Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.2015, Page 38
Vikublað 12.–14. maí 201530 Fólk
Project1_Layou
t 1 24/11/2011
12:58 Page 1
Rauðarárstíg 33, 105 Reykjavík
Fjarðargötu 19, 220 Hafnarfirði,
sími 511-7000, www.innrammarinn.is
Fjarðargötu 19, Hafnarfirði
Velkomin á nýtt
rammaverkstæði
og verslun
Úrval tilbúinna
ramma og
myndaalbúma
„Hamingjan býr
í okkur sjálfum“
n Borghildur var að klára lokaritgerð í menntunarfræðum
B
orghildur Sverrisdóttir
sendi frá sér bókina Ham-
ingjan eflir heilsuna síðast-
liðið haust. Bókin naut tölu-
verðra vinsælda, enda fátt
betur við hæfi í svartasta skamm-
deginu en að auka hamingjuna. En
nú þegar sól hækkar á lofti stefnir
hún á að halda námskeið í tengsl-
um við bókina.
„Ég ætla fyrst og fremst að hjálpa
fólki að finna réttar aðferðir til að
bæta vellíðan sína frá degi til dags.
Ég byggi aðferðirnar á vísindalegum
rannsóknum sem gerðar hafa verið
innan jákvæðrar sálfræði. Það er
mikilvægt að segja ekki öllum að
fara eftir sömu aðferðinni því við
erum mjög ólík og það sem hentar
einum hentar kannski ekki öðrum,“
útskýrir Borghildur, sem er sálfræði-
menntuð og hefur lengi starfað sem
heilsupistlahöfundur.
Hún segir að ef fólki tekst að til-
einka sér réttar aðferðir jákvæðrar
sálfræði geti það aukið jákvæðni,
eflt bjartsýni og daglega vellíðan.
„Hugarfarið skiptir svo miklu máli.
Það hugarfar sem við höfum gagn-
vart þeim verkefnum sem við
glímum við hverju sinni.“
Var að klára lokaritgerð
Á námskeiðinu ætlar Borghildur
einnig að koma aðeins inn á nú-
vitund, en það eru fræði sem hafa
verið henni hugleikin um tíma.
Þegar blaðamaður náði tali hafi
henni var hún að enda við að skila
inn lokaritgerð sinni í menntunar-
fræðum til kennsluréttinda, sem
inniheldur kennsluefni í jákvæðri
sálfræði og núvitund fyrir fram-
haldsskólanema. Borghildur er þó
ekki löglærður kennari í núvitund
en stefnir á að sækja sér slík réttindi
í haust þegar námskeið verður
haldið hér á landi í fyrsta skipti.
Flestir geta aukið hamingjuna
Aðspurð segir Borghildur ham-
ingjunámskeiðið henta öllum, enda
leggi hún áherslu á að hver og einn
vinni með sjálfan sig og sitt eigið líf.
„Hamingjan býr í okkur sjálfum,
en ekki í umhverfinu. Það geta því
allir aukið hamingju sína. En það
er kannski ekki forgangsatriði fólks
sem býr við stríðsátök eða mikla
vosbúð. Þegar grunnþörfunum er
ekki mætt eru aðrar áherslur í lífinu.
En almennt er mikilvægt að vera
hamingjusamur. Fólki gengur betur
í lífinu, það á betri samskipti og vel-
gengnin er meiri. Hamingjan hefur
áhrif á allt.“
Þroskaðist hraðar
Sjálf kynntist Borghildur jákvæðri
sálfræði skömmu eftir að hún
kláraði sálfræðinám 2003 og fór
fljótlega að nýta sálfræði í eigin lífi.
„Ég er alveg viss um að þetta hefur
hjálpað mér að þroskast hraðar. Ég
reyni að leggja áherslu á það góða í
lífinu í stað þess að velta mér upp úr
því slæma. En það er eilíf vinna að
halda andlegri heilsu við, bara svip-
að og líkamlegri heilsu,“ segir Borg-
hildur að lokum.
Hamingjunámskeið í Hafnarfirði
hefst þann 19. maí næstkomandi og
skráning stendur nú yfir. Hægt er
að nálgast frekari upplýsingar um
námskeiðið á Facebook-síðu bók-
arinnar Hamingjan eflir heilsuna. n
Eykur hamingju Borghildur stendur fyrir hamingjunámskeiði í Hafnarfirði. mynd sigtryggur ari
sólrún Lilja ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Ég reyni að leggja
áherslu á það góða
í lífinu í stað þess að velta
mér upp úr því slæma.
Litrík fjöl-
menningarhátíð
F
jölmenningardagur Reykja-
víkurborgar var haldinn á
laugardaginn, þar sem fjöl-
breytileikanum var fagnað með
pomp og prakt. Litrík skrúðganga var
farin frá Hallgrímskirkju niður í Ráð-
hús Reykjavíkur þar sem hátíðin var
sett formlega. Þar var fjölþjóðlegur
markaður þar sem kynnt var handverk
og matur frá hinum ýmsu löndum.
Gleðin var allsráðandi í miðbænum
og veðrið lék við gesti hátíðarinnar,
sem drukku í sig framandi menningu.
Fjölbreytileikanum var fagnað í Reykjavík
Á öllum aldri Ungir sem aldnir tóku
þátt í hátíðinni, en þeir yngstu nutu
þess að vera keyrðir um í kerrum.
Borgarstjóri og fulltrúar Dagur B. Eggerts-
son lét sig að sjálfsögðu ekki vanta í göngu
na.
En það gerðu borgarfulltrúar ekki heldur.
takturinn sleginn Á hátíðinni mátti
hlýða á ýmiss konar tónlist, en þessi sló
taktinn með trommu.
Listaverk Þessir krakkar höfðu föndrað sinn eigin fána og báru hann stolt í göngunni.
gleði Gleðin
skein úr
andlitum allra
þeirra sem
tóku þátt í
fjölmenn-
ingarhátíðinni.
Ýmsir fánar Það var að sjálfsögðu við
hæfi að allir bæru sína þjóðfána og mátti sjá
ansi marga mismunandi slíka.
Litríkt Litagleðin var í hávegum
höfð í göngunni, en þar mættust
fjölmargir menningarheimar.