Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 34
Helgarblað 16.–19. október 201526 Fólk Viðtal dæmalaust vinsælu barnaplötu Abbababb! árið 1997. Platan var uppfull af húmor og hressleika. En súr húmorinn er kannski einmitt eitt af því sem hefur verið eins og rauður þráður í gegnum öll verk Gunna. „Húmor er náttúrlega eitthvað sem má helst ekki vera ef maður á að vera tekinn alvar- lega. Svo það er ágætt að vera með hann, því ég hef engan áhuga á því að vera tekinn alvarlega. Það eru yfirleitt bara einhverjir vitleysingar sem ganga fyrir slíku.“ Þegar lífið drap rokk og rólið „Þegar það var alveg útséð að ég myndi ekki meika það, og Unun hætti, þá stóð ég á tímamót- um. Ég var hættur í bank- anum og vann sem blaðamaður.“ Á nýju ár- þúsundi drap lífið endanlega rokkið og rólið: „Ég kynnist konunni minni, Bjarnveigu Magnúsdóttur, eignaðist barn 38 ára og tók bílpróf sama ár. Fram að því hafði ekki verið neinn tími fyrir barn og enginn peningur fyrir bílprófi, ég var alltaf að eyða í einhverja tónlist. Þá geng ég inn í þennan hamar.“ Hefur fjölskyldan smitast af tón- listaráhug- anum? „Nei, ekkert svaka- lega. Kon- an mín hefur gaman af The Smiths – sem mér finnst hálfleiðinleg- ir. En ég get alltaf strítt henni af því að ég hafi séð þá á tónleik- um þegar þeir voru alveg ný- byrjaðir úti í London, 1984 eða 83, held ég. Ég var bara: hvaða drasl er þetta? Og ekki krakkarnir heldur. Strákurinn er á fullu í fótbolta. Ég er ekkert að reyna að pína þau til að hlusta. Það er svo slappt þegar foreldrarnir eru eitthvað að skipta sér af. „Vertu nú ekki alltaf í þessum fótbolta, hérna er plata með Birthday Party, Ramo- nes. Það er sko eitthvað fyrir þig!““ grínast Gunni. Hann segir það því ekki hafa ver- ið börnin hans tvö, átta og tólf ára, sem hafi ýtt honum út í það að taka þátt í Ísland got talent. „Nei, nei, það var bara Jón Gnarr. Hann hringdi í mig og talaði fyrst um þungarokks- hljómsveitirnar Sepultura og Nail- bomb í hálftíma. Svo undir lok- in spurði hann mig hvort ég vildi koma í þáttinn. Það var bara fínt því ég var að mestu leyti búinn að vinna þættina um popp- og rokk- sögu Íslands fyrir RÚV og var næst- um því farinn að skoða atvinnuaug- lýsingarnar með sívaxandi kvíða. Ég held samt að krakkarnir mínir hafi aldrei þótt ég eins spennandi og þegar ég sagði þeim að ég væri að fara í Ísland got talent.“ Snýr sér að myndlistinni Dr. Gunni hefur fengist við ýmislegt í gegnum tíð- ina fyrir utan að spila og gefa út tón- list. Spurn- ingaþátturinn Popppunkt- ur hefur ver- ið í sjónvarpi og útvarpi og gefinn út sem borð- spil, hann hefur starfað sem tón- listarblaðamaður, skrifað bækur og sjónvarpsþáttaröð um íslenska tónlistarsögu. „Þegar ég byrjaði að skrifa um tónlist fannst mér íslensk popp- skrif vera á eitthvað svo lélegum stað og hélt að ég gæti alveg eins gert þetta. Það er alltaf það sem ég hef hugsað. Ef mér finnst ekki ver- ið að semja nógu skemmtilega tón- list hérna, verð ég bara að gera það sjálfur. Ef það hefur enginn skrifað neina almennilega bók um tónlist, þá verð ég bara að gera það sjálfur,“ segir Gunni. Og enn einu sinni ætlar hann að venda kvæði sínu í kross og reyna sig á nýjum vettvangi. „Næsta verk- efni sem ég gæti farið í væri að halda málverkasýningu á Mokka. Ég er aðeins byrjaður að mála, um- slagið á nýju plötunni minni er í þessum stíl, augnablik úr lífi mínu.“ Hefur þú gert einhverja mynd- list áður? „Ég gerði einhverjar myndasögur fyrir mörgum árum þegar ég var með áhuga fyrir því. Það kom allt út í Gisp! og var meira að segja sýnt í Listasafni Reykjavík- ur og á Kjarvalsstöðum. Það hefur aldrei stoppað mig að ég geti það ekki beint. Það er ekkert mál að gera hvað sem er. Ég hef aldrei haft þessa minnimáttarkennd eins og hrjáir því miður oft konur. Eins og það þurfi allt að vera svo fullkomið til að þær láti vaða. Ég er ekki með neina fullkomnunaráráttu. Ég bara byrja og enda“ segir doktorinn. n Trúlofunarhringar - okkar hönnun og smíði jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind Snýr sér að málverkinu Næsta verkefni Dr. Gunna er að halda sína fyrstu málverkasýningu. Mynd Sigtryggur Ari „Ég tók kannski smá sukk þegar ég var í Unun, fótbrotnaði undan einhverjum klæð- skiptingi í Bjark- arpartíi og þurfti að spila með gifs á Wembley, missti af rútunni og kom of seint á tónlistar- hátíðina Uxa. nýbylgja Svart/hvítur draumur í London árið 1988. unun Dr. Gunni ætlaði að meika það í útlöndum með popprokksveitinni Unun á tíunda áratugnum. Í sjoppu Eitt af mál- verkum Dr. Gunna prýðir umslag nýju plötunnar. Verkið er unnið eftir ljósmynd sem var tekin á kaffihúsinu í Kolaportinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.