Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 17
Afþreying Umsjón: Ra gna Gestsdóttir / ra gna@dv.is Áby rgðarmaður: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is 12. maí 2015 Kynningarblað T he Color Run-hlaupið verð- ur haldið í fyrsta sinn á Ís- landi laugardaginn 6. júní nk. og hefst það kl. 11.00. Framkvæmdastjóri The Color Run á Íslandi er Davíð Lúther Sigurðarson. „Ég rakst á þetta á netinu fyrir nokkrum árum og fannst tilvalið að koma þessu heim. Ég setti mig strax í samband við þá sem eiga hlaup- ið og var í kjölfarið boðið að koma í hlaup í Kaupmannahöfn tveimur dögum síðar og varð alveg heillaður af þessu. Vissi um leið að þetta væri skemmtileg viðbót og tilbreyting við þá fjölbreyttu hlaupaflóru sem finna má á Íslandi í dag en það er ekkert í líkingu við þetta,“ segir Davíð. Fyrsta hlaupið fór fram í Phoenix, Arizona í Bandaríkjunum, í byrjun árs 2012. Hlauparinn Travis Snyder hljóp en hann kom þessu hlaupi á til þess að atvinnuhlauparar, áhugahlauparar og þeir sem hlaupa nánast aldrei gætu sameinast í einu hlaupi. Síðan hefur þetta farið sigurför um heiminn og er nú hlaupið í meira en 300 borg- um í 50 löndum á þessu ári, þannig að þetta er orðinn alheimsviðburður sem slær í gegn hvar sem hlaupið er. Litapúðrið sem notað er í The Color Run er algerlega náttúrulegt og viðurkennt af matvælastofnun- um. Þetta er í raun kornsterkja, betur þekkt sem maísenamjöl í daglegu tali og er mjög algengt í unnum matvæl- um. Það er litað með náttúrulegum lit- arefnum þannig að það er ekkert ert- andi eða hættulegt við púðrið. Fólki er þó bent á að forðast að fá efnið í munn eða augu í hlaupinu og því mælt með að fólk hlaupi með sólgleraugu til að sjá og upplifa litahliðin í stað þess að hlaupa með hálflokuð augun. „Ásamt lyfjafyrirtækinu Alvogen settum við á fót samfélagssjóð The Color Run og Alvogen. Við úthlutum úr honum samhliða hlaupinu og munu fimm milljónir renna til góð- gerðafélaga sem láta sig varða réttindi og velferð barna. Óskað var eftir um- sóknum til sjóðsins og að þessu sinni var ákveðið að veita styrk til UNICEF, Rauða krossins og Íþróttasambands fatlaðra sem öll munu nota styrkfjár- hæðina í verkefni sem tengjast börn- um og unglingum. Við fengum mik- ið af áhugaverðum verkefnum og það var virkilega erfitt að velja úr en við erum mjög ánægð með þau verkefni sem styrkirnir renna til þetta árið,“ segir Davíð. „Það hafa rúmlega 5.000 manns skráð sig nú þegar af 6.000 miðum sem í boði eru þannig að það fer að verða uppselt í hlaupið. Við vor- um með forsölu í lok síðasta árs til að kanna áhugann og settum í sölu 1.000 miða sem seldust upp á þrem- ur dögum. Í samráði við skipuleggj- endur erlendis var ákveðið að við mættum gera ráð fyrir 6.000 manns í hlaupið hér á landi og því stefnt að þeim fjölda en sjálfsagt hefðum við getað sett markið hærra því það eru klárlega ansi margir sem ætla sér í hlaupið en eru ekki búnir að kaupa sér miða, halda sjálfsagt að það sé ótakmarkað magn, en það er ekki svo,“ segir Davíð. „Skráningu lýkur bara þegar uppselt er orðið og það verður örugglega á næstu dögum.“ n Miða má kaupa á heimasíðu The Color Run: thecolorrun.is. Það er einstök lífsreynsla að hlaupa í The Color Run Styrkir til UNICEF, Rauða krossins og Íþróttasambands fatlaðra Framkvæmdastjórinn Davíð Lúther Sigurðarson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.