Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Page 12
Vikublað 27.–28. maí 201512 Fréttir Þ essar aðgerðir hafa nú þegar haft mikil áhrif á ýmis fyrir­ tæki og eiga eftir að lama mörg þeirra,“ segir Haukur Þór Hauksson, aðstoðar­ framkvæmdastjóri Samtaka fyrir­ tækja í sjávarútvegi (SFS) um áhrif verkfallsaðgerða Starfsgreinasam­ bandsins (SGS), Flóabandalagsins og Bandalags háskólamanna (BHM) á starfsemi félaga SFS. „Verkfallsaðgerðir þeirra hafa meðal annars áhrif á fiskvinnsluna og þar af leiðandi á veiðarnar líka. Svo hefur verkfall dýralækna áhrif á útflutning margra fyrirtækja. Þau eru með ákveðin viðskiptasambönd erlendis og eiga að afhenda fisk af ákveðnum gæðum og á ákveðnum tíma. Þetta er því alvarlegt mál og mikið í húfi,“ segir Haukur. Skipin fara ekki til veiða Félagar í Dýralæknafélagi Íslands, sem er aðildarfélag BHM, hafa ver­ ið í ótímabundnu verkfalli síðan 20. apríl. Útflutningsfyrirtæki í sjávar­ útvegi hafa því ekki mátt selja vör­ ur til landa utan Evrópska efnahags­ svæðisins (EES) þar sem dýralæknar þurfa að samþykkja útflutningsleyfi vegna sendinga til landa utan svæð­ isins. HB Grandi er eitt þeirra en fyrirtækið hefur ekki getað sent upp­ sjávarafurðir eins og loðnu til Rúss­ lands í meira en mánuð en landið er einn mikilvægasti markaður þess. „Við höfum þurft að gera ýmsar ráðstafanir til að fresta afhendingum og jafnvel að selja inn á aðra mark­ aði. Verkfallið hefur dregist á langinn og þetta er farið að valda verulegum óþægindum en við vonum að það fari að leysast úr þessu. Við erum fyrst og fremst að tala um frystar uppsjávarafurðir og loðnuhrogn,“ segir Brynjólfur Eyjólfsson, mark­ aðsstjóri HB Granda. „Ég get ekki sagt mikið um það hvernig næstu vikur verða ef ekki verður samið en við þurfum að setj­ ast niður og gera einhverjar ráð­ stafanir. Við vonum hins vegar að úr þessi leysist sem fyrst,“ bætir Brynjólfur við. Haukur Þór segir verkfallsaðgerð­ ir dýralækna einnig setja komandi makrílvertíð í óvissu þar sem þriðj­ ungur af öllum makríl sem veiðist hér við land sé seldur til Rússlands. „Við vitum einhver dæmi um að menn séu hættir að senda skip út til veiða. Ef þú ert í vafa um að geta unnið og sent áfram þá verður þú að draga úr veiðum. Þetta hangir allt á sömu spýtunni. Þó að þú sért með fé­ lag í útgerð en ekki með fiskvinnslu þá þarftu að selja aflann annað­ hvort á fiskmarkað eða beint til annars fyrirtækis og ef viðtakandinn er lamaður vegna verkfalla þá kaup­ ir hann ekki vörurnar. Það hafa ein­ hverjir spurt hvort ekki sé hægt að fleygja þessu í frystigáma en þú ger­ ir það ekki svo auðveldlega. Ef flutn­ ingageirinn og flugið fara síðan einnig í verkföll þá myndi það auðvitað einnig hafa áhrif og vandamálið yrði þá ekki einangrað við vinnslurnar og dýralæknana,“ segir Haukur. Tapa á „skæruverkföllum" Guðmundur Smári Guðmundsson, framkvæmdastjóri G.RUN hf. í Grundarfirði, segir sjávarútvegs­ fyrirtækið eitt þeirra sem hafi þurft að draga úr veiðum vegna verkfalls­ aðgerða. Verkfall dýralækna hafi þar engin áhrif heldur aðgerðir félags­ manna SGS sem hafa leitt til þess að fiskvinnsla lá niðri í nokkra daga í maí. „Þessi tveggja daga skæruverk­ föll eru að bitna á okkur því við höf­ um ekkert við fisk að gera á meðan vinnslan er lokuð,“ segir Guðmundur og bendir á að SGS hafi boðað að næsta lota verkfallsaðgerða þess verði 28. og 29. maí næstkomandi. „Við erum með tvö skip. Annað Verkföllin lama sjávarútveginn n Mikið í húfi fyrir sjávarútvegsfyrirtæki að samið verði áður en verkföll skella aftur á n Geta ekki selt fiskinn Framkvæmdastjóri G.RUN Guðmund- ur Smári Guðmundsson segir verkföll SGS helst bitna á félagsmönnum stéttarfé- lagsins. Frestað til 2. júní Verkfallsaðgerðum VR, LÍV, Flóabandalagsins og StéttVest, sem áttu að hefjast 28. maí næstkomandi, var á mánudag frestað um fimm sólarhringa eða til 2. júní. „Ekki verður upplýst um einstaka efnisþætti viðræðna aðila fyrr en að gengið hefur verið frá drögum að samningi sem lagðar verði fyrir samninganefndir félaganna. Stefnt er að því að niðurstaða liggi fyrir eigi síðar en 28. maí næstkomandi,“ sagði í tilkynningu stéttarfélaganna. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.