Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Qupperneq 9
Vikublað 12.–14. maí 2015 Fréttir 9
sér 14,8 milljónir króna í arð vegna
rekstrarársins en ekki virðist hafa
verið greiddur arður vegna ársins
2012.
Næstmestum hagnaði skilaði
Kredia ehf. sem hagnaðist um rúm-
ar 59 milljónir króna árið 2013. Það
er veruleg aukning frá árinu áður
þegar hagnaður ársins nam rúmlega
31 milljón. Eigandi Kredia greiddi
sér 31 milljón króna í arð 2013 og
22,7 milljónir árið 2012 samkvæmt
ársreikningum. Alls 53,7 milljónir
króna á tímabilinu.
Aðeins í tilfelli Múla ehf. dregst
hagnaður saman milli áranna. Árið
2013 nam hagnaðurinn 35 milljón-
um króna en var rúmar 64 milljónir
árið áður. Ekkert kemur fram um arð-
greiðslur til eigenda í ársreikningi.
Breytt í rafbókabúðir
Eins og heitið ber með sér gengur
starfsemi smálánafyrirtækja út á að
lána fjárhagslega nauðstöddum til-
tölulega lágar upphæðir til skamms
tíma á afar óhagstæðum og háum
vöxtum. DV hefur áður fjallað um
það að „sláandi“ fjöldi ungra fíkla
nýtti sér smálán til að fjármagna
neyslu sína.
Ákveðin stefnubreyting varð þó
á dögunum þegar Kredia og Smá-
lán, sem eru í eigu Mario Megela,
tilkynntu í síðasta mánuði að þau
væru orðin að rafbókabúðum á
netinu sem veita lán. Skráðir not-
endur fá aðgang að rafbókasafni og
lánum en í framtíðinni verður ekki
hægt að taka lán án þess að kaupa
bók. n
Svona hafa
þeir hagnast
1909 ehf.
Í eigu: Neytendalán ehf. sem er í
eigu Óskars Þorgils Stefánssonar
Hagnaður 2013: 74.794.189 kr.
Arður til hluthafa 2013: 14.800.000 kr.
Hagnaður 2012: 60.812.782 kr.
Hagnaður alls 2012 og 2013: 135.606.971 kr.
Múla ehf.
Í eigu: Neytendalán ehf. sem er í
eigu Óskars Þorgils Stefánssonar
Hagnaður 2013: 35.361.238 kr.
Hagnaður 2012: 64.265.183 kr.
Hagnaður alls 2012 og 2013: 99.626.421 kr.
Hraðpeningar ehf.
Í eigu: Neytendalán ehf. sem er í eigu
Óskars Þorgils Stefánssonar
Skilaði síðast ársreikningi fyrir árið 2011
Smálán ehf.
Í eigu: Mario Megela
Hagnaður 2013: 54.019.529 kr.
Arður til hluthafa 2013: 19.000.000 kr.
Hagnaður 2012: 21.947.032 kr.
Hagnaður alls 2012 og 2013: 75.966.561 kr.
Kredia ehf.
Í eigu: Mario Megela
Hagnaður 2013: 59.296.103 kr.
Arður til hluthafa 2013: 31.000.000 kr.
Hagnaður 2012: 31.211.344 kr.
Arður til hluthafa 2012: 22.700.000 kr.
Hagnaður alls 2012–2013: 90.507.447 kr.
Arður til hluthafa alls 2012 og 2013: 53.700.000 kr.
Hagnaður og arður 2012–2013
Hagnaður alls: 402 milljónir króna *
Arðgreiðslur alls: 87,5 milljónir króna**
(*Hagnaður fyrirtækjanna fjögurra sem skilað hafa ársreikningum)
(**Arðgreiðslur til eigenda skv. ársreikningum, þar sem við á)
H
ún var ekki bitin,“ segir Guð-
mundur Fylkisson, aðalvarð-
stjóri hjá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hann birti á sunnudagskvöld á
Facebook mynd af lögreglukonu sem
var að láta taka úr sér blóð til rann-
sóknar eftir samskipti við borgara
sem er með alvarlegan smitsjúkdóm.
Í samtali við DV sagði Guðmund-
ur að um hefði verið að ræða vökva-
smit, en hvorki bit né stungu. Vildi
hann þar með leiðrétta fréttir sem
voru skrifaðar um færsluna hans þar
sem sagði að hún hefði verið bitin.
Guðmundur setti myndina á
Facebook til að vekja athygli á lágum
launum lögreglumanna og kjarabar-
áttu þeirra sem hefur staðið yfir í dá-
góðan tíma án árangurs. „Það er ekk-
ert að gerast í okkar málum,“ bætti
hann við um kjaraviðræðurnar.
Þetta skrifaði hann á Facebook:
„Við, lögreglumenn, erum í kjarabar-
áttu og við höfum ekki verkfallsrétt.
Þessi mynd er tekin um kl. 05.00
í morgun [aðfaranótt sunnudags]
þegar lögreglumaður, með 278.738
kr. í grunnlaun, var að láta taka úr sér
blóð til rannsóknar eftir samskipti við
borgara sem er með alvarlegan smit-
sjúkdóm,“ skrifaði Guðmundur og
benti á að nú tæki við- bið hjá lög-
reglukonunni, og að margir aðrir lög-
reglumenn hefðu staðið í sömu spor-
um í gegnum tíðina. n
freyr@dv.is
„Hún var ekki bitin“
Blóð tekið úr lögreglukonu eftir samskipti við borgara með alvarlegan smitsjúkdóm
Tekið blóð Nú tekur við bið eftir niður-
stöðum blóðprufunnar.
Verslunin
flytur allt að
80%
afsláttur
ReykjavíkuRvegi 66 - 220 HafnaRfjöRðuR
Sími: 565 4100 - www.nyfoRm.iS
Smart föt
fyrir smart konur
Sjáðu
úrvalið á
tiskuhus.is
Bæjarlind 1-3 201 Kópavogur S: 571-5464
Stærðir 38-54