Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 13
Fréttir 13 Forystumenn fjarverandi í verkfalli Þann 13. apríl síðastliðinn stóð yfir verkfall BHM og ætlaði þá allt um koll að keyra meðal stjórnarandstæðinga á þingi þegar bæði Sigmundur Davíð og Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra voru fjarverandi fyrsta þingfund Alþingis eftir tveggja vikna páskaleyfi þingmanna. Fréttum af slæmri stöðu á sjúkrahúsum vegna verkfallsins, sem ógnuðu öryggi sjúklinga, rigndi yfir landsmenn og stjórnarand- stæðan var bálreið. „Það er að teikn- ast upp sú mynd hér, enn og aftur, að hér er á ferðinni svo ævintýralega léleg ríkisstjórn að annað eins hefur ekki sést í stjórnmála- sögu Íslands,“ sagði Róbert Marshall, þing- maður Bjartrar framtíðar, af þessu tilefni. Forseti Alþingis lagði þau orð í belg að hann hefði freistað þess að fá ráðherrana tvo í þingsal þennan dag, en hvorugur hefði átt kost á því. Síðar sama dag greindi Vísir frá því að Sigmundur Davíð hefði verið viðstaddur setningarathöfn heimsmeistaramóts karla í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal um kvöldið. Af þeim sökum hafði Sigmundur afþakkað boð um að mæta í Kastljósið á RÚV til að ræða afnám hafta og fleiri veigamikil mál sem rædd voru á flokksþingi Framsóknarflokksins sem farið hafði fram helgina áður. Helgarblað 16.–19. október 2015 Þegar stjórnarandstaðan saknar Sigmundar á þingi forsætisráðherra fyrir að vera ekki til staðar til að svara fyrir mál n DV tók saman nokkur dæmi Utanlandsferðir á óheppilegum tíma Á kjörtímabilinu hafa ítrekað komið upp tilfelli þar sem Sigmundur Davíð hefur ákveðið að bregða sér í frí eða utanlandsferðir í einkaerindum á fremur óheppilegum tímum gagnvart starfi hans. Hér eru nokkur þeirra. Um miðjan október 2013, þegar þing var tiltölulega nýsett, fór Sigmundur til dæmis í frí til útlanda með fjölskyldunni við litla hrifningu þingmanna og gagnrýndi meðal annarra Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, fjarveru hans í fyrirspurnartíma á þingi við það tilefni. Einu upplýsingarnar sem fengust um fríið, sem DV fjallaði um, voru að ráðherra væri að hvíla lúin bein og hlaða batteríin. DV greindi frá því 20. mars 2014 að meira að segja Bjarni Benedikts- son og aðrir samstarfsmenn Sigmundar í ríkisstjórninni vissu ekki af ákvörðun forsætisráðherra að fara til útlanda í einkaerindum með stuttum fyrirvara nokkrum dögum áður. Í desember 2014, á lokaspretti fjárlagaumræðna, fór Sigmundur Davíð aftur erlendis til að halda upp á afmæli eiginkonu sinnar án þess að vera skráður á fjarvistaskrá þingsins eins og DV fjallaði um á þeim tíma. Lengsta sumarfrí sögunnar DV afhjúpaði þann 21. ágúst síðastliðinn að engin ríkisstjórn síðastliðinn áratug hið minnsta, hefði tekið sér jafnlangt sumarfrí milli ríkisstjórnarfunda og nú- verandi ríkisstjórn gerði síðastliðið sumar. Þá liðu rúmar fimm vikur milli funda, sem forsætisráðherra boðar, og gagnrýndi Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinn- ar, þetta og fullyrti að þetta væri lengsta sumarfrí íslenskrar ríkisstjórnar í sögunni. Gagnrýndi hann harðlega að ríkisstjórnin hefði ekki komið saman til að undirbúa viðbrögð við innflutningsbanni Rússa á íslensk matvæli. Aðstoðarmaður forsætisráðherra sagði í samtali við DV að aðalskýringin væri að enginn ráðherra hefði óskað eftir fundum í sumar en að mikil samskipti og vinna hafi þó átt sér stað á tímabilinu. Sigmundur saknaði Jóhönnu En því fer fjarri að Sigmundur Davíð sé fyrsti eða eini forsætisráðherrann sem gagnrýndur hefur verið fyrir fjarveru sína. Hvort heldur sem er úr þingsal eða landinu. Þannig var Sigmundur Davíð, þegar hann var þingmaður Framsóknarflokks- ins, í tíð síðustu ríkisstjórnar allt annað en sáttur með að Jóhanna Sigurðardóttir væri stödd erlendis á sama tíma og kvóta- frumvörp stjórnar hennar voru ræddar í þingi í júníbyrjun 2012. Tók hann undir gagnrýni þáverandi stjórnarandstöðu á fjarveru Jóhönnu sem varð til þess að ráðherrar ríkisstjórnar VG og Samfylkingar sökuðu framsóknarmenn um lágkúru. Sigmundur Davíð sagði að þótt kvóta- málin ættu að vera á forræði þingsins hefði Jóhanna Sigurðardóttir ekki farið leynt með að hún ætlaði að ráða því máli, niðurstöðu og vinnslu. „Þess vegna hlýtur það að vera eðlileg krafa af hálfu þingsins að hæstvirtur for- sætisráðherra komi hér og svari fyrir þetta mál sitt. Og hæstvirtur utanríkisráðherra segir að við eigum að gefa hæstvirtum forsætisráðherra sérstök grið af því að ráðherra sé úti að semja við útlendinga um sjávarútvegsmál. Ef að hæstvirtur for- sætisráðherra … er nú farinn að semja við útlendinga um sjávarútvegsmál, þá fyrst þurfum við nú að hafa áhyggjur og kalla hæstvirtan forsætisráðherra heim.“ Jóhanna hafði verið í opinberum erindagjörðum erlendis þar sem hún sótti meðal annars leiðtogafund Eystrasalts- ráðsins í Þýskalandi. Össur Skarphéðinsson, tók þá upp hanskann fyrir Jóhönnu og benti á að starfandi forsætisráðherra væri í þingsalnum, á meðan Steingrímur J. Sigfússon líkti gagnrýni stjórnarandstöð- unnar þáverandi við „skrautsýningu“. „Mér finnst það óskaplega lágkúrulegt að nota þetta tækifæri til að veitast hér að forsætisráðherra.“ Svona gengur nú pólitíkin í furðulega hringi stundum. Fjarvera forsætisráðherra gagnrýnd Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur margoft á kjörtímabil- inu mátt sæta gagnrýni stjórnarandstöðunnar vegna fjarveru sinnar á þingi. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.