smjörpappír.
Stráið yfir saltflögum og chili-flög-
um. Þurrkið við 200°C í ofni í 5–7
mínútur. Njótið! n
Grænkálið tilbúið Ótrúlega ljúffengt og
kláraðist hratt!
#égerekkitabú
n Íslendingar opna sig um geðsjúkdóma á samfélagsmiðlum
H
ópurinn Geðsjúk var stofn-
aður á Facebook í byrjun vik-
unnar og nálgast fjöldi með-
lima annað þúsundið þegar
þetta er ritað.
Það eru vinkonurnar Silja Björk
Björnsdóttir, Tara Ösp Tjörvadóttir og
Bryndís Sæunn S. Gunnlaugsdóttir
sem standa að hópnum. Allar eru þær
með þunglyndi en Bryndís Sæunn er
að auki með kvíða- og persónuleika-
röskun. Þær hafa allar tjáð sig op-
inberlega um sína reynslu og hafa
í gegnum vinskapinn náð að styðja
hver aðra.
Blaðamaður náði tali af Silju Björk
og ræddi við hana um tilganginn,
tabúin og mikilvægi þess að tjá sig um
geðsjúkdóma.
„Ég hafði hugsað um þetta
heillengi og eftir að Tara Ösp skrifaði
grein á Pressunni um sína reynslu
og auglýsti í leiðinni eftir fólki í ljós-
myndaverkefnið 100 andlit þunglynd-
is, rúllaði boltinn af stað. Við fengum
Bryndísi Sæunni í lið með okkur og
stofnuðum hópinn. Við höfðum allar
látið okkur dreyma um að standa að
svona verkefni og loksins, þegar við
vorum orðnar þrjár, var eins og kraft-
urinn og kjarkurinn yrði nægur.“
Fjölbreyttur hópur
Með hópnum Geðsjúk vilja vinkon-
urnar vekja athygli á geðsjúkdómum,
opna umræðuna og afhjúpa að á bak
við geðsjúkdómana er alls konar fólk
með mismunandi sögur og mismun-
andi andlit.
„Það er svo ríkt í okkur að líta niður
á þá sem eru með geðsjúkdóma. Fólk
er talið furðulegt, skrítið eða aumingj-
ar. Kannski er þetta enn meira áber-
andi hér en víða annars staðar því við
erum svo miklir víkingar, eigum að
bíta á jaxlinn og harka af okkur. Það
er verst að sjá fordóma og fáfræði í
menntakerfinu og heilbrigðiskerfinu
og hjá stjórnvöldum. Til dæmis er al-
veg fáránlegt að sálfræðiþjónusta sé
ekki niðurgreidd. Við vonumst þess
vegna til að umræðan og byltingin
sem er að fara af stað á samfélags-
miðlunum opni hug og hjörtu sam-
félags og stjórnvalda. Það þarf að pæla
í þessum málum og gera úrbætur.“
Miðlar reynslu
Silja Björk vakti mikla athygli í fyrra
þegar hún flutti TedX fyrirlestur um
reynslu sína af þunglyndi og sjálfs-
vígstilraun sem hún gerði árinu áður.
Tugir þúsunda hafa horft á fyrirlestur-
inn en hann er aðgengilegur á You-
tube.
„Ég hafði skrifað greinar um þung-
lyndi, alveg frá því að ég greindist fyrst
tvítug, og haldið marga fyrirlestra í
grunnskólum, bæði um þunglyndið
og sjálfsmorðstilraunina. Mig langaði
að ná til breiðari hóps, og sótti um að
vera með á TedX. Ég fékk þann heið-
ur og sé alls ekki eftir því. Þetta var ein
besta þerapía sem ég hef farið í gegn-
um. Í kjölfarið hef ég fengið ótal skila-
boð og kynnst fólki víðs vegar að úr
heiminum. Það er greinilegt að það
er ekki bara á Íslandi sem þörf er á að
opna umræðuna.“
Silja Björk segir það mikilvægan þátt
í bataferlinu að deila reynslu sinni og fá
viðbrögð fólks. „Margir eiga erfitt með
að tjá sig um reynslu sína af geðsjúk-
dómum og það gagnast þeim að hlusta
á einhvern sem hefur gengið í gegnum
eitthvað svipað. Ef einhver hefði sagt
við mig það sem ég er að segja við ann-
að fólk í dag hefðu hlutirnir eflaust þró-
ast öðruvísi hjá mér.“
Konurnar leiða
Að sögn Silju Bjarkar hefur átakið
farið frábærlega af stað. Í Facebook-
hópnum hafa ótal notendur sett inn
færslur þar sem þeir tjá sig um reynslu
sína af þunglyndi, kvíða, áfallastreitu,
geðhvarfasýki, geðrofi og ýmsum öðr-
um geðsjúkdómum.
„Konurnar voru fyrri til að tjá sig,
kannski er það eðlilegt samfélagsins
vegna. Það virðist frekar vera sam-
þykkt að konur glími við geðsjúk-
dóma, karlmenn mega ekki tjá sig
á sama hátt og eiga erfitt með það
vegna væntinga samfélagsins. En
núna hafa þeir tekið við sér líka og við
sjáum mikið hugrekki birtast í færsl-
unum. Sumar sögurnar eru stuttar og
aðrar langar, en það sem kom á óvart
var að sjá allt þetta mismunandi fólk
opna sig um reynslu sína. Geðsjúk-
dómar eru partur af mannlegri flóru
og það birtist sannarlega á síðunni.
Viðbrögðin á Twitter hafa líka farið
fram úr björtustu vonum og merkið
#égerekkitabú er að birtast í gríð og
erg í fæslum hjá alls konar fólki. Ég er
ótrúlega þakklát og meyr yfir þessu.
Viðbrögðin sýna að það verður að
viðhalda umræðunni.“ n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Bylting á samfélagsmiðlum Stöllurnar
hvetja fólk með reynslu af geðsjúkdómum til
að tjá sig og merkja færslurnar átakinu.
Þunglynda þríeykið Bryndís Sæunn, Tara Ösp og Silja Björk eru konurnar á bak við
Facebook-hópinn Geðsjúk.
Silja Björk Opnar
umræðu og eyðir
fordómum.