Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 23
Vikublað 12.–14. maí 2015 Kynningarblað - Afþreying 7 S nóker- og poolstofan er rót- gróið fyrirtæki og hefur ver- ið í Lágmúla 5, Reykjavík síðan 1998. Miklar endur- bætur og útlitsbreytingar hafa átt sér stað undanfarið og er Brynjar Valdimarsson eigandi að leggja lokahönd á þær, þegar við- talið á sér stað. „Upphaflega lang- aði mig að breyta staðnum og gera hann meira fyrir konur, fannst hann aðeins of mikill karlastaður, síðan hefur appelsínuguli liturinn þau áhrif að andrúmsloft staðarins breyttist og fólk skemmtir sér bet- ur,“ segir Brynjar. „Mjög mikið hefur verið að gera síðan við kláruðum breytingar og við vorum til dæmis með methelgi um mánaðamótin frá opnun staðarins,“ segir Brynjar. Á staðnum eru 18 poolborð og 4 snókerborð og bæði einstak- lingar og hópar sem sækja stað- inn. „Starfsfólk mitt og ég reynum að hafa staðinn þannig að fólk get- ur komið og slappað af eftir erfiða daga eða bara til að skemmta sér og öðrum,“ segir Brynjar. Við fáum mikið af fyrirtækjahópum og margir af þeim koma árlega til okkar enda er þetta ansi ódýr skemmtun fyrir hópa. Þeir gete sent e-mail á pool@pool. is og fengið tilboð í hópinn. „Það er mikið um að hópar komi til okkar og þetta er mjög góð skemmtun fyrir hópa, vegna þess að þú þarft ekki að kunna neitt til að skemmta þér vel,” segir Brynjar. All- ir í hópnum eru síðan leystir út með klúbbkorti að gjöf. „Við erum með klúbb og félags- gjald er 500 kr. fyrir árið, kortið veit- ir bæði afslátt af leikjum og veiting- um,” segir Brynjar. „Jafnframt er hægt að kaupa mánaðarkort. Við reynum að vera eins ódýrir og hægt er, til dæmis þá kostar stór bjór 690 kr. í klúbbnum og hamborgari með frönskum og sósu aðeins 1.290.kr.“ Námskeið eru í boði, þar sem Brynjar kennir undirstöðuatriði eða fyrir þá sem lengra eru komnir. Hægt er að panta kennslu í síma 822-1471 hjá Brynjari eða senda tölvupóst á pool@pool.is. Mót eru haldin á staðnum fyr- ir Billiardsamband Íslands, bæði í pool og snóker. Það er einnig hægt að kaupa veitingar á staðnum, bæði drykki, smárétti, hamborgara og pitsur. „Við erum með hamborgara og seljum mikið af þeim enda eru þeir ansi góðir, einnig piztsur frá Italiano sem er í Kópavogi, þegar við erum með hópa þá getum við pantað frá þeim fyrir hópinn,” seg- ir Brynjar. Búið er að koma upp mjög góðri aðstöðu til að horfa á boltann og aðra viðburði, en 15 flatskjáir og 2 skjávarpar sjá um að allir geti fylgst með, öll sjónvörpin eru í HD og hægt að horfa á í 3D. Snóker- og poolstofan er í Lág- múla 5, Reykjavík, síminn er 581-1147, netfang pool@pool.is, heimasíða pool.is Opnunartími er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 11–1, föstudaga og laugardaga frá kl. 11–3 og sunnudaga frá kl. 15–1. n Þarft ekki að kunna neitt til að skemmta þér vel Snóker- og poolstofan Lágmúla hefur verið endurnýjuð að öllu leyti „Við fáum mikið af fyrirtækjahópum og margir af þeim koma árlega til okkar enda er þetta ansi ódýr skemmt- un fyrir hópa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.