Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 28
Vikublað 12.–14. maí 201520 Lífsstíll
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
VERÐMERKIBYSSUR
og verðmerkimiðar
E
itt af mínu uppáhaldsgóð
gæti er ís og verður löngun
in í hann einstaklega sterk á
fallegum sumarkvöldum. Það
eru fleiri en ég sem fá slíka
löngun yfir sumartímann, enda yfir
leitt röð út á götu í flestum ísbúð
um bæjarins þá daga sem við erum
heppin með veður.
Í vinnunni minni er einstaklega
gott gluggaveður þegar sólin skín og
höfum við fengið nokkra slíka góða
daga síðastliðinn mánuð. Ég las
einmitt að það hafi verið slegið sól
armet á Íslandi á þessum árstíma,
þannig að það er ekki nema von að
íslöngunin hafi hellst yfir mig. Verst
að það fer ekki alveg saman að vilja
vera í formi og borða ís alla daga,
þannig að einhvern veginn þarf
maður að bjarga sér. Ég var alveg
búin að gleyma Nutribulletinu mínu
inni í skáp, en dró það heldur betur
fram og svalaði þessari löngun. Það
er orðin hefð á skrifstofunni þar sem
við vinnum þrjár saman að ég græi
fram einhvern dýrindis sjeik handa
okkur seinnipart dags og við njótum
hans í sólinni.
Gott að hafa bak við eyrað
Það að gera sér boozt eða safa er
einstaklega fljótleg og skemmtileg
leið til þess að innbyrða holla góða
næringu á fljótlegan máta. Á sama
tíma er mjög gott að hafa bak við
eyrað þá mikilvægu reglu sem ég
er alltaf að brýna fyrir fólki, að allt
er gott í hófi. Það er nefnilega mjög
auðvelt að koma fyrir miklu magni
af hitaeiningum í lítið glas. Magn
ið fer allt eftir því hvort sjeikinn sé
nýttur sem millimál eða máltíð. Sem
millimál er fínt viðmið að hann sé
um það bil 200–300 hitaeiningar, en
400–500 hitaeiningar sem máltíð.
Það er líka hægt að gera sér sjeik og
fá sér meðlæti með sem máltíð.
Þegar ég fer yfir matardagbækur
í vinnunni hef ég oft rekið augun í
sjeika sem enda kannski í 1.200 hita
einingum, þá sem morgunmatur eða
hádegismatur. Slíkt magn er meira
en helmingur af því sem venjuleg
ur kvenmaður þarf á að halda yfir
daginn.
Einnig bendi ég á mikilvægi
þess að borða hollt og fjölbreytt yfir
daginn. Þrátt fyrir að svona sjeik
ar, safar og próteindrykkir séu al
gjör snilld, þá er nauðsynlegt að fá
sér lí9ka eitthvað annað yfir daginn.
Það eru margir sem eru á ferðinni og
bjarga sér með svona mataræði. n
Fáðu þér sjEik
í staðinn Fyrir ís
n Einfalt að gera ljúffengt millimál n Ekki hafa sjeikinn of hitaeiningaríkann
Ég er búin að vera prófa mig svolítið
áfram með nokkrar uppskriftir og er því
bara rétt að byrja. Deili með ykkur efstu
þremur þessa stundina.
Súkkulaði-
bananasjeik
Hentar vel sem
millimál Þegar ég
var lítil bjó mamma
oft til sjeik handa
okkur systrunum á
laugardagskvöldum,
það var smá hefð hjá
okkur. Enn þann dag í dag
er þessi sjeik eitt það besta
sem ég fæ og því hugmyndin
komin þaðan.
Það sem þú þarft er:
n 1 skeið hreint súkkulaðiprótein eða
súkkulaðihnetusmjörsbragð
n Hálfur frosinn banani (ég kaupi alltaf
nokkra gula banana, tek hýðið af og set í
poka í frysti til þess að eiga á lager)
n Lúka af klökum (magnið stjórnar
hversu þykkur sjeikinn er)
n Um 400 ml vatn
Ég hristi þetta vel saman áður en ég læt
blandarann í gang. Mér finnst best þegar
sjeikinn er þykkur, þannig að ef hann er
enn mjög þunnur er gott að bæta við
klaka. Ég er, án gríns, búin að fá mér
þennan á hverjum degi í tvær vikur.
Sumarsjeikinn
Hugmyndina að þessum fékk ég þegar
ég var úti á Florída í fyrrasumar, einstak-
lega frískleg og góð blanda. Hentar vel
sem millimál
Það sem þú þarft er:
n Góð lúka af frosnum
jarðarberjum
n Hálfur frosinn banani
n Góð lúka af frosnum
ananas
n Lúka af klaka
n Vatn eftir smekk
Hráefnið er sett saman í
blandarann og sama á við
þennan og þann að framan
að hann er mun betri og verður
eins og krap ef það er nóg af klaka.
Jarðarberjakókossæla
Þessi er einstaklega góður og hentar vel
sem máltíð.
Það sem þú þarft er:
n 1 lítil dós af nýja kókosskyrinu frá
KEA n Hálf skeið hreint prótein með
súkkulað
ibragði
n Lúka frosin jarðarber
n 1 msk. grófur kókos – vatn og klaki
Hráefnið sett allt saman í blandarann
og svo er bara að njóta.
Núna er bara að nýta sér þetta á sólrík-
um gluggaveðursdögum á skrifstofunni.
Eigið ljúfa viku, þangað til næst
Ale ræktardurgur
Alexandra Sif
Nikulásdóttir
ale_sif@hotmail.com
Uppáhaldssjeikarnir
mínir þessa stundina
Einn af uppáhalds
Súkkulaðibanana-sjeik er
einstaklega góður í sólinni.
Maggi með sjeik Aðstaða skrifstof-
unnar hjá Betri árangri er á heimili Katrín-
ar og kemur maðurinn hennar, Maggi
Bess, iðulega í heimsókn til að fá sér einn
hollustu ofurshjeik a la Ale.