Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Page 28
4 Bílablaðið - Kynningarblað Helgarblað 16.–19. október 2015
Bílasala Íslands
– traust viðskipti í 20 ár
Bílasalan í hjarta borgarinnar
V
ið stofnuðum þetta fyrir-
tæki fyrir 20 árum, þegar
við vorum tvítugir, og
hvorugur okkar hefur
unnið við neitt annað en
að selja bíla; ég byrjaði sem bíla-
sali 18 ára og er enn að,“ segir Ingi
Garðar Friðriksson, annar eigenda
Bílasölu Íslands, sem staðsett er í
hjarta borgarinnar, í Skógarhlíð 10,
105 Reykjavík.
Bílasala Íslands fagnar nú 20
ára afmæli, en fyrirtækið er með
sömu eigendur frá upphafi og hef-
ur ávallt verið rekið á sömu kenni-
tölu.
„Þetta er eina bílasalan vest-
an Elliðaáa, og fyrir íbúum í póst-
númerum 101, 105 og 108 er þetta
eina bílasalan á landinu því hing-
að koma þeir og leita ekki ann-
að. Fólkið hérna í hverfinu veit
ekki einu sinni að það eru bílasöl-
ur annars staðar,“ segir Ingi Garð-
ar. Hann bætir við að þrátt fyrir
netvæðinguna fari viðskiptin að
mestu fram á planinu.
„Sú gamla hefð Íslendinga að
rúnta um og skoða á bílasölum lif-
ir ennþá mjög góðu lífi hér. Hing-
að kemur mikið af fólki og skoðar
bíla á planinu hjá okkur,“ segir Ingi
Garðar. Hann bætir við að líklega
sé Bílasala Íslands aðalbílasalan
meðal landsbyggðarbúa, enda
kemur margt fólk utan af landi. Þar
nýtur fyrirtækið nálægðar sinnar
við flugvöllinn.
Bílasala Íslands býður mjög
fjölbreytt úrval af nýjum og not-
uðum bílum. Oft er verðið mjög
hagstætt, ekki síst vegna samstarfs
fyrirtækisins við Bílaleigu Flug-
leiða, sem er með mikið af sínum
bílaflota í sölu á Bílasölu Íslands.
Ingi Garðar segir að tilraunir
þeirra félaga til að opna sölustað
annars staðar í borginni hafi ekki
gengið vel, því „hingað og ekk-
ert annað vilja okkar viðskipta-
vinir koma“. Þess vegna ákváð-
um við bara að stækka við okkur
hér og unum glaðir áfram hér í
Skógarhlíðinni.“ n
Bílasala Íslands
Nóg af bílum á planinu
til að skoða.
Í þá gömlu góðu
daga Eigendur Bílasölu
Íslands á skrifstofu
fyrirtækisins árið 1995.