Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.2015, Blaðsíða 54
46 Fólk Helgarblað 9.–12. október 2015
GÓLFMOTTUR
Við leigjum út gólfmottur í anddyri.
Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu
ræstingakostnað.
Við sækjum og sendum.
Fáðu verðtilboð!
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
E
ins og Hollywood-stjörnur vita
er stingandi augnaráð fjöl-
miðlanna fylgifiskur frægðar-
innar. Ljósmyndarar og blaða-
menn skrá samviskulega niður
hverja hreyfingu svo allra frægustu
stjörnurnar geta ekki sinnt einföld-
ustu erindum án þess að við hin get-
um lesið um það í blöðunum. Sumir
aðdáendur verða hins vegar svo hel-
teknir af uppáhaldsstjörnum sínum
að dálæti þeirra verður ekki leng-
ur krúttleg forvitni heldur hreinlega
sjúklegt og hættulegt einelti. Hér eru
sögur af helsjúkum aðdáendum sem
hafa heldur betur fengið sínar uppá-
haldsstjörnur á heilann. n
Eltihrellar stjarnanna
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera heimsfræg stjarna
Vildi djásn Justins
Fangi einn, sem situr á bak við lás og slá
eftir að hafa nauðgað og myrt 15 ára stúlku,
fékk söngvarann Justin Bieber á heilann.
Fanginn er sagður hafa beðið annan fanga
að hjálpa sér að skera undan stjörnunni svo
hann gæti fengið kynfæri söngvarans sem
minjagrip. „Justin er myndardrengur. Ég
myndi sænga hjá honum. Hann er löglegur
svo ég myndi örugglega gera það,“ hafði
annar fangi eftir honum.
Hrellir bað um
nálgunarbann Setið var um
ungstirnið Selenu Gomez árið 2012 af manni
sem hélt því fram að hann hefði átt yfir 50
samtöl við Guð um það hvernig hann ætti að
drepa stjörnuna. Eltihrellirinn hvatti stjörnuna
til að fá nálgunarbann á sig þar sem hann
treysti sér ekki til að halda sig frá henni.
Hótar
morðum
Poppstjarnan Taylor
Swift hefur fengið
nálgunarbann á
karl sem heldur því
fram að hann sé
kvæntur söngkon-
unni. Maðurinn hefur
meðal annars hótað
að drepa alla sem
koma á milli þeirra. Í
tölvupósti, bréfum og
jafnvel tístum hefur
hann lýst yfir ást sinni
á söngkonunni. „Það
er ekki mér að kenna
ef einhver í fjölskyldu
Taylor Swift lætur
lífið. Ég elska hana
skilyrðislaust og virði.
Héðan í frá mun ég
ganga með byssu á
mér hvert sem ég fer.“
Elti Miley Miley Cyrus á
fjölda aðdáenda en allavega einn þeirra fór
langt yfir strikið. Aðdáandinn, karlyns, elti
stjörnuna á röndum og hélt því staðfastlega
fram að þau væru trúlofuð.
Klikkuð hugdetta
Söngkonan Beyoncé fékk hrollvekjandi bréf
árið 2009 frá manni sem var þess fullviss að
söngkonan hefði verið drepin af eftirhermu
sem stolið hefði lífi hennar. Einmitt.
Kynnti sig
sem Guð Árið 2009
mætti kona ein óboðin heim til
söngvarans og leikarans Justins
Timberlake og kynnti sig sem
Guð. Konan sagðist hafa verið
valin á þessa jörð til að stjórna
ásamt stjörnunni. Umrædd
kona hafði áður verið með Axl
Rose, söngvara Guns N'Roses,
á heilanum og hafði margoft
verið handtekin fyrir framan
heimili hans.
Gróf
skilaboð og
teikningar
Karlmaður sem fékk
leikkonuna Umu
Thurman á heilann lagði
hana í áralangt einelti
með grófum skilaboðum,
teikningum og póstkort-
um. Í einu kortanna hafði
hann teiknað mynd af
manni sem stóð við opna
gröf með rakvélablað
milli fingra sér. Maðurinn
var dæmdur í fangelsi
árið 2008.
Mætti vopnaður Árið
2013 mætti maður vopnaður byssu óboðinn
á heimili kvikmyndastjörnunnar Söndru
Bullock. Leikkonunni tókst að læsa sig inni í
herbergi þar til lögreglan bjargaði henni og
handtók manninn.
Geðsjúkur og hættulegur Madonna hefur verið í sviðs-
ljósinu í langan tíma og hefur fengið sinn skammt af ógnvægilegum eltihrellum. Poppdívan
var eitt sinn elt á röndum af geðsjúkum og hættulegum manni sem slapp af geðsjúkrahúsi.
Maðurinn sagðist annaðhvort ætla að kvænast söngkonunni eða skera hana á háls, frá eyra
að eyra. Lífverðir Madonnu skutu manninn þegar hann mætti á landareign hennar. Maðurinn
lifði af og dvelur nú á bak við lás og slá. Annar heltekinn aðdáandi var dæmdur í tíu ára
fangelsi eftir að hafa hrellt söngkonuna í langan tíma.
Elt á röndum Leikkonan
Jennifer Aniston átti ekki sjö dagana sæla
þegar karlmaður elti hana grimmt á rönd-
um. Maðurinn birtist hvar sem leikkonan
var og risti meðal annars „ÉG ELSKA ÞIG
JENNIFER ANISTON“ á bíl sinn. Maðurinn
var að lokum handtekinn og skipað að
halda sér fjarri stjörnunni.
Óhugnanleg
skilaboð Britney Spears hefur
fengið sinn skerf af hugsjúkum aðdáendum.
Árið 2002 sendi maður einn henni tölvupóst
í miklu magni og myndir með skilaboðum
á borð við: „Ég er að elta þig“. Þrátt fyrir
nálgunarbann lét maðurinn sér ekki segjast
fyrr en lífvörður poppprinsessunnar hótaði
honum með byssu.