Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 23
Helgarblað 16.–19. október 2015 Umræða 23
var miklu mikilvægara og hefur dug-
að manni einna best, og það voru öll
kvæðin og söngvarnir sem við lærð-
um. Seinna, eftir að ég var búinn með
grunnskóla, þá fór eitthvað úr tísku að
láta krakka læra utan að; um það voru
höfð hæðileg orð um páfagaukalær-
dóm – þá var talið miklu mikilvægara
að kenna fólki skilning frekar en að
láta það romsa upp þulum sem það
kannski botnaði ekkert í. En þetta
held ég að hafi verið reginmisskiln-
ingur. Því að fátt er heilanum hollara
og skerpir betur gáfur en að leggja
eitthvað á minnið.
Ástarfaðir himinhæða
Þegar ég hugsa til ljóða og söngva
sem ég lærði í leikskóla og fyrstu
bekkjum barnaskóla þá hvarfl-
ar fyrst að mér að sumt af því hef ég
varla heyrt síðan; ætli fólk sé búið að
gleyma gömlu söngvunum? Syng-
ur til dæmis einhver núorðið: „Ást-
arfaðir himinhæða / heyr þú barna
þinna kvak / enn í dag og alla daga
/ í þinn náðarfaðm mig tak.“ Nú fara
eflaust einhverjir að tala um trúar-
innrætingu, en ég blæs á slíkt; falleg
ljóð eru bara falleg ljóð. Þegar mað-
ur kom á jólaböll í skólanum, þá var
sungið: „Ó hve dýrðlegt er að sjá /
alstirnd himinfesting blá / Þar sem
ljósin gullnu glitra / glöðu leika brosi
og titra. / Og oss benda upp til sín /
og oss beeenda uuupp til sín!“ Mað-
ur verður allur hátíðlegur innum sig
af að rifja þetta upp. Og auðvitað er
þetta bara brotabrot af þeim fínheit-
um sem fólk lærði þá.
Mér dugði ekki Sonartorrek
Þegar ég var kominn lengra, orðinn
11–12 ára, fékk ég kennara sem bjó
til svona skemmtilega keppni um
það hver í bekknum lærði flest kvæð-
in eða erindin; verðlaun í boði. Og
þá komst ég í mikið stuð, því að yf-
irleitt átti ég ekki annars þess kost
að vera hæstur eða bestur í neinu.
Þá lærði maður langa bálka eins og
Grettisljóð Matthíasar, Þórð kólka
eftir Thomsen, Áfanga Jóns Helga-
sonar og Urð og grjót Tómasar. Og
þegar ég var kominn í menntó var
ég enn í svo góðri æfingu eftir þetta
að þegar íslenskukennari í miðj-
um tíma svona spaugaði með okkur
ungu kynslóðina, sagði að myndi lík-
lega þýða lítið að láta okkur læra utan
að langa kvæðaflokka forna, eins og
þegar hann var í menntaskóla og
menn voru ennþá menn, og lærðu
að romsa upp Sonartorreki eða Ar-
inbjarnarkviðu Egils Skallagrímsson-
ar, þá gerði ég við hann veðmál um
að ég myndi læra Sonartorrek fyrir
næsta próf, öll 25 erindin, og spurði
hvort ég fengi ekki tíu á prófinu ef ég
myndi þá skrifa það upp? Hann féllst
ljúfmannlega á það. Og ég lærði allan
bálkinn, eða hélt mig gera það, skrif-
aði hann niður orð fyrir orð á næsta
prófi. En fékk ekki nema níu, minn-
ir mig. Og þóttist heldur illa svikinn,
spurði hverju þetta sætti?
Svona fúsk
Þessi góði kennari var allajafna
glaðlegur maður, en við þessa um-
kvörtun mína hvarf honum brosið
og hann bauð mér að koma og skoða
úrlausnarblaðið, þar sem ég hafði
skrifað allt kvæðið. Og benti mér á
að í 21. erindi hafði ég víxlað orðum
á milli fimmtu og sjöttu línu. Að vísu,
og það mildaði þessi afglöp nægi-
lega til að hann gat þó gefið mér 9,
þá breytti þetta ekki merkingunni
og eyðilagði ekki bragarháttinn. En!
Að öðru jöfnu ætti auðvitað að fella
menn fyrir svona fúsk.
Og það var auðvitað hárrétt hjá
honum. n
Það á að kenna krökkum kvæði
„Þá gerði ég við
hann veðmál um
að ég myndi læra Sonar-
torrek fyrir næsta próf,
öll 25 erindin, og spurði
hvort ég fengi ekki tíu á
prófinu ef ég myndi þá
skrifa það upp? Hann
féllst ljúfmannlega á það.
Benedikt Gröndal Málverk eftir Ólaf Th. Ólafsson.
Glerhreinsir • Gólfsápa • WC hreinsir
Rykmoppur og
sápuþykkni frá
Pioneer Eclipse
sem eru hágæða
amerískar hreinsi-
vörur.
Teppahreinsivörur
frá HOST
Hágæða hreinsivörur – hagaeda.is og marpol.is – Sími: 660 1942
Frábærar þýskar
ryksugur frá SEBO
Decitex er
merki
með allar
hugsanlegar
moppur og klúta í þrifin.
UNGER gluggaþvottavörur,
allt sem þarf í gluggaþvottErum einnig með:
Marpól er með
mikið úrval af
litlum frábærum
gólfþvottavélum
Tilboð fyrir hótel og
gistiheimili í apríl/maí!