Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Blaðsíða 2
2 Fréttir Vikublað 27.–28. maí 2015
GleðileGt sumar
12” til 24” barnareiðhjól, verð frá kr. 25.900,-
Frábært úrval reiðhjóla og aukahluta • Mikið úrval af reiðhjólahjálmum
Focus Whistler 4.0
29“ ál stell-Tektro Auriga
Vökvabremsur- Shimano Deore
Afturskiptir- 27 gíra. Kr.119.000
Focus raVeN rooKie DoNNa 1.0
26“ ál stell-Promax V-Bremsur-Shimano 21 gíra Focus raVeN rooKie 1.026“ ál stell-Promax V-Bremsur-
Shimano 21 gíra
Kr.69.900Kr.69.900
Dalshraun 13 220 Hafnarfjörður Sími:565 2292
Biðla til íslensku
þjóðarinnar
Um átta þúsund manns hafa skrif-
að undir áskorun til Ban Ki-moon
þess efnis að bæta við nýju þró-
unarmarkmiði til að auka skiln-
ing á virkni taugakerfisins á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna. Svo
hægt sé að senda áskorunina þarf
hins vegar að lágmarki 30 þúsund
undirskriftir. Hægt er að skrifa
undir á vefnum taugakerfid.is.
Það eru Mænuskaðastofnunin,
SEM samtök endurhæfðra mænu-
skaddaðra, MS-félagið, MND fé-
lag Íslands, Lauf félag flogaveikra,
Heilaheill, Geðhjálp og Park-
insonsamtökin sem standa að
söfnuninni. Talið er að um 3.000
Íslendingar séu flogaveikir, auk
þess sem um 600 Íslendingar fá
heilablóðfall árlega og um 450
manns eru með MS-sjúkdóm-
inn, svo dæmi séu tekin og snert-
ir málið því samfélagið allt. „Ís-
lendingar hafa alltaf staðið með
okkur og munu gera það núna
eins og alltaf áður. Okkur liggur
lífið á í orðsins fyllstu merkingu og
við treystum á þá sem enn þá eiga
eftir að skrifa undir að gera það
strax,"“ segir Guðjón Sigurðsson,
formaður MND félagsins.
Sumarið er ekki á leiðinni
n Kaldasti maí í 36 ár n Maí aðeins þrisvar sinnum verið kaldari síðustu 70 ár
Þ
essi maímánuður er sá kald-
asti í Reykjavík í 36 ár, eða
síðan 1979. Á síðustu 70
árum hafa einungis þrír maí-
mánuðir verið kaldari.
Þetta segir Trausti Jónsson, veður-
fræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Meðalhitinn í maí hefur verið 4,1
stig en árið 1979 var hitinn 1,4 stig.
Hitinn núna er 1,9 stigum undir með-
allagi áranna 1961 til 1990 og 2,5 stig-
um undir meðallagi síðustu tíu ára.
Fyrstu tólf dagarnir kaldir
„Þetta hefur verið óvenju kaldur
mánuður, sérstaklega fyrstu tólf
dagarnir. Síðan hefur ekki verið hlýtt,
en hitinn hefur samt verið nærri með-
allagi síðustu tíu ára. Það sem dregur
mánuðinn niður eru fyrst og fremst
þessir tólf fyrstu dagar,“ segir Trausti.
20 sinnum orðið
kaldara síðustu 70 árin
Maímánuður er sá þrettándi kald-
asti á Akureyri. Á Austurlandi hefur
hitinn verið ívið meiri, en samt und-
ir meðallagi. Trausti segir það tilvilj-
unarkennt hvernig veðrið hafi verið
í maí miðað við síðustu ár. „Það má
búast við þessu öðru hverju. Þessi
mánuður hefur dregið árið dálítið
niður. Á síðustu sjötíu árum hefur
ekki nema tuttugu sinnum orðið
kaldara það sem af er árinu í Reykja-
vík. En á Austurlandi hefur þetta
verið mikið betra. Þetta er nítjánda
hlýjasta árið þar, það sem af er ári.“
Kalt loft frá Kanada
Hann segir suðvestanáttina hafa verið
þráláta á þessu ári. „Svo kom þetta
norðankast um daginn sem stóð í
þrjár vikur, frá sumardeginum fyrsta
til 12. maí. Síðan hefur þessi frekar
svala vestlæga átt verið.“
Spurður hvort sjávarstraumarnir
hafi haft einhver áhrif á veðurfarið
segir hann að sjávarhitinn við Suð-
vesturland hafi verið undir meðallagi.
„Þetta er mest kalt loft að vestan, frá
heimskautasvæði Kanada, sem hef-
ur verið hérna á ferðinni. Sjórinn er
enn þá að hita það og þar af leiðandi
er hann að missa varma. En hann er
ekkert farinn að kæla loftið enn þá.
Það gæti komið seinna, við vitum ekk-
ert um það.“
Óvíst hvenær sumarið kemur
Veturinn var óvenju umhleypinga-
samur og vindhraði var talsvert yfir
meðallagi. Til dæmis hefur meðal-
vindhraði ekki verið meiri í 25 ár á
öllu landinu.
Trausti segist ekki vita hvenær
sumarið kemur. „Það er ekki útlit fyrir
að þetta breytist neitt sérstaklega á
næstunni. Það er áfram gert ráð fyrir
heldur svölu veðri og að það skiptist á
vestan- og norðanáttir.“
Mjög kalt sumarið 1979
Ef árið 1979 er skoðað betur kemur í
ljós að sumarið var einnig mjög kalt.
Meðalhitinn í Reykjavík var 8,3 stig
en á Akureyri var meðalhitinn aðeins
7,4 stig. Hvort þetta gefi fyrirheit um
komandi sumar er samt ómögulegt
að segja.
Kaldasta sumarið var aftur á móti
1983 þegar meðalhitinn var 7,8 stig í
Reykjavík. Þá var meðalhitinn í maí
tveimur stigum hærri en hann er
núna.
Engin hlýindi í vændum
Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðing-
ur hjá spádeild Veðurstofunnar, segir
að ekkert sé í kortunum um að mik-
il hlýindatíð sé í vændum. Á föstu-
daginn stefnir í ágætisveður á landinu,
fremur léttskýjað en síðan kemur
lægð og skil á laugardag og sunnudag
með rigningu um land allt. n
„Á síðustu sjötíu
árum hefur ekki
nema tuttugu sinnum
orðið kaldara, það sem af
er árinu í Reykjavík.
Freyr Bjarnason
freyr@dv.is
Trausti Jónsson Fyrstu tólf dagarnir í maí
voru óvenju kaldir.
Kalt í maí Maí
hefur ekki verið kaldari í
Reykjavík í 36 ár.
Mynd ÞorMar Vignir gunnarsson
Slógu mann
með öxi
Tveir karlmenn og kona brut-
ust inn á heimili manns í
Garðabæ um helgina, vopnuð
öxi. Maðurinn var sleginn með
öxinni, þeirri hlið sem bitlaus
er. Fólkið hefur játað árásina
og rannsókn málsins er langt
komin, hefur Vísir eftir að-
stoðaryfirlögregluþjóninum
Kristjáni Inga Kristjánssyni.
5
Hróp og köll og mikil stemning
Á þriðja þúsund mættu á Austurvöll
Á
þriðja þúsund manns voru
samankomnir á Austurvelli í
mótmælum undir yfirskrift-
inni Bylting! Uppreisn! á
þriðjudagskvöld. Mótmælafundur-
inn hófst kl. 17. Mótmælin voru frið-
samleg en þó heyrðust hróp og köll
og stemning var kröftug og undir-
aldan þung.
Í yfirlýsingu fundarhaldara
sagði meðal annars: „Margir með-
al almennings sjá sig nú knúna til að
koma núverandi ríkisstjórn frá störf-
um, hún er að valda varanlegum,
óafturkræfum skaða fyrir þjóðina.
Við erum reið. Við líðum þetta ekki
lengur.[…]Nú stendur þjóðin saman
og lætur heyra í sér!“
Ræðumenn voru þau Sig ríður
Bylgja Sig ur jóns dótt ir og Bragi Páll
Sig urðar son. Tón list ar menn irn ir KK,
Valdimar og Jón ína Björg Magnús-
dótt ir komu einnig fram. n