Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 32
24 Menning Vikublað 12.–14. maí 2015 Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Bakk Leikstjórn: Gunnar Hansson og Davíð Óskar Ólafsson Aðalhlutverk: Víkingur Kristjánsson, Saga Garðarsdóttir, Gunnar Hansson Komdu til oKKar ...Eða leigðu lyftu og gErðu við bílinn sjálf/ur auðbrEkku 25 (DalbrEkku mEgin) - s. 445-5562 Við gerum Við bílinn faglegar Viðgerðir H vað sem annars má segja, stendur Bakk að minnsta kosti undir nafni. Mikið er bakkað í myndinni. Reyndar er bakkað hringinn í kringum landið, sem í sjálfu sér er ekki svo slæm hug- mynd að bíómynd. En hvað svo? Gerir eins og pabbi Myndin fer ágætlega af stað og segir frá leikaranum Gísla sem stendur (eða öllu heldur liggur hreyfingarlaus) í skugga stórleik- arans Ólafs Darra, og á erfitt með að fá hlutverk. Hann heldur heim á Hellissand og við fáum frem- ur snoturt skot þar sem einungis fyrstu fjórir stafir heimabæjarins sjást og lýsir tilfinningum persón- unnar ágætlega. Hingað til höfum við haft fulla samúð með okkar manni, en síð- an byrjar hann að bakka. Ástæður þess að hann ákveður að bakka hringinn eru nokkrar, pabbi hans gerði það sama árið 1981, hann nennir ekki að vera heima hjá sér og lítur á þetta sem góða leið í burtu, og hann vill styrkja langveik börn með söfnun. Í miðri mynd veltir hann því fyrir sér hvers vegna hann er að þessu, hann nennir þessu ekki sjálfur, fjölmiðlar sýna engan áhuga og söfnunin gengur illa. Áhorfandinn getur ekki annað en velt því sama fyrir sér, engin sérstök ástæða er gefin fyrir að halda með honum og honum virðist nokkuð sama um langveiku börnin. Samúðin dvínar Enn verra er að persóna Gísla verður ósympatískari eftir því sem á líður. Hann er fram úr hófi sjálfselskur en er þó haldinn fram- kvæmdafælni og getur ekki klárað neitt, en er á hinn bóginn gefinn fyrir að barna konur sem hann stingur af eða heldur framhjá. Hér hefði verið tilvalið að segja þroska- sögu manns sem á endanum lær- ir að vera annt um eitthvað ann- að en sjálfan sig, en vandinn er bara sá að hann Gísli okkar lærir ekki neitt. Undir lok myndar skilar hann eigandanum biluðum bíl en peningurinn til barnanna kemst ekki allur til skila og allt er við sama horf í byrjun. Meira að segja tilgangs slagsmál við sveitatöffara verða ekki sú sáluhjálp sem vonast var eftir, né heldur hin oblígator- íska eldræða vinarins sem telur upp alla hans galla. Lítt sannfærandi ást Hin ágæta Saga Garðarsdóttir dúkkar skyndilega upp og virðist ætla að hressa upp á söguna, en í raun virðist hún engan tilgang hafa hér annan en að verða þægi- legt „love interest“ fyrir persón- urnar. Ekki skilur maður heldur al- veg hvers vegna ævintýrakona sem hefur ferðast um Asíu fellur fyrir mömmustrák sem hefur aldrei far- ið að heiman, hún gefur honum einu sinni axlanudd og virðist það nóg fyrir þau bæði. Þær hrakningar sem þrí- menningarnir lenda í eru heldur fyrirsjáan legir, auðvitað gleymist að taka bensín, en það reynist auð- velt að ýta bílnum í næsta bæ. Og síðan kemur Deus ex machina nú- tíma kvikmynda, youtube mynd- bandið sem fær x-mörg hitt og fær alla til að fylgjast með, en var þetta ekki gert áður (og betur) í Roklandi? Gísla dreymir um að skrifa þriggja tíma mynd um tvo fanga sem eru lokaðir saman í klefa, og helst vildi maður að maður væri að horfa á þá mynd. Eitthvað var þó hlegið í saln- um, og mögulega virkar Bakk sem létt og meinlaus sumarskemmtun. Fyrir einhverja. n Spólað í sama farinu U ndravagninn rann úr hlaði á stæðinu við Hörpu á sól- ríku en vindasömu eftir- miðdegi á föstudaginn var. Vagninn sjálfur er eldgam- all strætó, málaður grænn og hvítur og skreyttur að innan með plussi og kristalsljósakrónum. Aðalatriðið í vagninum er að sjálfsögðu flygillinn sem búið er að koma fyrir í honum miðjum, og við hann situr Nanna Hlíf Ingvadóttir, sem einnig bregður á sig harmonikkunni í túrnum. Vagn- stjórinn er Ilmur Stefánsdóttir, sem við þekkjum best í hlutverki leik- myndahönnuðar, enda margverð- launuð sem slík. Þriðja konan sem stendur að þessu skemmtilega fram- taki er svo sjálf Eva María Jónsdóttir, sem bregður sér í hlutverk bílfreyju og stýrir dagskránni af röggsemi eins og hennar er von og vísa. Gamlar vinkonur Nanna, Ilmur og Eva eru búnar að vera vinkonur síðan þær voru 7 ára og fannst þær hittast heldur sjaldan. Þannig kviknaði hugmyndin að Undravagnin- um eða Wonderwagon, sem mun verða ekið um stræti borgarinnar í nokkur skipti í maí, og aftur í haust. Vinkon- urnar hittast og gera eitthvað skemmti- legt saman og skapa í leiðinni ævin- týraheim sem aðrir fá að njóta. Íslensk menning Bíltúrinn tekur eina og hálfa klukku- stund og dagskráin fer fram á ensku. Á leiðinni er spilað og sungið, sögur sagðar og ýmislegt óvænt á sér stað. Tónlistardagskráin inniheldur ætt- jarðarlög sem við þekkjum öll, enda tóku Íslendingar í hópi farþega vel undir og það var falleg, nostalgísk til- finning sem fylgdi því að keyra um göturnar syngjandi í sólinni. Hver ferð verður einstök og dag- skráin er sveipuð tiltekinni dulúð. Á föstudaginn stökk hjólandi skáld með hjálm upp í bílinn, og las nokk- ur ljómandi skemmtileg ljóð. Gengið var upp á listaverk þar sem listamað- urinn tók á móti hópnum og að lok- um var allri hersingunni boðið inn á ekta íslenskt heimili þar sem sögur voru sagðar, söngvar sungnir, kleinur snæddar og kaffi sopið. Óhætt er að segja að Undravagn- inn sé óvenjuleg skoðunarferð um borgina sem veitir skemmtilega og fjölbreytta innsýn í menningarlífið. Næstu ferðir verða þá föstudaga sem eftir eru í maí, og lagt er af stað kl. 17 frá rútustæðinu austan við Hörpuna. Miðasala er á harpa.is og midi.is en miðaverð er 6.000 krón- ur. n Undravagninn Óvenjuleg menningarferð um borgina Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is Eva María og undravagninn Bílfreyjan var grænklædd í stíl við ökutækið. MyndiR SiGtRyGGuR ARi Píanó og víóla Tónlistardagskráin var viðeigandi og ljúf. Bílfreyjan syngjandi Eva María hélt uppi miklu stuði í bílnum. Andri Snær birtist á hjóli Skáldið las nokk- ur Bónusljóð á ensku við góðar undirtektir. „En í raun virðist hún engan til- gang hafa hér annan en að verða þægilegt „love interest“ fyrir persón- urnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.