Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 12
Vikublað 12.–14. maí 201512 Fréttir
Heimilin fengu
ekki lækkunina
A
fnám vörugjalda um ára
mótin og lækkun á virðis
aukaskatti skilar sér
ekki til neytenda þegar
rýnt er í verðbreytingar
byggingarvöruverslana. Svo virðist
sem flestar verslanirnar, þar á með
al BYKO, Húsasmiðjan og Bauhaus,
hafi lítið sem ekkert lækkað verð.
Þetta leiðir athugun verðlagseftirlits
ASÍ í ljós, en eftirlitið hefur frá því
í október í fyrra fylgst með verð
breytingum á byggingarvörum.
Lækkunin átti að vera 15,2%
„Verðlagseftirlitið áætlar að verð
byggingarvara sem áður báru 15%
vörugjöld ættu að lækka um 14% við
afnám vörugjaldanna og þegar lækk
un á virðisaukaskattinum úr 25,5% í
24% er tekin með í reikninginn ætti
lækkunin að vera 15,2%. Þetta eru
byggingarvörur s.s. gipsplötur, gólf
efni, vaskar og salernisskálar,“ segir í
fréttatilkynningu á heimasíðu ASÍ. Af
200 vörutegundunum sem ASÍ skoð
aði hjá 13 byggingarvöruverslunum
þá lækkuðu aðeins 26 vöruflokkar
um þessi 15% eða meira. Af stærstu
verslununum kom Bauhaus verst út.
Reyndist verslun vera með óbreytt
verð í 30 tilvikum af 38. Tvær vörur
höfðu hækkað í verði en aðeins sex
lækkað. „Bauhaus lækkaði ekki verð
í tæplega 85% tilvika, Húsasmiðjan
ekki í tæplega 45% tilvika og verð
lækkanir í BYKO voru innan við 5%
í tæplega 90% tilvika,“ segir á heima
síðu ASÍ.
„Grafalvarlegt að um það sé
einhver ágreiningur“
„Ég kann ekki skýringar á þessu
en ég vil minna á það að verið var
að fella niður vörugjald til að bæta
stöðu heimilanna og að sjálfsögðu
ber mönnum að sinna því. Ef að
menn hafa verið að draga lappirnar í
verðlækkunum þá hvet ég þá aðila til
þess að ráða bót á því nú þegar,“ segir
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna.
Aðspurður hvort að Neytenda
samtökin hefðu orðið vör við þetta
á öðrum mörkuðum segir Jóhannes:
„Við vitum ekki hvort að þetta eigi
við alla. Þetta var mjög flókin aðgerð,
það var verið að fella niður vörugjald
á flokkum sem ýmist báru þessi gjöld
eða ekki, til að mynda byggingarvöru
og ýmis heimilistæki. Samtímis er
verið að lækka virðisaukaskattinn.
Við kölluðum eftir því að stjórn
völd settu í gang mjög nákvæmt eft
irlit með þessu en það var gefið út
að markaðurinn ætti að sjá um það
sjálfur. Sumar verslanir halda því
fram að þetta eigi ekki við rök að
styðjast og það er í raun grafalvarlegt
að um það sé einhver ágreiningur,
hvort að verslunin hafi verið að skila
þessu eður ei.“
Búist var við yfirlýsingu frá Sam
tökum atvinnulífsins vegna málsins,
en hún hafði ekki borist þegar blaðið
fór í prentun. n
Hvetja fyrirtæki til að lækka vöruverð í samræmi við afnám vörugjalda
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Beco umhverfisvænir kúkapokar
Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is
STÓRIR NIÐURBRJÓTANLEGIRSTERKIR
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík - sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
laugard. 11-16
Sjónvarpsskápur Salsa
Stól á hjólum
Verð áður 44.900 kr.
15.900 kr.
*Verð á dýnu
Verð með botni 99.000 kr.
69.900 kr.
Rúm, stærð 193x200
Barnarúm stærð 106x213
Verð 221.900 kr.
155.330 kr.
Skenkur 216,5x55x84 cm
Verð áður 83.900 kr.
7.500 kr.frá
Verð áður 40.900 kr.
19.900 kr. frá
Borð
Þú sparar 34.900 kr.
5.000 kr.
*Verð án dýnu
LAGERHREINSUN
Formaður Neytendasamtakanna Jóhannes Gunnarsson segir grafalvarlegt að
ágreiningur sé um hvort að lækkanirnar hafi skilað sér inn í vöruverð eða ekki.
Bauhaus Af stærri fyrirtækjunum þá
stendur Bauhaus sig áberandi verst.