Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Blaðsíða 16
Helgarblað 20.–23. nóvember 2015
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, Opið virka daga kl. 10–18
Innrammarinn.is
PANTAÐU Á NETINU
Project1_Lay
out 1 24/11/
2011 12:58
Page 1
Gæðavottuð innrömmun
á góðu verði
Úrval tilbúinna ramma
og myndaalbúma
Sérsmíðaðir rammar
Innrammarinn býður upp á alla almenna
innrömmunarþjónustu. Boðið er upp á sérsmíðaða
ramma úr tré eða áli. Góður rammi eykur fegurð
listaverka rétt eins og gull og silfur auðga fegurð
eðalsteina í skartgripum.
Tilbúnir rammar eru
hagkvæmur kostur til
að ramma inn málverk,
ljósmyndir, pastelmyndir
og vatnslitamyndir.
Innrammarinn ehf fylgir
gæðastöðlum sem
“The Fine Art Trade
Guild” í Bretlandi gefur
út. Starfsmenn Innram-
marans hafa staðist
gæðapróf Fine Art
Trade Guild (GCF).
Íslenska kvennalands-
liðið með góðan sigur
n Kempurnar unnu n Hræðileg mistök heimsmeistarans Magnus Carlsen
I
like the moment when I break
a man's ego,“ eru fræg ummæli
Bobbys Fischer og óhætt er að
fullyrða að allir skákmenn kann-
ist við tilfinninguna, bæði í hlut-
verki sigurvegara eða fórnarlambs.
Það getur verið ótrúlega erfitt að
horfast í augu við það að leikið hafi
verið á mann, að hugarafl þitt hafi
ekki staðist hugarafl andstæðings-
ins. Afleikirnir eða hugsanavillurnar
geta setið lengi í mönnum og mistök
heimsmeistarans Magnus Carlsen
í fimmtu umferð Evrópumótsins
munu eflaust fylgja honum alla tíð.
Magnus lék af sér manni í ein-
faldri stöðu gegn svissneska stór-
meistaranum Yannick Pelletier og
munu mistökin hiklaust vera ofar-
lega á lista yfir verstu mistök sem
nokkur ríkjandi heimsmeistari hef-
ur gert. Þau eru líka algjörlega úr
karakter við Carlsen því snilligáfa
hans er slík að hann gerir í raun
aldrei kæruleysisleg mistök sem
þessi.
Áhorfendur og keppendur voru
í raun í hálfgerðu áfalli þegar at-
vikið átti sér og sama má segja um
Carlsen sem hristi hausinn dap-
ur í bragði. Í stað þess að gefa strax
tók hann sér tíma til þess að leika
nokkra leiki og róa sig niður þar til
óumflýjanleg uppgjöf hans var stað-
fest. Hann bar sig hins vegar nokk-
uð vel eftir uppgjöfina, hló og hristi
hausinn með öðrum liðsmönnum
Noregs en hann var auðsjáanlega
særður.
Þrátt fyrir tap Carlsen náðu Norð-
mennirnir að vinna Svisslendinga
og enn á ný var það ungstirnið
Aryan Tari sem var hetjan en hann
vann enn einn sigurinn. Þessi 16
ára gamli drengur verður væntan-
lega krýndur stórmeistari í lok móts.
Norðmenn eru því komnir á efstu
borðin og mæta sterku liði Ungverja
í næstu umferð.
Sýnd veiði en ekki gefin
Aserar, ríkjandi Evrópumeistarar, og
Rússar skildu jöfn, 2-2, á efsta borði.
Allar skákirnar enduðu með jafntefli
eftir mikla baráttu. Rússar eru enn
efstir með 9 stig í mótinu en Georgía,
Frakkland og Úkraína eru næst með
8 stig. Aserar eru svo í hópi þjóða
sem eru skammt undan með 7 stig.
Íslenska liðinu hefur gengið illa
eftir frábæra byrjun og hrakfar-
irnar héldu áfram gegn sterku liði
Grikkja. Liðið tapaði með minnsta
mun og var það Henrik Danielsen
sem þurfti að lúta í gras eftir að hafa
þurft að þjást í erfiðu endatafli. Þetta
var annar ósigur íslenska liðsins í
röð með minnsta mun í viðureign-
um sem allt eins hefðu getað lent
okkar megin.
Kempurnar unnu frábæran sig-
ur með minnsta mun gegn góðu liði
Austurríkismanna. Jóhann og Jón L.
völtuðu yfir andstæðinga sína og var
sérstaklega gaman að fylgjast með
sigri Jóhanns á hinum sterka David
Shengelia. Margeir gerði jafntefli
en sigurinn hefði getað orðið enn
stærri því Helgi náði með gríðar-
legri baráttu að komast út í fræði-
legt jafntefli sem hann lék því miður
niður að lokum.
Íslensku kempurnar eru í 24.–28.
sæti þegar mótið er rúmlega hálfn-
að en a-liðið í 30.–31.sæti. Ef það
yrði lokastaðan þá yrðu það mikil
vonbrigði, en nægur tími er til þess
að snúa gengi liðsins við. Í 6. umferð
tefla kempurnar gegn stórmeistara-
liði Moldavíu og a-liðið teflir gegn
Færeyingum. Frændur okkar eru
sýnd veiði en ekki gefin en það væri
stórslys ef að sigur myndi ekki vinn-
ast í þessari viðureign.
Hrund vann sína fyrstu skák
Frábært gengi kvennasveitarinnar
hélt áfram en áður hafði liðið gert
jafntefli við Svíþjóð og Belgíu. Nú
vannst hins vegar sannfærandi sigur
á norsku stúlkunum sem eru mun
reyndari á þessum vettvangi en okk-
ar lið. Sigurinn hefði getað orðið enn
stærri því Elsa María glutraði niður
steindauðu jafntefli á sárgrætilegan
hátt eftir langa baráttu. Guðlaug og
Lenka völtuðu gjörsamlega yfir and-
stæðinga sína. Tíðindi dagsins voru
hins vegar þau að hin 19 ára gamla
Hrund Hauksdóttir vann sína fyrstu
skák. Hrund er öflug skákkona en
vantar stundum sjálfstraust og það
er vonandi að þessi góði sigur gefi
henni trúna. Hún er margfalt betri
en hún heldur.
Eins og vænti mátti unnu Rússar
öruggan sigur á franska kvenna-
liðinu, 3-1. Þar er heimsmeistarinn
fyrrverandi, Alexandra Kosteniuk,
í miklu stuði með 3½ vinning af 4.
Úkraínukonur unnu Rúmena 3-1
og Georgía marði Pólland 2½-1½.
Staðan er þannig að Rússland er
efst í kvennaflokki með 10 stig, fullt
hús stiga, en Úkraína og Georgía
eru í 2.–3. sæti. Úkraínukonur tefla
við Rússa í sjöttu umferð þar sem
heimsmeistarinn Maria Muzychuk
mætir Kostenuik í skák sem beðið
er með mikilli eftirvæntingu. Rúss-
nesku konurnar tryggja sér nánast
sigur með sigri og því er allt undir. n
16 Fréttir
Ísland – Grikkland
n Héðinn - I. Papaioannou ½–½
n Hjörvar Steinn – H. Banikas ½–½
n Henrik – D. Mastrovasilis 0–1
n Guðmundur – I. Nikolaidis ½–½
Ísland kempur – Austurríki
n Helgi – M. Ragger 0–1
n Jóhann – D. Shengelia 1–0
n Jón L. – M. Schachinger 1–0
n Margeir – G. Froewis ½–½
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Maria Muzychuk Heimsmeistari kvenna þarf að leiða lið sitt af krafti gegn rússneska
stórveldinu í kvennaflokki.
Ísland - Grikkland Fremst eru Héðinn
og Hjörvar við upphaf 5. umferðar gegn
grískum stórmeisturum.
Við upphaf skákar Pelletier vann
ótrúlegan sigur á heimsmeistaranum
Hetjur dagsins Hrund vann sína fyrstu skák á mótinu en Guðlaug hélt áfram að mala
andstæðinga sína.
Úkraínski snillingurinn Ivanchuk
Vassily teflir yfirleitt glerfínn í jakkafötum en
þegar hann er í þannig skapi þá mætir hann í
uppáhalds Real Madrid-jakkanum sínum.
Ísland – Noregur
n Lenka Ptacnikova – S.B Sahl 1–0
n Elsa María Kristínardóttir – Niina Koskela 0–1
n Guðlaug Þorsteinsdóttir – Monika Machlik 1–0
n Hrund Hauksdóttir – Ellisiv Reppen 1–0