Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Síða 8
Vikublað 12.–14. maí 20158 Fréttir
Smálánakóngar taka
sér tugmilljónir í arð
n Umdeild fyrirtæki mala gull n Högnuðust um 400 milljónir á tveggja ára tímabili
F
jögur af þeim fimm smálána-
fyrirtækjum sem skilað hafa
ársreikningum fyrir rekstrarár-
in 2012 og 2013 högnuðust um
samtals 402 milljónir króna á
þessum tveimur árum. Tveir aðilar
eru í dag skráðir eigendur að öllum
þessum fimm fyrirtækjum en sam-
kvæmt ársreikningum hafa eigendur
fyrirtækjanna greitt sér tugi milljóna
króna í arð út úr þeim á tímabilinu.
Mikið hefur verið fjallað um
dularfullt og ógagnsætt eignarhald
á smálánafyrirtækjunum umdeildu
undanfarin misseri en samkvæmt
opinberum skráningum eru eigendur
þessara fimm fyrirtækja tveir. Óskar
Þorgils Stefánsson á þrjú þeirra, 1909,
Múla og Hraðpeninga í gegnum fé-
lagið Neytendalán ehf. Óskar greindi
frá því í tölvupósti til Morgunblaðsins
í upphafi árs að hann hefði eignast
fyrirtækin þrjú með því að kaupa þau
af kýpverska skúffufélaginu Jumdom
Finance árið 2013. Enn er allt á huldu
varðandi það hverjir voru eigendur
þessa kýpverska félags sem áður átti
smálánafyrirtækin.
Hin tvö smálánafyrirtækin, Kredia
og Smálán, eru í eigu Mario Magela,
fjárfestis frá Slóvakíu, sem Kjarninn
greindi frá í byrjun árs að hefði keypt
fyrirtækin af Leifi Alexander Haralds-
syni í desember 2013. Magela þessi
stundar meðal annars smálánastarf-
semi í Tékklandi og Slóvakíu.
Skilað seint og illa
Ekkert smálánafyrirtækjanna hefur
skilað ársreikningi fyrir rekstrarárið
2014 en fjallað var um það á síðasta
ári, meðal annars í Reykjavík Viku-
blaði, hversu seint og illa fyrirtæk-
in skiluðu ársreikningum. Nú hafa
fjögur af þessum fimm fyrirtækjum
hins vegar loks skilað ársreikning-
um fyrir rekstrarárið 2013 og byggir
úttekt DV á þeim. Eitt fyrirtækjanna,
Hraðpeningar ehf., skilaði síðasta
ársreikningi fyrir árið 2011 og hefur
ekki skilað af sér síðan. Ríkisskatt-
stjóri hefur heimild til að beita fyrir-
tæki 250 þúsund króna sektum fyrir
vanrækslu við ársreikningaskil.
Í byrjun árs lagði Neytendastofa
250 þúsund króna dagsektir á Kredia
og Smálán þar sem þau höfðu ekki
farið að ákvörðun um gjald fyrir
flýtiþjónustu sem braut gegn lögum
um neytendalán. Í júní 2014 komst
Neytendastofa að þeirri niðurstöðu
að Kredia og Smálán hefðu brot-
ið gegn lögunum með því að reikna
flýtigjald ekki inn í heildarlántöku-
kostnað og árlega hlutfallstölu
kostnaðar. Sú tala má ekki vera hærri
en 50 prósent en var ríflega þrjú þús-
und og tvö hundruð prósent hjá fyr-
irtækjunum tveimur. Flýtigjaldið var
einn af aðaltekjupóstum fyrirtækj-
anna.
Hundruð milljóna hagnaður
Þau smálánafyrirtæki sem skil-
að hafa inn ársreikningi fyrir 2013
högnuðust um ríflega 223 milljónir
króna á því ári. Sé rekstrarárið 2012
tekið með nemur þessi hagnaður
402 milljónum króna.
Mestum hagnaði árið 2013 skilaði
1909 ehf. eða tæpum 74,8 milljónum
króna. Það er talsverð aukning frá
árinu áður þegar hagnaðurinn nam
ríflega 61,8 milljónum. Samkvæmt
ársreikningi greiddu eigendur 1909
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Mala gull á smálánum
Hin umdeildu smálánafyr-
irtæki virðast græða á tá
og fingri á starfsemi sinni
sem hefur undangengin
ár gengið út á það að lána
viðskiptavinum tiltölulega
lágar upphæðir til skamms
tíma á óhagstæðum okur-
vöxtum. SviðSett Mynd
HEIMILIS
ÞVOTTUR
511 1710
svanhvit@svanhvit.is
www.svanhvit.is
Við tökum við hefðbundnum
heimilisþvotti. Við þvoum, þurrkum
og brjótum saman þvottinn þinn.
Lítil vél
1.890 kr.
Millistór vél
2.590 kr.
Stór vél
3.490 kr.