Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Qupperneq 25
Vikublað 12.–14. maí 2015 Umræða 17 Myndin Gert klárt Skipverjar á Kristrúnu RE-177 gera klárt í næstu veiðiferð. mynd siGtryGGur ari Mér er skítsama Jónína magnúsdóttir er ófeimin við að segja hvað hún er þung. – DV Ég er að verða mamma Halla Vilhjálmsdóttir á von á sínu fyrsta barni. – DV Mér varð ekki um sel davíð Kjartansson og fjölskylda lentu í skelfilegri bílveltu. – DV SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm. Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. KOMDU ROTÞRÓNNI Í LAG MEÐ SEPT-O-AID UMHVER FISVÆN VARA F RÁ KEM I Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun; sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður. H ernám Breta á Íslandi kemur ljóslifandi fram í dagbók- um Þóru Vigfúsdóttur sem varðveittar eru á Þjóðarbók- hlöðunni. Að kvöldi 9. maí árið 1940 hafði hún verið í samkvæmi hjá vinafólki þar sem meðal gesta voru Norðmenn og Danir hinna ný- hernumdu þjóða og barst í tal hve Ís- lendingar mættu þakka fyrir að vera svo fjarri heimsins vígaslóð. Þann 10. maí 1940 getur að líta eftirfarandi færslu: „… Kl. 3 ½ um nóttina fóru síð- ustu gestirnir og þar á meðal ég. Þegar við vorum vel komin út á götuna var mér litið til hafs og sá stórt herskip, ég hrópaði á fólkið og kom okkur saman að ganga niður á Arnarhólstún. – Við þutum þangað og sáum 4 herskip sigla inn á Reykjavíkur höfn og uppi í gráum skýunum hrein í flugvél. Við þessi litli hópur stóðum þrumu lostin – Englendingar, Þjóðverjar? Hvort var betra – Hvorutveggja hræðilegt. Við gengum því næst niður á Hafnarmúla og maður og maður slæddist í hópinn. Við staðnæmdust á bryggjusporðin- um og sáum þessi morðferlíki bruna inn á ytri höfnina, þau fóru eins kunn- uglega eins og þau hefðu aldrei gert neitt annað en að sigla út og inn um höfnina okkar, fyrsta skipið sem var beitiskip brunaði straks upp í Kolla- fjörð, hin 3 sigldu öruggt inn á höfn- ina. Gapandi fallbyssukjaftar ginu nú glögglega við manni. Alt í einu kom litli lóðsbáturinn okkar með íslenska fánann uppi brunandi. Það minnti mig átakanlega á söguna úr Biblíu- sögunum um Davíð og Golíat. Við sáum hvar hann stímdi ákveðið inn á milli skipanna, en þeir virtust ekki gefa honum gaum. Mér var orðið kalt þar sem ég stóð þarna í sumarkáp- unni í bleytuhríð, því alt í einu skall á hríð, norðlensk stórhríð þó hún stæði ekki lengi. ... Við fórum heim, ég settist við skrifborðið, starði út í snjóbylinn eins og lömuð, vissi með sjálfri mér að enska krumlan hafði gripið Ísland.“ Af þessu má marka að maí hefur verið býsna kaldur þá eins og nú sjö- tíu og fimm árum síðar! n Það var kalt í maí líka þá!„Við þessi litli hópur stóðum þrumu lostin – Englendingar, Þjóðverjar? Hvort var betra – Hvorutveggja hræðilegt. Mest lesið á DV.is 1 Elva Dögg leitar að verndarenglinum: „Hún stöðvaði eineltið þennan dag“ Elva Dögg lýsir eftir manneskju sem hjálpaði henni þegar hún varð fyrir grimmilegu einelti. Lesið: 29.293 2 „Við verðum aldrei söm“ Guðmundur Pálsson, Baggalútur og fjölmiðlamaður, og Margrét eigin- kona hans, ásamt börnum, lögðu af stað í ferðalag í fyrrahaust og eru enn á ferðinni. Lesið: 28.532 3 Alvarlegt umferðar-slys við Krónuna: Barn klemmdist á milli bifreiðar og verslunarinnar Nemandi í æfingarakstri missti stjórn á bifreið sem hann ók með þeim afleiðingum að hún skall á húsnæði Krónunnar. 10 ára barn varð á milli bifreiðarinnar sem nemandinn ók og verslunarinnar. Lesið:21.789 4 Rændu manni og stálu sæði úr honum Þrjár konur rændu manni í Suður-Afríku og nauðguðu honum til þess að fá sæði frá honum. Lesið: 20.815 5 Skelfileg bílvelta: „Væt-an fraus á fötum dóttur minnar“ Davíð Kjartansson og Drífa Guðnadóttir lentu nýverið í erfiðri lífs- reynslu þegar bíll þeirra rann í hálku og fór út af veginum á Möðrudalsöræfum. Í bílnum með þeim var 14 mánaða dóttir þeirra, Dísella Dögg. Lesið:20.618 Pétur Gunnarsson rithöfundur Aðsent

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.