Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 36
Vikublað 27.–28. maí 201524 Menning
F
ranska kvikmyndahátíðin
í Cannes er í raun pólitískt
hugarfóstur menningarmála-
ráðherra Frakklands, Jean
Zay, sem kom hátíðinni á legg
árið 1939. Zay vildi koma á menn-
ingarviðburði af sama toga og kvik-
myndahátíðin í Feneyjum. Úr varð
að hátíðin var haldin í Cannes í fyrsta
skiptið árið 1939. Það ár fékk meðal
annars bandaríski leikstjórinn Cecil
B. DeMille verðlaun fyrir lestarvestr-
ann Union Pacific sem fjallaði um
baráttu bandarískra landnema við
að leggja járnbrautarteina þvert yfir
landið.
Við tók seinni heimsstyrjöldin
og kvikmyndahátíðin var sett í salt.
Cannes-hátíðin var ekki haldin aftur
fyrr en árið 1946 og þá um haustið.
Því fagnar hátíðin í raun 60 ára af-
mæli sínu í ár. Árið 1946 fékk meðal
annars indverski leikstjórinn Chetan
Anand aðalverðlaun hátíðarinnar
fyrir myndina Lowly City. Anand
var fyrsti indverski leikstjórinn til
þess að njóta alþjóðlegrar hylli fyrir
kvikmyndir sínar, en hann er einnig
þekktur fyrir að vera brautryðjandi
í indverskum sósíal-realisma í kvik-
myndalistinni.
Hörð samkeppni
En að hátíðinni í ár. Þar eignuðumst
við Íslendingar okkar fyrsta sigur-
vegara fyrir kvikmynd í fullri lengd,
og er óhætt að segja að mynd Gríms
Hákonarsonar, Hrútar, sé þegar
komin á sama stall og Börn náttúr-
unnar, eftir Friðrik Þór Friðriksson,
sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna.
Og raunar ekki útilokað að Hrútar
fari það langt, enda gjaldgeng til
Óskarsverðlauna eftir þátttökuna á
Cannes.
Hrútar unnu í flokknum „Un
Certain Regard“ en alls kepptu
átján myndir í flokknum. „Ég var að
vinna ansi hæfileikaríka leikstjóra
hérna, og það gerir sigurinn eigin-
lega bara sætari,“ sagði Grímur þegar
DV ræddi við hann skömmu eftir
að hann sigraði í sínum flokki. Og
það er óhætt að taka undir þá full-
yrðingu. Verðlaunin er í raun veitt
listrænum myndum sem skarta ekki
risastjörnum í aðalhlutverki eða fjár-
sterkum framleiðendum sem vinna
að hag myndanna. Þannig má segja
að verðlaunin sem Grímur vann hafi
í raun verið hin listrænu kvikmynda-
verðlaun ef svo má að orði komast,
og er það sá skilningur sem helstu
fagtímarit innan kvikmyndaheims-
ins leggja í flokkinn. Því er gríðar-
lega mikill áhugi á verðlaununum af
hálfu fjölmiðla.
Japanskur hrollvekjumeistari og
ungverskir hundar
Meðal mynda sem hafa sigrað í
flokknum má nefna hina ótrú-
lega áhugaverðu heimsendamynd
White God, frá Ungverjalandi. Hún
var sýnd í Bíó Paradís og sagði frá
uppreisn flökkuhunda í Búda-
pest með blóðugum afleiðingum.
Myndin var nokkurs konar mynd-
líking fyrir þjóðfélagshópa sem
mega þola mikla kúgun í Evrópu, svo
sem Rómafólk. Eins náði rúmenska
myndin The Death of Mr. Lazarescu
nokkurri hylli á sínum tíma. Aðrir
kvikmyndagerðarmenn sem hlutu
verðlaun í sama flokki, þó ekki aðal-
verðlaunin, voru meðal annars jap-
anski leikstjórinn Kiyoshi Kurosawa,
sem leikstýrði myndinni „Journey to
the Shore“. Kurosawa er vel þekkt-
ur í sínu heimalandi en hann hefur
einnig náð nokkurri alþjóðlegri hylli
með sálfræðihrollvekjum sem hann
hefur leikstýrt. Þá kannast eflaust
margir við bandarísku endurgerðina
af kvikmyndinni Kairo, en á ensku
heitir hún Pulse. Sú náði töluverðri
athygli hryllingsmyndaaðdáenda
en það var hryllingsmyndakóngur-
inn sjálfur, Wes Craven, sem skrifaði
handritið að endurgerðinni.
Frá Indlandi til Írans
Það var svo króatíski leikstjórinn
Dalibor Matanic sem hlaut sérstök
dómaraverðlaun fyrir mynd sína,
The High Sun. Dalibor er ekki mjög
þekktur fyrir utan sitt heimaland en
nýjasta mynd hans er sú níunda sem
hann leikstýrir. Kvikmynd hans, Fine
Dead Girls, frá árinu 2002, hlaut mik-
ið lof gagnrýnenda og fékk nokkra
athygli fyrir utan landsteinana. Þar
lýsti hann brjálsemi eftirstríðsáranna
í Króatíu með því að búa til þver-
skurð af samfélaginu og koma þeim
öllum fyrir í einni blokk. Myndin var
sögð ótrúlega hugrökk innsýn í væng-
brotið samfélag sem hafði mátt þola
skelfilegt miskunnarleysi stríðsátaka.
Þau Ida Panahandeh og Neeraj
Ghaywan deildu svo með sér nýliða-
verðlaununum. Ida, sem er frá Íran,
gerði myndina Nahid sem fjallar um
fráskilda konu sem reynir að sjá fyr-
ir sér og syni sínum. Þegar hún verð-
ur ástfangin af öðrum manni stend-
ur hún frammi fyrir ævafornum
íslömskum lögum þar sem hún miss-
ir forræði yfir syni sínum ef hún hefur
sambúð með öðrum karlmanni. Fyrr-
verandi eiginmaður hennar er að auki
vonlaus spilafíkill og enn ástfanginn
af fyrrverandi eigin konu sinni.
Ghaywan er frá Indlandi en mynd
hans Masaan, sem þýðir hringrás lífs-
ins, segir sögu fjögurra einstaklinga í
íhaldssömu indversku samfélagi, og
baráttu þeirra við gildi samfélagsins
og togstreitu nýrrar kynslóðar við úr-
eltar hefðir í Indlandi. Fréttir herma
að myndinni hafi verið fagnað gífur-
lega með standandi lófaklappi í fimm
mínútur.
Óvænt úrslit
Það kom flestum á óvart þegar
Dheepan, eftir franska leikstjór-
ann Jacques Audiard, hlaut Gullna
pálmann á Cannes í ár. Kvikmynda-
áhugamenn og aðrir veðjuðu á lesb-
íska dramað Carol, en sú mynd stát-
aði af stórstjörnum á borð við hina
áströlsku Cate Blanchett og Rooney
Mara, sem lék meðal annars í endur-
gerðinni af Stúlkunni með dreka-
tattúið sem David Fincher leikstýrði.
Audiard er 63 ára gamall og marg-
verðlaunaður kvikmyndagerðar-
maður. Hann vann Bafta-verðlaunin
árið 2005 í flokki mynda sem eru ekki
á ensku. Það var fyrir myndina The
Beat That My Heart Skipped. Hann
fékk svo sömu verðlaun nokkru síð-
ar fyrir myndina A Prophet en margir
hér á landi kannast við þá mynd. Hún
er kröftugt fangelsisdrama um lífs-
baráttu smákrimma frá Alsír innan
veggja fransks fangelsis.
Þó að Carol hafi ekki sigrað sem
besta myndin þá fékk Rooney Mara
verðlaun fyrir bestan leik í aðalhlut-
verki kvenna og sýndi og sannaði að
hún er á meðal fremstu leikara ver-
aldar. Verðlaunin fyrir besta handritið
fóru svo til mexíkóska kvikmynda-
gerðarmannsins Michaels Franco
sem leikstýrði myndinni Chronic. Þar
má sjá gamlan ref, Tim Roth, í aðal-
hlutverki. Þess má geta að Franco
sigraði í sama flokki og Grímur Há-
konarson, „Un Certain Regard“, 2012
með mynd sinni After Lucia.
Lærlingur Béla Tarr
Líklega er merkilegasti sigurinn á
Cannes, hugsanlega að Grími undan-
skildum, ótrúlegur árangur Lászlós
Nemes. Hann er fæddur 1977 en
frumraun hans, helfarardramað Son
of Saul, hlaut Grand Prix-verðlaunin í
ár, sem eru í raun önnur verðlaun há-
tíðarinnar.
Það má segja að Nemes sé lærling-
ur ungverska kvikmyndagerðar-
mannsins Béla Tarr, en Nemes var
aðstoðarmaður hans um skeið. Nem-
es ólst upp í París en er ungverskur
að uppruna. Hann varð hrifinn af
hryllingsmyndum í æsku og æfði
Óvæntir sigrar og athyglisverðar kvikmyndir
Cannes einkenndist af óvæntum sigrum auk þess sem Íslendingar eignuðust sigurvegara á hátíðinni
Valur Grettisson
valur@dv.is
Þær eru nokkrar áhugaverðar myndirnar
sem voru á Cannes-hátíðinni í ár. Meðal
annars Chronic þar sem Tim Roth fer með
aðalhlutverkið en leikstjóri myndarinnar
fékk verðlaun fyrir besta handritið.
Þá hefur mynd Justin Kurzel eftir einu
þekktasta leikriti Williams Shake-
speare, Macbeth, vakið töluverða athygli
kvikmyndaáhugamanna. Þetta er í
annað skiptið sem þessi blóðuga saga er
kvikmynduð en Roman Polanski leikstýrði
Macbeth árið 1971.
Það eru þau Michael Fassbender, sem var
algjörlega magnaður í Hunger og Shame, og
Marion Cotillard, einhver dáðasta leikkona
Frakklands, sem leika konungshjónin.
Myndin hefur fengið góða gagnrýni en
leikstjórinn gengur svo langt að sviðsetja
þessa svakalegu sögu í sjálfu helvíti.
Love eftir fransk-argentínska leikstjór-
ann Gaspar Noé hlýtur svo að komast
á þennan lista. Myndin er afar opinská
kvikmynd um kynlíf og í þrívídd að auki.
Plaköt myndarinnar hafa þegar valdið
gífurlegri úlfúð en þar má sjá konu með lim í
munninum og sæði vellur upp úr limnum.
Myndin hefur fengið slæma dóma, en
þeir sem þekkja til Gaspars vita að hann
fer sjaldnast neinar leiðir nema sínar
eigin. Þannig gerði hann hina stórkostlegu
Irreversible sem er líklega frumlegasta og
kröftugasta hefndarmynd sem hefur verið
gerð síðasta áratuginn. Into the Void var
einnig einstök lífsreynsla en þar var fylgst
með eftirlífi fíkniefnasala sem ráfaði um
Tókýó. Í stuttu máli; Love er ein af athygl-
isverðustu myndum ársins, þó að hún sé
langt því frá allra.
Áhugaverðar myndir
Grímur og keppinautarnir Hörkukvikmyndagerðarfólk atti kappi við Grím sem hafði
þó betur að lokum.
Rafport ehf • Nýbýlavegur 14 • 200 Kópavogur • S: 554-4443 • rafport.is
Fermax mynd-
dyrasíma kerfi
er bæði fáguð
og flott vara
á góðu verði
sem hentar
fyrir hvert
heimili. Hægt
að fá með eða
án myndavélar
og nokkur útlit
til að velja um.