Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 14
Helgarblað 16.–19. október 201514 Fréttir RÚMAllt fyrir svefnherbergið Rúm | Sængurver | Springdýnur | Púðar og rúmteppi | Kistur og náttborð Gaflar | Heilsukoddar | Dýnuhlífar og lök | Fylgihlutir Dalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is| rbrum.is Íslensk hönnun Dæmd til að skila fyrirtækjum, íbúðum og lúxusbílum n Héraðsdómur féllst á beiðni þrotabús Ingvars J. Karlssonar n Beiðni Margrétar Stefánsdóttur, eiginkonu hans, um endurupptöku verður tekin fyrir í dag n Deilt um alls 31 eign H éraðsdómur Reykja- víkur rifti í byrjun sept- ember ráðstöfunum Ingvars J. Karlssonar, fjár- festis og stjórnarformanns heildverslunarinnar Karls K. Karls- sonar, á meginhluta eigna hans til Margrétar Stefánsdóttur, eiginkonu Ingvars, með kaupmála sem þau gerðu í janúar 2009. Þrotabú Ingv- ars höfðaði málið og samþykkti héraðsdómur að rifta tilfærsl um á hlutum eða öllu hlutafé í 22 einka- hluta- eða hlutafélögum, fjórum fasteignum hér á landi, tveimur íbúðum í London og þremur bif- reiðum. Margrét tók ekki til varna í mál- inu og hefur farið fram á endur- upptöku þess. Samkvæmt dómi héraðsdóms tókst ekki að birta stefnuna fyrir henni sjálfri en hún á nú lögheimili í Serbíu. Endur- upptökubeiðnin verður tekin fyr- ir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, föstudag. 2,4 milljarða þrot Dómurinn féll 2. september síð- astliðinn en samkvæmt honum var Ingvar úrskurðaður gjaldþrota af kröfu Landsbankans í febrúar 2014. Áður en hann og Margrét gerðu kaupmálann átti Ingvar meðal annars 78% hlut í fjölskyldufyrir- tækinu Karli K. Karlssyni, sem fað- ir hans stofnaði árið 1946, 12% hlut í verðbréfafyrirtækinu Virðingu, tvær íbúðir í London og einbýl- ishús í Öskjuhlíð. Héraðsdómur tók einnig fyrir ráðstöfun Ingvars á þremur bifreiðum, samtals að fjár- hæð 13,3 milljónir króna, sem hann afsalaði til Margrétar nokkrum dögum eftir að kaupmálinn var gerður. Margrét var sambýliskona Ingvars við undirritun kaupmál- ans og fékk að henni lokinni eign- irnar 31. Í dómi héraðsdóms kem- ur fram að þau hafi skömmu seinna gifst. Þrotabú Ingvars krafðist þess að Margréti yrði gert að skila eign- unum og féllst héraðsdómur á það. „Með kaupmálanum voru hlutir Ingvars í hlutafélögum og einkahlutafélögum, sem hann átti fyrir, eða verðmæti, sem kæmu í stað þeirra, auk nánar tilgreindra fasteigna í hans eigu, gerð að séreign stefndu [Margrétar, innskot blm.]. [...] Með þessum ráðstöfunum var á ótilhlýðilegan hátt komið í veg fyrir, að eignirnar stæðu kröfuhöfum til reiðu við fullnustu krafna sinna á hendur þrotamanni, og mátti stefndu vera kunnugt um það og aðstæður þrotamanns á þeim tíma sem sambýliskona hans,“ segir í dómi héraðsdóms. Vildi 900 milljónir Þrotabúið fór fyrir dómi fram á að Margréti yrði gert að greiða því 900 milljónir króna, eða lægri upp- hæð, ef af afhendingu eignanna yrði ekki. Guðjón Ármann Jónsson, skiptastjóri þrotabúsins og hæsta- réttarlögmaður, sagði í samtali við Morgunblaðið í nóvember 2014 að gögn búsins bentu til þess að Ingvar hefði ráðstafað til Margrét- ar mestum hluta eigna sinna án þess að greitt hefði verið fyrir þær. Í dómi héraðsdóms segir að kröfur á Ingvar hafi numið yfir 737 millj- ónum króna í lok árs 2008. Skuld- ir hans hafi aukist verulega í kjöl- far falls íslensku bankanna sem hafi að lokum leitt til gjaldþrota- skipta á búinu. Ingvar hafi því, að mati þrotabúsins, ekki átt eignir umfram skuldir þegar kaupmálinn var gerður og því ekki getað stað- ið við skuldbindingar sínar. Hann hafi því verið ógjaldfær, eða að minnsta kosti orðið það við undir- ritun kaupmálans, og það hafi Mar- grét „vitað eða mátt vita“. „Telur stefnandi [þrotabú Ingvars], að við þessar aðstæður hafi þrotamaður brugðist við með því að koma nánast öllum eignum sínum undan fullnustu lánardrottna og stefnda [Margrét] tekið meðvitaðan þátt í þeim aðgerðum,“ segir í dómnum. „Það komi berlega fram í kaupmálanum, hvað þær eignir varðar, sem þar eru færðar til stefndu [Margrétar], og megi sjá af sameiginlegu skattframtali hjónanna fyrir árið 2009, að ekkert gagngjald hafi komið fyrir hinar yfirfærðu bifreiðar, enda stefnda tekjulaus með öllu.“ Fluttu til Serbíu Málið var höfðað með stefnu skiptastjórans á hendur Margréti sem var birt í Lögbirtingarblaðinu þann 21. nóvember 2014. Samkvæmt dómnum hafði þá ekki tekist að birta henni stefnuna en hún og Ingvar fluttu lögheimili sitt til Belgrad, höfuðborgar Serbíu, í október 2014. Skiptastjóri hafi leitað „allra leiða“ til að koma fram birtingu stefnunnar. Stefnan hafi meðal annars verið þýdd á serbnesku og „aðgerðum verið hrundið af stað til birtingar hennar á uppgefnu heimili í Serbíu“. Óþekkt heimilisfang, slæmt aðgengi að þarlendum stjórnvöldum og óvissa um að Margrét hafi í raun flutt heimilisfesti sína til Serbíu, hafi takmarkað kosti til stefnubirtingar í málinu. „Fljótlega hafi þær rökstuddu efasemdir vaknað um að heimili stefndu [Margrétar] í Serbíu sam- kvæmt skráningu hjá Þjóðskrá væri ekki rétt og telur stefnandi nú, eft- ir mikla eftirgrennslan, hafið yfir allan vafa, að uppgefið heimilis- fang fyrirfinnist ekki,“ segir í dómi héraðsdóms þar sem komið er inn á skýrslu sem skiptastjórinn fékk serbnesku lögmannsstofuna HRLE til að vinna og lagði fyrir héraðs- dóm. Porsche og Benz Bifreiðarnar þrjár sem þrotabúið vill fá eru af gerðunum Mercedes Benz, fólksbifreið árgerð 2008, sportjeppinn Porsche Cayenne, árgerð 2004, og ellefu ára gömul fólksbifreið af gerðinni Chrysler 300C. Samkvæmt dómi héraðsdóms eru bifreiðarnar þrjár metnar á samtals 13,3 milljónir króna. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Fjölskyldufyrirtækið Ingvar er í dag stjórnarfor- maður heildverslunarinnar Karl K. Karlsson. Á meðal þeirra eigna sem þrotabú Ingvars krafðist er 16,9% hlutur í jarðafélaginu Lífsvali sem Landsbankinn tók yfir í ársbyrjun 2012. Félagið var stofnað 2002 og var gamli Landsbankinn einn af eigendum félagsins frá upphafi og fjárhagslegur bakhjarl þess. Lífsval var um tíma stærsta jarðafélag landsins og átti þá um 50 jarðir; bæði sauðfjárbú og kúabú víðs vegar um land. Þar á meðal var jörð á Flatey á Mýrum við Hornafjörð sem var um tíma auglýst til sölu á 480 milljónir króna. Eignir félagsins voru metnar á ellefu milljarða króna í september 2012. Á meðal annarra eigenda Lífsvals voru Guðmundur A. Birgisson, kenndur við Núp, og Ólafur I. Wernersson. Átti hlut í stærsta jarðafélagi landsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.