Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2015, Qupperneq 45
Helgarblað 16.–19. október 2015 Lífsstíll 37 Allt á einum stað: Prentun, merkingar og frágangur. Inni- og útimerkingar. Segl- og límmiðaprentun. Ljósmynda-, striga- og segulprentun. Textaskraut, sandblástur, GSM hulstur og margt fleira... Ein gersema höfuð- borgarinnar stækkar n Hótel Borg fær andlitslyftingu H ótel Borg hefur verið opn- að á ný eftir stækkun og breytingar. Það var árið 1930 sem þetta ástkæra hótel var byggt í hjarta miðborgar- innar og stendur það enn tignarlegt við Austurvöll. Á dögunum var boð- ið í opið hús á hótelinu í tilefni þess að framkvæmdum við stækkun þess var lokið. Nú hefur verið bætt við 43 herbergjum, veislu- og fundarsölum, glæsilegri heilsulind og líkamsrækt- araðstöðu. Hönnunarhornið kíkti við og birtir hér myndir Sigtryggs Ara ljós- myndara af gullfallegum rýmum sem innréttuð eru í art deco-stíl, með tilliti til upprunalegs hluta hótels- ins, en það hefur alltaf þótt einstakt í byggingarstíl og hönnun. Það var Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, sem hafði stílinn að leiðar- ljósi við hönnun hótelsins á sínum tíma. Á hótelinu eru sérsmíðuð hús- gögn í þeim stíl en art deco kemur fram jafnvel í minnstu smáatriðum. Sjón er sögu ríkari. n Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Sirkus fjármagnaði Hótel Borg Merkileg saga Hótel Borg var fyrsta lúxushótelið á Íslandi byggt í stórglæsilegum art deco-stíl þegar enn voru kindur á beit við Austurvöll. Byggingin hefur frá upphafi verið tákn menningar í borginni og skil- greind sem ein gersema borgarinnar, ekki að ástæðulausu. Það var hinn þrælsterki Jóhannes Jós- efsson glímukappi sem lét byggja hótelið. Hann fæddist árið 1883 og varð fljótt landsþekktur glímukappi. Hann keppti á Ólympíuleikum í London árið 1908 og hreppti fjórða sæti einungis 25 ára gamall. Eftir það ferðaðist hann um heiminn og endaði ferðalagið í Ameríku. Þá fór hann að starfa hjá hinum heimsfrægu Barnum og Bailey í „Barnum & Baileys Gr atest Show on Earth“ ferðasirkusi. Þessar glæsilegu sirkussýningar voru engu líkar og á þeim slóst Jóhannes við aðra kappa, meðal annars vopnaður beittum hnífum. Á sýningunum mátti sjá margt sem á þessum tímum þótti furðu- legt svo sem síamstvíbura, hafmeyjar og stærstu dýr í heimi. Jóhannes aflaði sér mikilla tekna á þessum tíma og sneri heim ríkur maður árið 1927. Ári seinna hófust framkvæmdir við Hótel Borg. Hugsað út í hvert smáatriði Art deco-stíllinn er áberandi og má sjá stíl- inn víða á hótelinu. Meira að segja hillur á veggjum hótelsins verða að fallegu art deco-listaverki. Mynd Sigtryggur Ari Fallegt veggfóður grípur augað Hér eru mildir og fallegir litir notaðir í bland við gyllta veggi og gulllista í lofti. Mynd Sigtryggur Ari Falleg húsgöng Húsgögnin á herbergjum hótelsins eru sérhönnuð og -smíðuð. Aðlaðandi heilsulind Í heilsulindinni geta gestir slappað af og dundað sér við að skoða gamlar ljósmyndir sem tengjast sundmenningu Íslendinga. Mynd Sigtryggur Ari Standard svíta Hér er eitt af 43 herbergjum sem var bætt við hótelið á dögunum. Í her- bergjunum eru annaðhvort venjulegar eða franskar svalir. Mynd Sigtryggur Ari glæsilegur bar Nýi barinn fyrir utan gyllta salinn. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.