Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 26
Vikublað 12.–14. maí 201518 Neytendur 10 hagstæðustu gleðistundirnar n Ódýrasti bjórinn á 350 krónur n Minnsti barinn gerir best við viðskiptavini Aðrir staðir þar sem bjórinn kostar um 500 kr. n Húrra, Tryggvagata 22 n Park, Hverfisgata 20 n Den Danske Kro, Ingólfsstræti 3 n Bjarni Fel, Austurstræti 20 n Bar 11, Hverfisgata 18 n Gaukurinn, Tryggvagata 2 n Uppsalir, Bar & Café, Aðalstræti 16 n Mar Restaurant, Geirsgata 9 n Prikið, Banka- stræti 12 n Bíó Paradís, Hverfisgata 54 n Barber Bar, Laugavegur 66 n Miðgarður Bistro Bar / Torfastofan, Sigtún 38 B ar 7, sem stendur við Frakka- stíg 7, býður upp á ódýrasta bjórinn á svokölluðum Happy Hour á höfuðborgar- svæðinu. Stór bjór kostar 350 krónur á staðnum og tilboð- ið gildir alla daga frá 16.00 til 20.00. Tveir aðrir staðir eru með bjórinn undir 500 krónum, Hilton Hótel Bar og Kolabrautin, en bjórinn á öðrum stöðum kostar 500 krónur eða meira. Gildistími tilboðanna er mjög fjöl- breyttur. Algengast er að tilboðin gildi frá 16–18 en sumir staðir byrja fyrr og dæmi eru um að tilboðin gildi fram yfir miðnætti. Happy hour, eða gleðistundir, hafa rutt sér mjög til rúms í íslensku skemmtana- og veitingalífi undan- farin ár. Kenning blaðamanns var sú að aukning erlendra ferðamanna og breytt vínmenning Íslendinga hefði verið orsök þróunarinnar en Ásmundur Jónsson, veitingastjóri Slippbarsins, er á öðru máli: „Þetta var byrjað löngu fyrir sprenginguna í ferðamannafjöldanum en ég er ekki með á hreinu hver reið á vað- ið,“ segir Ásmundur. „Föstudagar eru langvinsælastir hjá okkur, þá koma Íslendingarnir út en það er mun ró- legra á öðrum dögum, þótt við- skiptavinir séu greinilega meðvitað- ir um tilboðin. Við erum með rólegri stemmingu á virkum dögum, til dæmis bjóðum við upp á lifandi djass á miðvikudögum og þá verðum við meira vör við fólk á stefnumótum,“ segir Atli. Aðspurður um viðbrögð ferðamanna segir Atli: „Þeir eru mjög meðvitaðir um þessi tilboð og í raun og veru finnst mér mikilvægt að við getum boðið upp á þetta. Mörgum finnst verðið ansi hátt á börum hér- lendis en þá getum við bent þeim á þessi tilboð og þá er þetta mjög bæri- legt, jafnvel hagstæðara en í heima- löndum viðkomandi.“ DV leitaði að hagstæðustu gleði- stundatilboðunum sem í boði eru og setti upp lista yfir tíu staði. Tvær ófrávíkjanlegar reglur voru settar af blaðamanni. Í fyrsta lagi að tilboðið væri í gangi alla daga vikunnar og svo í öðru lagi mátti bjórinn ekki kosta meira en 500 krónur. Verðið á veig- unum er aðalatriðið en sé það jafnt þá gilda þættir eins og afgreiðslutími, staðsetning, umhverfi og verð á öðr- um drykkjum, til dæmis léttvíni og kokkteilum. Hafa ber í huga að list- inn er að sjálfögðu ekki tæmandi. n Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is 1 Bar 7, Frakkastíg 7 Alla daga, 16.00–21.00 Ódýrasti „Happy Hour“ bæjarins er á Frakkastíg 7 þar sem Bar 7 er til húsa. Bjór á krana kostar 350 krónur sem er framúrskarandi í samanburði við verð á öðrum vínveitingahúsum. Gildistími til- boðsins er einnig einstaklega rúmur. „Þetta er minnsti barinn í borginni og við viljum gera vel við okkar kúnna,“ segir Össur Hafþórsson, eigandi Bar 7, en staðurinn er með rými fyrir 24 viðskiptavini. „Við erum einnig með skot á tilboði á 350 krónur en annars er það bara bjórinn og rokk og ról,“ bætti hann kátur við. 2 Kolabrautin, austurbakki 2 Alla daga, 16.00–18.00 Verðið er afar hagstætt á Kolabrautinni. Tvær tegundir af bjór á 450 krónur stykkið, léttvínglas á 500 krónur og kokkteilar á 1.000 krónur. 3 hilton hótel Bar, suðurlandsbraut 2 Alla daga, 17.00–19.00 Verðið er afar hagstætt, en verð á stórum bjór er 450 krónur, léttvínsglas er á 500 krónur og helmingsafsláttur af kokkteilum á gleðistund. Barinn er flottur og huggulegur, þótt hann sé örlítið út úr miðborginni. 4 slippbarinn, Mýrargata Alla daga, 15.00–18.00 Fjölbreytt mannlíf og ferðamenn eru stór hluti af flóru gestanna. Helst má setja út á að kl. 15.00 er kannski í fyrra fallinu en taka verður tillit til þess að íslenskir launþegar eru ekkert endilega aðalmarkhópurinn. Hins vegar gildir gleðistundin í þrjár klukkustundir sem er gott. Verðið er hagstætt og úrvalið af drykkjum á tilboði mikið. Í boði eru tvær tegundir af bjór á 500 krónur hvor, hvítvín og rauðvín hússins á 500 krónur glasið og valdir kokkteilar á 1.000 krónur. 5 loftið, austurstræti 9 Alla daga, 16.00–20.00 Staðsetningin er góð í hjarta borgarinnar og drykkirnir á góðu verði. Stór bjór kostar 500 krónur, léttvínsglasið er sömuleiðis á 500 krónur og kokkteilar á 1.000 krónur. Staðurinn fær líka plús í kladdann fyrir afgreiðslutímann sem er afar rúmur. 6 Frederiksen ale house Alla daga, 16.00–19.00 Staðurinn sérhæfir sig í bjór og fyrir áhuga- menn um slíkar veigar er staðurinn því kjörinn vettvangur til þess að prófa eitthvað nýtt á góðu verði. Alls eru sjö tegundir af bjór á krana á tilboði. Stór bjór er á 500 krónur og vínglas á 550 krónur. Fyrirkomu- lagið er þannig að maður kaupir drykk á fullu verði og svo fær maður miða sem gildir hvenær sem er fyrir fría drykknum. 7 tíu dropar, laugavegi 27 Alla daga, 18.00–21.00 Verðið er með ágætum 500 krónur fyrir bjórinn og léttvínsglasið á 550 krónur. Afgreiðslutíminn er annar en sá sem aðrir staðir bjóða upp á og þannig sker staðurinn sig aðeins úr, auk þess sem staðurinn er lítill og notalegur. 8 Forréttabarinn, nýlendugata 14 Alla daga, 16.00–20.00 Veitingastaðurinn er vinsæll og því er mannífið fjölbreytt og lifandi. Verðið er ágætt. Stór bjór er á 500 krónur. Léttvíns- glas 650 krónur. 9 Kíkí Queer Bar Alla daga, 17.00–01.00. Vöruúrvalið er ekki mikið, aðeins bjór og engar refjar. Verðið er sambærilegt á við fjölmarga staði, eða 500 krónur bjórinn, en kosturinn við Kíkí er að gleðistundin hefst klukkan fimm og er í gangi fram yfir miðnætti, eða til klukkan 1 um nóttina. Staðsetning staðarins er svo með miklum ágætum og mannlífið er líflegt. 10 Mímisbar, hagatorgi 2 Alla daga, 16.00–19.00 Verðið á stórum bjór er 500 krónur og létt- vínsglas er á 650 krónur. Að auki er kokteill dagsins er á 1.100 krónur og bjór + skot er á 1.100 krónur. Hótel Saga er kannski ekki í alfaraleið en í staðinn fær maður rólegra afdrep en ella. Þjónustan er til mikillar fyrirmyndar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.