Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2015, Side 54
46 Fólk Helgarblað 20.–23. nóvember 2015 Kjötiðnaðarmaður varð gítarsmiður Unnar Örn nennti ekki að sitja auðum höndum eftir að hafa eyðilagt á sér bakið Þ að lætur ekki mikið yfir sér gítarsmíðaverkstæði Geysir Guitars, sem er til húsa í tvöföldum bílskúr í Breiðholtinu. „Gítarverk­ stæði“ stendur á handskrifuðu skilti sem hangir fyrir ofan aðra bílskúrs­ hurðina. Að öðru leyti lítur þetta út eins og venjulegur bílskúr. En þegar inn er komið er þar allt til alls. Allt sem þarf til að smíða gítara og gera við. Sem er einmitt það sem Unnar Örn Stefánsson dundar sér við. Eyðilagði á sér bakið „Ég þurfti að finna mér eitthvað frekar rólegt að gera, eitthvað sem ég gæti jafnvel setið við og hætt þegar mér hentaði. Það er mjög erfitt á almennum vinnumarkaði,“ segir Unnar, gítarsmiður og kjöt­ iðnaðarmaður. Hann starfaði sem kjötiðnaðarmaður í tæp þrjátíu ár, lengst af í Melabúðinni, og gjör­ samlega eyðilagði á sér bakið í því starfi. Fyrir fimm árum var hann orðinn óvinnufær en gat ekki hugs­ að sér að sitja auðum höndum. „Ég fór því að hugsa hvað ég vildi gera. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hljóðfærum. Mér fannst því alveg tilvalið að skella mér á gítarsmíða­ námskeið í Tækniskólanum. Eftir að hafa lokið því fór ég strax á ann­ að námskeið sem var greitt af Virk, þar sem ég var í endurhæfingu. Það gerði mér svo gott að vera á svona námskeiðum og ég fékk þetta í gegn eftir að beiðnin hafði farið í gegnum margar nefndir. Þá var ekki aftur snúið, gítarsmíðin gjör­ samlega greip mig.“ Vill markaðssetja erlendis Til viðbótar við námskeiðin tvö sem Unnar hefur tekið á Íslandi, hefur hann fengið leiðsögn frá bandarískum gítarsmið, en þeir eiga í samskiptum í gegnum Skype. „Ég hafði verið að kaupa af honum efni til að smíða úr og það barst í tal hvort hann gæti ekki tekið mig í læri og það var minnsta málið. Ég hef lært heilmikið af honum og ekki þurft að borga honum neitt. Hann er gamall refur og kann öll trixin í bókinni.“ Unnar bendir á þá augljósu staðreynd að markaðurinn fyrir gít­ arsmiði sé ekki mjög stór á Íslandi, það geti því verið basl að vera í þess­ um bransa. En viðgerðirnar vegi aðeins upp á móti. „ Maður þarf að vera duglegur að trana sér fram og koma sér á framfæri. Ég hef borið auglýsingar í hús og nota ég Face­ book mikið. En svo er ég svolítið að horfa til eBay, hvort það sé eitt­ hvað hægt að selja þar. Fólki gæti þótt spennandi að eiga handsmíð­ aðan gítar frá Íslandi,“ segir Unn­ ar kíminn. En hann hafði nafnið á fyrirtækinu Geysir Guitars með­ vitað frekar klisjukennt til að auð­ veldara væri að markaðssetja vöru­ merkið erlendis. „Það kannast allir við Geysi, en það er auðvitað smá rembingur í þessu,“ bætir hann hlæjandi við. Unnar starfaði í fyrstu hjá kennaranum sínum úr Tækniskól­ anum, en eftir ítrekaðan ágreining um launagreiðslur ákvað hann að reyna fyrir sér með eigið fyrirtæki. Hann viðurkennir að það hafi verið stórt skref og ansi erfitt í fyrstu. En hann kom sér upp öllum nauðsyn­ legum tækjum og tólum og litla fyrir tækið varð að veruleika. Það fór hægt af stað en hefur vaxið jafnt og þétt. Viðskiptin eru þó enn mikið þannig að hann tekur gamla gít­ ara upp í smíð­ ina, sem hann þarf sjálfur að selja. Tekur upp eigin tónlist Það hanga gít­ arar uppi um alla veggi í af­ drepinu sem Unnar hefur fyrir sjálfan sig við hlið verkstæðisins. Langflestir eru þeir handsmíðaðir af honum sjálfum af mikilli natni. Það krefst mikillar nákvæmni og kunnáttu að smíða gítar þannig að hann hljómi rétt. Blaðamaður viðurkennir þekkingarleysi í þeim efnum og Unnar tekur nið­ ur einn gítarinn og útskýrir hverju þarf að huga að til að hljómurinn verði réttur. „Þetta er alveg milli­ metraspursmál,“ segir hann og strýkur stoltur yfir strengina á gítar sem honum þykir sérstaklega vænt um. Hann hefur nánast bara verið í því að smíða rafmagnsgítara hing­ að til, en er farinn að líta hýru auga til kassagítara líka og hefur viðrað það við bandaríska lærimeistarann. En hann segir það tvennt ólíkt að smíða rafmagns­ og kassagítara. Sjálfur spilar Unnar á gítar og hefur gert í fjölda ára. Hann hefur verið í nokkrum hljómsveit­ um í gegnum tíðina og er nú að­ eins í því að semja sína eigin tón­ list og er með lítið heimastúdíó. „Ég hef aðeins verið að setja efni á Soundcloud og Heiða Eiríks hefur verið að spila nokkur lög í langspili. Þannig að þetta hefur aðeins verið að heyrast.“ Hægt er að finna frek­ ari upplýsingar um Geysir Guitars á Facebook­síðu fyrirtækisins. n Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is Spilar sjálfur Unnar spilar sjálfur á gítar og semur sína eigin tónlist sem aðeins hefur fengið að heyrast. „Fólki gæti þótt spennandi að eiga handsmíðaðan gítar frá Íslandi. Listasmíð Unnar segir það krefjast mikillar nákvæmisvinnu að smíða gítar þannig að hljómurinn verði réttur. Að störfum Verkstæði Unnars er ekki stórt en þar er allt sem þarf til að smíða gítara og gera við. MyndiR SigTRyggUR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.