Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Blaðsíða 24
Vikublað 12.–14. maí 20158 Afþreying - Kynningarblað
Skemmtileg og fjölbreytt
afþreying fyrir hópa og einstaklinga
S
kemmtigarðurinn í Grafar-
vogi hefur verið starfrækt-
ur í 15 ár í sumar og býð-
ur upp á skemmtilega og
fjölbreytta afþreyingu fyrir
hópa og einstaklinga.
„Við erum alhliða afþreyingar-
fyrirtæki,“ segir Eyþór Guðjónsson
hjá Skemmtigarðinum. „Við sjáum
um að skipuleggja hvata- og
óvissuferðir fyrir starfsmanna-,
skóla- og vinahópa og eru ferðirnar
skipulagðar ýmist í skemmtigarðin-
um sjálfum, úti um alla Reykjavík
eða víðs vegar á landinu.“
Í sumar verður boðið upp á
fastan opnunartíma og
um miðjan júní verður
ný og spennandi af-
þreying kynnt til
sögunnar, afþreying
sem hefur slegið í gegn
víða annars staðar, að
sögn Eyþórs.
Upplagt er að
halda barnaafmæli í
Skemmtigarðinum og
hefur aukist að afmæli
séu haldin þar, en hægt
er að velja um mini-
golf eða lasertag og eru
veitingar innifaldar í
verðinu fyrir afmælis-
hópinn.
„Ferða-lasertag
er vinsælt hjá okkur, en við getum
flutt búnaðinn hvert sem er, en
hann er hannaður sérstaklega til að
spila í dagsbirtu. Hægt er að spila
inni í vöruhúsum, á skrifstofum,
í skógarlendi, í raun hvar sem er.
Í Skemmtigarðinum bjóðum upp
á þrjá velli þar sem
menn spila útilasertag. Við erum
með þrjár stórar leikmyndir þar
sem spilað er undir berum himni,
keflavöll, pýramídavöll og villta
vestrið,“ segir Eyþór.
Í Skemmtigarðinum er veitinga-
salur og í júní verð-
ur opnaður sveitabar
í Skemmtigarðinum
og verður hann opinn
lengur en garðurinn
sjálfur, en bæði er hægt
að leigja hann sér eða
samhliða hvata- eða
óvissuferð.
Nánari upplýsingar má fá í
síma 587-4000, á netfanginu info@
skemmtigardur.is eða á heima-
síðunni skemmtigardur.is Opið er
fyrir bókanir í Skemmtigarðinn alla
daga frá kl. 11–16. n
Hægt er að spila inni í vöruhúsum, á skrifstofum, í skóglendi, í raun hvar sem er
Háteigsvegi 1 • 105 Reykjavík • Sími 533 1020 • aman@aman.is • www.aman.is
Allt það besta til bjórgerðar