Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Side 42
Helgarblað 16.–19. október 201534 Skrýtið Sakamál
Í
morgunsárið 27. júní, 1999, fund-
ust lík fjögurra manneskja á
heimili við Kelvin-veg í þorpinu
Clydach í Swansea í Wales. Um
var að ræða Doris Dawson, átt-
ræða fatlaða konu, dóttur hennar,
Mandy Powers, 34 ára, og tvær dætur
Mandy, Katie, 10 ára, og Emily, 8 ára.
Allar höfðu verið barðar til dauðs
og síðan hafði eldur verið borinn að
húsinu.
Síðar kom í ljós að í þungamiðju
málsins voru þrjár manneskjur;
Mandy Powers, fertugur brotajárns-
höndlari að nafni David Morris, frá
Craig Cefn Parc í Swansea-dalnum,
og Alison Lewis, fyrrverandi lög-
reglukona frá Pontardawe, einnig í
Swansea-dalnum.
Ástarþríhyrningur
Þannig var mál með vexti að Mandy
hafði átt í ástarsambandi við David
um skeið. Síðan hófst ástarsamband
hjá henni og Alison og David fékk
reisupassann.
David tók höfnuninni illa, vægast
sagt, og gekk berserksgang á heim-
ili Mandy vopnaður trefjaglersröri.
Gekk hann svo vasklega fram að síð-
ar, þegar myndir af líkunum voru
sýndar við réttarhöld í málinu, var
varað sérstaklega við því sem þær
sýndu.
Við rannsókn málsins neitaði
David að vera með nokkrum hætti
bendlaður við morðin á þremur kyn-
slóðum sömu fjölskyldunnar.
Einnig kom eiginmaður Alison af
fjöllum þegar upplýstist um ástar-
samband hennar og Mandy Powers.
Vildi sameinast Mandy
Þegar Alison fékk þau tíðindi að ást-
kona hennar og öll fjölskylda hennar
hefðu verið myrt fékk hún svo mikið
áfall að hún gerði tilraun til að henda
sér út um glugga og svipta sig þannig
lífi.
Ef ekki hefði verið fyrir vin henn-
ar, sem hafði reynt að hugga hana, og
eiginmann hefði það tekist. Á síðustu
stundu tókst þeim að hindra Alison í
áformum hennar þar sem hún stóð
við svefnherbergisgluggann og hróp-
aði að hún vildi „sameinast Mandy“.
Vert er að halda því til haga að
hjónabandi Alison og eiginmanns
hennar varð ekki bjargað eftir að
vitn eskjan um ástarsamband henn-
ar og Mandy kom upp á yfirborðið.
Einnig voru þau innan árs frá
morðunum handtekin grunuð um
aðild, en síðar sleppt án ákæru.
Blóðug gullkeðja
David Morris var ekki handtekinn
fyrr en í mars árið 2001 og þremur
árum eftir morðin hófust loks rétt-
arhöld í málinu, í apríl 2002. Eitt
helsta sönnunargagn ákæruvaldsins
var gullhálskeðja sem fannst, böðuð
blóði, á vettvangi glæpsins. Greini-
legt var að keðjan hafði slitnað í átök-
um og upphaflega þvertók David fyr-
ir að eiga hana.
En rannsókn leiddi í ljós að á
keðjunni var að finna málningu sem
samsvaraði málningu sem var að
finna á innréttingum í eldhúsinu á
heimilis Davids og á endanum viður-
kenndi hann að keðjan væri hans.
Glórulaus ofsi
Einnig kom upp úr kafinu að David
hafði lagt hendur á Mandy meðan á
sambandi þeirra stóð og hafði hún
látið í ljósi hræðslu vegna skapofsa
hans.
Af verksummerkjum mátti sjá að
ótti Mandy vegna ofsa Davids byggði
ekki á órum. Þegar hann myrti
Mandy lét hann ekki nægja færri en
38 högg með rörinu og tróð síðan
kynlífsleikfangi inn í lífvana líkama
hennar.
Móðir Mandy var ein heima og
var myrt þar sem hún lá í rúmi sínu
og síðan kveikt í líkinu. Síðan beið
David þess að Mandy kæmi heim
með dætrum sínum og myrti þær
hverja á fætur annarri. Lík annarrar
dóttur Mandy fannst á stigapallinum
en lík hinnar í svefnherbergi systr-
anna.
Dómur og áfrýjun
Árið 2002 fékk David Morris fjórfald-
an lífstíðardóm fyrir morðin á Mandy
Powers, móður hennar og tveim-
ur dætrum. David fékk, árið 2005,
heimild til áfrýjunar og var það úr-
skurður dómara við áfrýjunardóm-
stólinn að áhöld væru um að David
hefði fengið sanngjörn réttarhöld og
sakfelling hans ekki vel grundvölluð.
Í ágúst 2006 lauk nýjum rétt-
arhöldum yfir David Morris. Lyktir
urðu þær að upprunalegur fjórfaldur
lífstíðardómur skyldi standa óhagg-
aður.
Enn og aftur dró til tíðinda í júlí
2007. Þá féll sá úrskurður að sak-
felling skyldi standa en fjórfald-
ur lífstíðardómur, sem hafði fall-
ið í tvígang, var ógiltur. Nýr dómur
hljóðaði upp á 32 ár á bak við lás og
slá … svo mörg voru þau orð. n
Fjögur Fórnarlömb
– þrjár kynslóðir
n David Morris tók höfnun vægast sagt illa n Gekk berserksgang með röri
Mandy Powers Hafnaði manni og galt
fyrir með lífi sínu.
David Morris
Gekk berserksgang
eftir að hafa fengið
reisupassann.
„Þegar hann myrti
Mandy lét hann
ekki nægja færri en 38
högg með rörinu.
30% AFSLÁTTUR
Í ÖRFÁA DAGA!
H E I L S U R Ú M
ROYAL AVIANA
Queen Size (153x203 cm) þrýstijöfnunardýna
Verð áður 164.701 kr.
VERÐ NÚ 115.290 kr.
A
R
G
H
!!!
0
21
01
5