Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Blaðsíða 18
Helgarblað 16.–19. október 201518 Umræða
„Íslendingar eru mesta frjálsíþróttaþjóð heims“
n Clausen-bræður urðu átrúnaðargoð heillar kynslóðar n 65 ár liðin frá einni fræknustu íþróttaför Íslendinga
T
ímabilið frá 1946 og fram á
seinni hluta sjötta áratugar-
ins hefur lengi verið kallað
„gullöld frjálsra íþrótta“ hér
á landi og víst er að hvorki
fyrr né síðar hafa Íslendingar átt
jafnmarga afreksmenn og í þá daga.
Um tíma áttu Íslendingar sex sprett-
hlaupara sem voru meðal þeirra allra
bestu í heimi. Í hópi þessara afreks-
manna voru Clausen-bræður, sem
urðu átrúnaðargoð heillar kynslóðar
á Íslandi og líklega hafa sjaldan verið
uppi tvíburabræður í íþróttasögunni
sem náð hafa viðlíka árangri.
Efnilegir íþróttamenn koma
fram
Frjálsíþróttamót voru gríðarlega vel
sótt á þessum árum og nutu jafn-
vel meiri hylli en landskeppnir í
knattspyrnu og áhorfendaskarinn
fyllti Melavöllinn allan hringinn.
Þegar í upphafi fimmta áratugarins
tók að bera á mjög efnilegum frjáls-
íþróttamönnum hér á landi, ekki
hvað síst innan Íþróttafélags Reykja-
víkur (ÍR). Árið 1945 var sænski þjálf-
arinn Georg Bergfors ráðinn til ÍR og
innleiddi hann ýmsar nýjungar sem
urðu til að stórbæta árangur iðk-
enda.
Tveimur árum fyrr hófu hin-
ir fimmtán ára gömlu tvíburabræð-
ur Örn og Haukur Clausen að mæta
á frjálsíþróttanámskeið sem ÍR stóð
fyrir í Vatnsmýrinni. Þeir voru þá í
öðrum flokki í knattspyrnu en sögðu
skilið við hana til að einbeita sér að
frjálsíþróttum. Árið 1946 náðu þeir
báðir lágmarksárangri fyrir keppni
á Evrópumeistaramótinu, en voru
taldir of ungir til að senda þá til
keppni.
„Heia Island“
Árið 1947 hélt frjálsíþróttalið ÍR í
keppnisför til Norðurlanda og með
í för voru hinir átján ára gömlu tví-
burabræður Haukur og Örn Clausen,
þá nemendur við Menntaskólann
í Reykjavík. Á móti á Bislett-leik-
vanginum í Ósló setti boðhlaupssveit
ÍR Íslandsmet, 43,2 sekúndur, en
hana skipuðu Finnbjörn Þorvalds-
son, Reynir Sigurðsson og Clausen-
bræður. Haukur átti einstakan enda-
sprett í boðhlaupinu, en hann tók
við keflinu í fjórða sæti og vann upp
margra metra forskot norsku sveit-
anna.
Frá Ósló var haldið á Norður-
landameistaramótið í Stokkhólmi
þar sem Haukur keppti í 200 metra
hlaupi. Hann átti slakt viðbragð í
hlaupinu og var síðastur eftir 50
metra. Þegar 75 metrar voru eftir
í markið vann hann verulega á og
varð fyrstur í mark öllum að óvör-
um og að minnsta kosti einum metra
á undan næsta manni. Tíminn var
nýtt Íslandsmet, 21,9 sekúndur.
„Heia-heia-heia-Island,heia-Island“
glumdi um völlinn og enginn vafi á
því hvaða keppandi mótsins naut
mestrar hylli áhorfenda.
Ólympíuleikarnir 1948
Árið 1948 stóðu fyrir dyrum
Ólympíuleikar í Lundúnum, hin-
ir fyrstu frá stríðslokum, og réð ís-
lenska ólympíunefndin til landsins
Svíann Olle Ekberg ári fyrir leikana
til að sjá um þjálfun íslensku kepp-
endanna. Jón Kaldal, sem sæti átti í
nefndinni, sagði síðar svo frá að Ek-
berg hefði látið svo um mælt eftir
fyrstu æfinguna: „Nú er ég búinn að
sjá mesta tugþrautarefni sem ég hef
nokkurn tímann séð.“ Þar átti hann
við Örn Clausen.
Alls héldu 14 íslenskir frjáls-
íþróttamenn
til keppni á
Ólympíuleik-
unum í Lund-
únum. Þeirra
á meðal voru
bræðurnir Örn
og Haukur
Clausen. Örn
náði þar best-
um árangri Ís-
lendinganna
og varð tólfti í
tugþraut með
6.444 stig.
Haukur varð
annar í sín-
um riðli í 100
metra hlaupi
og komst upp í
milliriðil. Gengi
Íslendinganna
á leikunum var lakara en búist var
við, en nokkrir af fremstu frjáls-
íþróttamönnunum bættu það upp
með keppnisferð um Norðurlönd
eftir leikana og voru Clausen-bræð-
ur með í för.
EM í Brussel
Á Evrópumeistaramótinu í Brussel
1950 gerðu Íslendingar sér vonir
um sex verðlaun í 100, 200 og 400
metra hlaupum, 4×100 metra boð-
hlaupi, 110 metra grindahlaupi
og tugþraut, en alls kepptu tíu Ís-
lendingar á mótinu. Þar urðu Torfi
Bryngeirsson og Gunnar Huseby
Evrópumeistarar í langstökki og
kúluvarpi. Fyrir mótið voru mikl-
ar væntingar til þess að Haukur
ynni til gullverðlauna í 200 metra
hlaupinu, en fyrr um sumarið, nán-
ar tiltekið 17. júní, var háð mót sem
Ómar Þ. Ragnarsson hefur kall-
að „mesta spretthlaup Íslands-
sögunnar“, þar röðuðu þeir sér svo
í efstu sætin Hörður Haraldsson á
21,5 sekúndum, Haukur á 21,6, Ás-
mundur Bjarnason 21,7 og Guð-
mundur Lárusson 21,8!
Örn náði gríðarlega góðum
árangri í tugþraut í Brussel og
varð ann-
ar, þrátt fyr-
ir að íþrótta-
taska hans
hafi gleymst
í Reykjavík.
Hann fékk
skó lánaða
frá hinum og
þessum, en
Jóel Sigurðs-
son lánaði
honum skó
fyrir kast-
greinarn-
ar og voru
þeir tveimur
númerum
of stórir!
Svo fór
þó að stjórn
Frjáls-
íþróttasambandsins meinaði
Hauki að keppa í 200 metra hlaupi
á Evrópumeistaramótinu. Ástæð-
an sem gefin var upp fyrir keppnis-
banninu var að Haukur hafði vegna
veikinda ekki getað tekið þátt í úr-
tökumóti fyrir EM. Hér lagðist for-
ysta Frjálsíþróttasambandsins lágt,
enda óumdeilt að Haukur væri
meðal bestu 200 metra hlaupara
álfunnar og ætti möguleika á verð-
launasæti. Haukur keppti samt sem
áður í 100 metra hlaupi og varð
fimmti. Því næst brá hann sér til
Svíþjóðar þar sem hann náði besta
tíma ársins í 200 metra hlaupi í
Björn Jón Bragason
bjornjon@dv.is
Fréttir úr fortíð
Miklir námsmenn Örn nam lögfræði en Haukur varð tannlæknir.
Listrænir taktar Clausen-
bræður leika fjórhent á píanó.
Atvinna í boði á einum
skemmtilegasta
vinnustað landsins
DV óskar eftir góðu og jákvæðu símasölufólki
Umsóknir sendist á magnushelgi@dv.is
→ Söluhæfileikar eru mjög mikilvægir → Ófeimin/n að tala við
fólk í gegnum síma → Reynsla af svipuðum störfum er kostur
Laun eru árangurstengd. Góð laun í boði fyrir góðan og duglegan sölumann.