Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Side 8
Vikublað 27.–28. maí 20158 Fréttir Beco umhverfisvænir kúkapokar Smáralind • Kringlunni • Reykjanesbæ • sími 511 2022 • www.dyrabaer.is STÓRIR NIÐURBRJÓTANLEGIRSTERKIR B rynhildur Lára Hrafnsdóttir er aðeins sex ára gömul og greindist á fyrsta ári með NF1-sjúkdóminn sem er ætt- gengur og ólæknandi, en afar sjald- gæfur. Stundum kemur sjúkdómur- inn stökkbreyttur, sem er raunin í hennar tilfelli. Sjúkdómurinn veld- ur æxlagerum sem eru ekki illkynja en geta valdið miklum skaða. Sjúk- dómurinn hefur þegar kostað Bryn- hildi Láru litlu sjónina og getur valdið enn alvarlegri skaða ef ekki tekst að finna henni rétt úrræði til meðferðar. Þrátt fyrir dugnað og fórnfýsi heilbrigðisstarfsfólks hér á landi treysta foreldrar Brynhildar Láru sér ekki til að vera með hana hér heima lengur vegna vanbúnaðar í heilbrigðiskerfinu, fjárskorts, álags og nú síðast – yfir vofandi verkfalla. Faðir Brynhildar Láru, Hrafn Ótt- arsson, er nýkominn heim frá Sví- þjóð, þar sem hann hefur tekið á leigu húsnæði fyrir fjölskylduna sem flytur út í sumar. „Þetta eru smáæxlager, tauga- æxli sem leggjast á taugar líkam- ans. Margir ganga með þennan sjúk- dóm alla ævi einkennalausir eða með skaðlaus einkenni, til dæmis litla hnúða undir húð sem angra fólk ekki. En við fyrstu rannsóknir á Brynhildi Láru, er hún var á fyrsta ári, komu í ljós einkenni á sjóntaugum og hún er núna alveg blind,“ segir Hrafn. Hrafn segir að læknar hafi staðið ráð- þrota gagnvart ástandi Brynhildar Láru. Möguleg lyf hafa afar slæmar aukaverkanir og ekki verður gripið til þeirra nema sem neyðarúrræðis. Til framtíðar verði að finna meðferð sem ekki virðist í sjónmáli á Íslandi í dag. „Við erum ekkert feimin við að koma heim aftur ef þetta gengur ekki upp til lengdar í Svíþjóð. En það skiptir okkur miklu máli að komast í samband við læknavísindin erlend- is. Ef þetta gengur ekki upp getum við að minnsta kosti sagt að við höf- um reynt allt sem við gátum. Þetta verður auðvitað bæði hræðilega dýrt og hræðilega erfitt. En við getum ekki setið hér heima og átt það versta yfir höfði okkar. Við verðum að gera eitt- hvað í málunum því það dýrmætasta sem maður á eru börnin manns, fjöl- skyldan,“ segir Margrét Grjetarsdóttir, móðir Brynhildar Láru. Ítarlega er fjallað um málið á vef okkar dv.is n agustb@dv.is Flýja með langveikt barn Flytja til Svíþjóðar vegna vanda heilbrigðiskerfisins á Íslandi AðstoðArmennirnir eru jAfndýrir og ráðherrAr n Tíu ráðherrar með fjórtán aðstoðarmenn n Þrettán á launum sem slíkir n Árslaunin 139 milljónir Þ að kostar ríkissjóð jafnmikið að greiða tíu ráðherrum ríkis stjórnarinnar laun á ári og þrettán aðstoðar- mönnum þeirra. Alls fá ráðherrarnir og starfandi aðstoðar- menn þeirra 278 milljónir króna í árslaun, 139 milljónir hvor hópur. Í dag eru aðstoðarmenn ráðherra fjórtán en þingmaðurinn Ásmundur Einar Daðason þiggur ekki sérstök laun sem aðstoðarmaður Sigmund- ar Davíðs Gunnlaugssonar forsætis- ráðherra. Fjórir með tvo aðstoðarmenn Mikið hefur verið fjallað um þann fjölda aðstoðarmanna sem ráðherr- ar núverandi ríkisstjórnar hafa og hrókeringar á aðstoðarmönnum. Hefur ríkisstjórnin þurft að bregð- ast við fréttaflutningi af fjölda að- stoðarmanna með athugasemdum um þann fjölda sem tilgreindur hef- ur verið í fjölmiðlum hverju sinni. Fjórir ráðherrar hafa nú tvo að- stoðarmenn sem er sá fjöldi sem leyfilegur er án sérstaks samþykk- is í ríkisstjórn. Þessir ráðherrar eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jó- hannsson, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, Bjarni Benedikts- son, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ólöf Nordal innanríkisráðherra. Laun á við skrifstofustjóra Aðstoðarmenn ráðherra og ríkis- stjórnar eru ráðnir samkvæmt heim- ild í 22. grein laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands. Samkvæmt henni heyra aðstoðarmenn beint undir ráðherra og er meginhlutverk þeirra að vinna að stefnumótun á málefnasviði ráðuneytis undir yfir stjórn ráðherra og í samvinnu við ráðuneytisstjóra. Um laun og starfskjör aðstoðarmanna ráðherra fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs um kjör skrifstofustjóra. Fram kom í umfjöllun Fréttablaðsins í desember síðastliðnum að aðstoðarmenn ráð- herra séu því með 764.614 krónur í mánaðarlaun auk 128.754 krónur í svokallaðar kjararáðseiningar. Alls er því hver hinna þrettán aðstoðar- manna sem þiggja laun samkvæmt þessu með 893.368 krónur á mánuði, eða rúmar 10,7 milljónir í árslaun. Árslaun aðstoðarmannanna þrett- án nema því rétt rúmlega 139 millj- ónum króna á ári samkvæmt þessu. Á þriðjudag var tilkynnt að Sig- urður Ingi Jóhannsson hefði ráðið Ágúst Bjarna Garðarsson sem að- stoðarmann sinn en hann tekur við af Helgu Sigurrós Valgeirsdóttur sem lét af störfum fyrir skemmstu og hóf störf hjá Arion banka. Eftir því sem DV kemst næst fór fjöldi að- stoðarmanna í ríkisstjórn Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks hæst í 16 á kjörtímabilinu. Launaskrið hjá ráðherrum DV fjallaði nýlega um kjör ráðherra ríkisstjórnarinnar og hvernig laun forsætisráðherra og ráðherra hefðu frá hruni hækkað umfram launa- vísitölu. Laun forsætisráðherra um ríflega 36 prósent en annarra ráð- herra um ríflega 34 prósent. Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson er með 1.272 þúsund krónur á mánuði samkvæmt kjararáði en aðrir ráð- herrar 1.150 þúsund krónur. Það þýðir að árslaun forsætisráðherra eru rúmar 15,2 milljónir en árslaun hinna níu ráðherranna samtals 124,2 milljónir. Þetta gera árslaun upp á samtals ríflega 139 milljónir króna hjá öllum tíu ráðherrum ríkis stjórnarinnar. n Þetta er fólkið á bak við ráðherrana n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra Aðstoðarmenn: Jóhannes Þór Skúlason, Ásmundur Einar Daðason n Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra Aðstoðarmenn: Svanhildur Hólm Valsdóttir, Teitur Björn Einarsson n Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Aðstoðarmenn: Benedikt Sigurðsson, Ágúst Bjarni Garðarsson n Ólöf Nordal innanríkisráðherra Aðstoðarmenn: Þórdís Kolbrún Reyk- fjörð Gylfadóttir, Kristín Haraldsdóttir (lögfræðilegur aðstoðarmaður ráðherra) n Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra Aðstoðarmaður: Ingvar Pétur Guðbjörnsson n Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra Aðstoðarmaður: Sigríður Hallgrímsdóttir n Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra Aðstoðarmaður: Sunna Gunnars Marteinsdóttir n Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra Aðstoðarmaður: Ingveldur Sæmundsdóttir n Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra Aðstoðarmaður: Matthías Páll Imsland n Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra Aðstoðarmaður: Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir Upplýsingar um aðstoðarmenn fengnar af vefsíðum ráðuneytanna Þrettán aðstoðar- menn á launum sem slíkir: n Laun á mánuði alls: 10,7 milljónir króna. n Árslaun alls: 139 milljónir króna. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ríkisstjórn Íslands Árlegur launakostnaður ríkissjóðs vegna ráðherra ríkisstjórnarinnar og aðstoðarmanna þeirra nemur 278 milljónum króna. MyND StJoRNARRAD.IS Tíu ráðherrar n Laun á mánuði alls: 11,6 milljónir króna. n Árslaun alls: 139 milljónir króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.