Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 15
Fréttir 15Helgarblað 16.–19. október 2015
Nýbyggt einbýlishús, á Njálsgötu 33B, til leigu
Á efri hæð: 2 herbergi og baðherbergi.
Á neðri hæð: anddyri, stofa og eldhús.
Í kjallara: þvottahús og stórt geymslurými.
Í allt, um það bil, 130 m².
Reykingar og gæludýrahald bannað
Hafið samband við Unni Guðjónsdóttur
í síma 551-2596 / 868-2726.
Netfang: kinaklubbur@simnet.is
Leigan er 250 þúsund kr. á mánuði
Hús til leigu
Dæmd til að skila fyrirtækjum, íbúðum og lúxusbílum
n Héraðsdómur féllst á beiðni þrotabús Ingvars J. Karlssonar n Beiðni Margrétar Stefánsdóttur, eiginkonu hans, um endurupptöku verður tekin fyrir í dag n Deilt um alls 31 eign
Héraðsdómur Reykjavíkur samþykkti að
rifta tilfærslum á hlutum eða öllu hlutafé
í 22 einkahluta- eða hlutafélögum til
Margrétar Stefánsdóttur sem voru fram
að 28. janúar 2009 að fullu eða að hluta
í eigu Ingvars J. Karlssonar. Félögin sem
um ræðir eru:
n Dvöl ehf. (50% hlutur)
n Dyrfjöll ehf. (25% hlutur)*
n Eignarhaldsfélagið Land ehf.
n Eignarhaldsfélagið Skólabrú 1 ehf.
(50% hlutur)*
n Eldborg ehf.*
n Fjárhirðir ehf. (25% hlutur)
n Haukadalur ehf. (33,33% hlutur)*
n Hveraland ehf. (10% hlutur)
n Íslandssport ehf.*
n Karl K. Karlsson (78% hlutur)*
n Hveraland ehf.
n Landneminn ehf.
n Lífsval ehf. (16,9% hlutur)
n Orkuveitur ehf. (50% hlutur)*
n Rann ehf.*
n Skjöldólfsstaðir ehf. (50% hlutur)
n Skúlatún 4 ehf.
n Vatnajökull ehf. (50% hlutur)*
n Velsæld ehf.
n Virðing hf. (12% hlutur)
n Vínandinn ehf.*
n Þverárfélagið ehf. (5% hlutur)
* Ingvar situr í dag í stjórn félagsins eða er
framkvæmdastjóri þess eða prókúruhafi.
Stórtækur fyrir hrun Ingvar J. Karlsson
er menntaður læknir og var áberandi
fjárfestir á árunum fyrir hrun. Myndin er frá
árinu 1987.
Þetta eru félögin 22
„Meðal gagna málsins er að
finna orðsendingu sendiráðs Lýð-
veldisins Serbíu til Sendiráðs Ís-
lands vegna málsins, þar sem til-
kynnt er niðurstaða könnunar
á lögheimili eða aðsetri stefnda
[Margrétar] í Serbíu, en samkvæmt
tilkynningunni er stefnda ekki til í
skrám þar til bærra stofnana í Serb-
íu.“
Stýrir félögunum
Kaupmálinn sem Ingvar og Mar-
grét gerðu var samkvæmt dómnum
að fjárhæð 448 milljónir króna. Eins
og áður segir var um 28 eignir að
ræða fyrir utan bifreiðarnar þrjár.
Ingvar er í dag stjórnarformað-
ur tveggja félaga sem eru að hluta
til í eigu Margrétar; heildsölunnar
Karl K. Karlsson og Dyrfjalla ehf.
Samkvæmt samþykktum Dyrfjalla
er tilgangur félagsins kaup, sala,
rekstur og leiga fasteigna og jarð-
hitaréttinda, lánastarfsemi og við-
skipti með hlutabréf. Að auki situr
hann í stjórnum fimm annarra fé-
laga sem Margrét á að fullu eða að
hluta. Hann er einnig skráður fram-
kvæmdastjóri sex félaga sem þrota-
bú hans krafðist fyrir héraðsdómi
og prókúruhafi ellefu félaga.
Ekki náðist í Ingvar eða Mar-
gréti við vinnslu fréttarinnar þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Reimar
Pétursson, lögmaður Margrétar,
vildi ekki tjá sig um ástæðu þess af
hverju hún fór fram á endurupp-
töku málsins eða um málið að öðru
leyti. Samkvæmt heimildum DV er
ástæðan sú að Margrét fullyrðir að
hún hafi aldrei vitað af málinu. Eins
og kemur fram í dómi héraðsdóms
þá bar að dæma málið eftir kröfum
og málatilbúnaði þrotabúsins og þá
út frá þeim gögnum sem það lagði
fyrir dóminn. Fer Margrét fram á að
málinu verði vísað frá dómi þar sem
hún hafi ekki heyrt af því fyrr en eftir
að dómurinn féll. Beiðni um endur-
upptöku málsins var lögð fram 1.
október en samkvæmt lögum um
einkamál er hægt að óska eftir því
að réttaráhrif héraðsdóms verði
fryst á meðan tekist er um málið á
nýjan leik. Fyrirtaka í málinu verður
eins og áður segir föstudaginn 16.
október og verður endurupptöku-
beiðnin þá tekin fyrir. n
Hesthús og
íbúðir í London
Samkvæmt dómi héraðsdóms er ráð-
stöfunum Ingvars á fjórum fasteignum
hér á landi og tveimur íbúðum í London
rift. Um er að ræða einbýlishús í Öskju-
hlíð, 50% eignarhluta í jörðinni Miðdali
1 í Mosfellsbæ, íbúð við Skipagötu 9 á
Akureyri og hesthús í Víðidal í Reykjavík.
Íbúðirnar tvær í London eru í South
Kensington-hverfi borgarinnar.