Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 31
 Kynningarblað - Bílablaðið 7Helgarblað 16.–19. október 2015 Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs – traust, gæði og þjónusta Hjólbarðaþjónusta síðan 1997 F lestir Grafarvogsbúar sem eiga bíl þekkja Hjólbarða- verkstæði Grafarvogs enda ganga þeir þar að traustri og góðri þjónustu vísri. Eigandi er Þorsteinn Lárusson en hann rek- ur einnig fyrirtækið Gúmmí- steypa. Rekstur beggja fyrirtækjanna virkar vel saman og stuðlar að því að viðskiptavin- ir hjólbarðaverk- stæðisins fá alltaf skjóta og góða þjónustu. Ekki þarf að panta dekkja- skipti fyrirfram held- ur er hægt að koma á staðinn og biðtími er yf- irleitt lítill sem enginn. Vinsælustu hjólbarðarnir eru Sailun frá Kína og General Tire frá Bandaríkjunum en báðar gerðirnar hafa reynst afar vel. „Við þjónum mest eigend- um fjölskyldubíla, jeppa og minni vinnubíla, en erum ekki með dekk fyrir stærri gerðir af hópferðabílum eða vinnubílum,“ segir Þorsteinn. Starfsmenn hans hafa áralanga reynslu úr faginu og viðskiptavinir geta því gengið að traustum vinnu- brögðum og fagmennsku vísri. „Við erum einnig með smur- stöð á staðnum, bremsuviðgerð- ir, dempara og gorma,“ segir Þor- steinn og er því hægt að fá mikla þjónustu fyrir bílinn á einum stað og það á mjög samkeppnishæfu verði. Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs er að Gylfaflöt 11, 112 Reykjavík. Sími 567 4467, netfang: gummi- steypa@gummisteypa.is n Eigandinn Þorsteinn Lárusson. Umhirða og viðhald sparar kostnað Bílaverkstæðið Bílvogur, Auðbrekku 17 Kópavogi B ílaverkstæðið Bílvogur er rótgróðið og traust verk- stæði sem hóf starfsemi árið 1986. Fyrirtækið hef- ur því verið starfandi í hart- nær 30 ár og hefur frá upphafi verið í Auðbrekku 17, í Kópavoginum. Bílvogur er gæðavottað af Bíl- greinasambandi Íslands og er jafn- framt löggilt endurskoðunarverk- stæði. Eigendur verkstæðisins eru félagarnir Björn og Ómar sem hafa starfað í faginu um áratugaskeið. „Hjá okkur starfa fagmenn með ára- langa reynslu og þekkingu. Reglu- lega sækja starfsmenn okkar viður- kennd námskeið til að læra um nýjungar og tækni í greininni. Við erum á bilinu 7–8 sem vinnum hér saman á verkstæðinu allt árið um kring.“ Reglubundin þjónustuskoðun og smurþjónusta er lykilatriði „Heimilisbíllinn hefur fyrir margt löngu tekið við hlutverkinu sem þarfasti þjónninn og gegnir mikil- vægu hlutverki í okkar daglega lífi. Til þess að fyrirbyggja bilun á bíln- um er best að fylgja reglubundinni þjónustuskoðun og smurþjónustu sem tilgreind er í þjónustubók bíls- ins. Sem dæmi um fyrirbyggjandi aðgerð má nefna skoðun á ástandi tímareimar, en mikill kostnaður getur hlotist af ef tímareim slitnar í bíl,“ segja þeir Björn og Ómar. Þeir Björn og Ómar segja tækni- framfarir hafa breytt miklu í bílavið- gerðum. Samhliða aukinni tækni er bilanaleit mun nákvæmari en áður og er því nauðsynlegt að vera með réttu græjurnar. „Allt frá upphafi höf- um við sérhæft okkur í viðgerðum á Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsu- bishi. Þessir bílar eru okkar sérfag,“ segja Björn og Ómar að lokum. Hjá Bílvogi er hægt að fá allar al- mennar bílaviðgerðir á fólksbílum eins og þjónustuskoðanir, bremsu- viðgerðir, pústviðgerðir, smurþjón- ustu, tímareimaskipti, umfelgun, aflestur í tölvu vegna bilanaleitar og endurskoðun. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.