Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Page 4
Vikublað 27.–28. maí 20154 Fréttir
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofanar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Háaleitisbraut
lokað í viku
Þriðjudaginn 26. maí var byrjað
að grafa fyrir nýrri vatnslögn
með fram Kringlumýrarbraut
– þvert á Háaleitisbraut. Vegna
framkvæmdanna verður þeim
kafla Háaleitisbrautar sem
liggur frá Kringlumýrarbraut að
Skipholti lokað í eina viku.
Í tilkynningu segir að lokunin
hafi lítil áhrif á umferð bíla og að
nýr hjólastígur muni njóta góðs
af framkvæmdinni.
„Framkvæmdin hefur
ekki áhrif á umferð bíla um
Kringlumýrarbraut að frátöldu
því að ekki verður hægt að beygja
af Kringlumýrarbraut inn á
þennan kafla Háaleitisbrautar að
Skipholti. Lokunin hefur aðeins
áhrif á leið 11 hjá Strætó og verða
tilkynningar settar upp á þær
biðstöðvar sem falla tímabundið
úr þjónustu. Gangandi og
hjólandi um gatnamótin þurfa
einnig að leggja lykkju á leið sína.“
Vildu fara í
fangaklefa
Tveir einstaklingar gistu í
fangaklefa hjá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu
aðfaranótt þriðjudags.
Þessir tveir óskuðu eftir
gistingu í fangaklefa og
sögðust ekki eiga í nein
hús að venda. Í dagbók
lögreglunnar kemur fram að
umræddir aðilar eigi hvergi
heima. Þeir hefðu óskað eftir
gistingu í fangaklefa þar sem
ekkert annað gistipláss sem
þeir gætu sótt í væri laust. Af
öðru úr dagbók lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu má
nefna að lögreglu barst
tilkynning um rifrildi sem
endaði með slagsmálum. Þar
sluppu aðilar þó við alvarlega
áverka.
Neitar að taka þátt
í verðkönnun ASÍ
n Fjórar fiskbúðir neituðu að taka þátt n Voru flestar með hæsta verðið síðast
V
erðlagseftirlit ASÍ gerði
verðsamanburð í tuttugu
og fimm fiskbúðum og öðr
um verslunum með fisk
borð, víðs vegar um landið
á miðvikudaginn. Kannað var verð
á 32 algengum tegundum fiskafurða
en það sem vekur athygli er að fjórar
fiskbúðir neituðu að taka þátt, þar á
meðal Fiskikóngurinn.
Með hæsta verðið í fyrra
Verðlagseftirlit ASÍ hefur í gegnum
árin kannað verð á ýmiss konar vöru
og þjónustu og hafa þær kannanir
ávallt gengið vel nema þegar kemur
að verslun með fiskafurðir. Þá geta
verðlagseftirlitsmenn komið að lok
uðum dyrum.
Mikill verðmunur er á milli versl
ana en í fyrra var til að mynda oft
ast 50 til 100 prósenta verðmunur
á fiskafurðum. Könnunin í fyrra er
einmitt sögð ástæða þess að þrjár af
þessum fjórum fiskbúðum neituðu
að taka þátt.
Í könnuninni í fyrra voru þessar
þrjár fiskbúðir, það er Fiskbúðin Haf
berg, Fiskikóngurinn og Fiskbúðin
Vegamót, með dýrasta fiskinn.
Hæsta verðið í síðustu könnun sem
þessar verslanir tóku þátt í, mánu
daginn 2. júní í fyrra, var hjá Fisk
búðinni Hafberg í sjö tilvikum af 23,
hjá Fiskikónginum Sogavegi í fimm
tilvikum og hjá Fiskbúðinni Vega
mótum í fjórum tilvikum.
Dýrustu segja nei
„Það hangir oft saman að þegar menn
neita þátttöku þá er það yfirleitt í kjöl
far þess að bent er á að þeir eru dýrari
en aðrir. Ódýrari verslunin segir ekki
nei við þátttöku í verðkönnun. Það
eru aðilarnir sem eru dýrari en aðr
ir,“ segir Kristjana Birgisdóttir, verk
efnastjóri verðlagseftirlits hjá ASÍ.
Hún vill ekki tjá sig um einstaka
verslanir sem neituðu þátttöku en
segir könnunina ítarlega og þannig
úr garði gerða að allir eiga að geta
tekið þátt.
Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi
Fiskikóngsins, er því ósammála.
Hann vill fá fleiri fiskbúðir í könnun
ina sem hann segir ekki marktæka
eins og er en tuttugu og fimm fisk
búðir tóku þátt í könnuninni í ár.
Hann segir talsverða óánægju hafa
ríkt á meðal fisksala um verðkönnun
ina í mörg ár.
Segir könnunina ekki marktæka
„Ég harma að menn geti ekki unnið
verðkannanir á réttum forsendum,
horft til færri tegunda og haft þær
einfaldari og þannig gert þær mark
tækari,“ segir Kristján Berg sem vill
meina að framkvæmd könnunarinn
ar fari ekki saman með þeirri vöru
sem hann býður upp á.
„Við erum að skera fiskinn
þannig að bestu bitarnir kosta eitt
hvað ákveðið, lélegu bitarnir kosta
eitthvað ákveðið og gúllas síðan eitt
hvað ákveðið. Þetta er bara allt ann
að. Þorskflök og þorskhnakkar eru
til dæmis ekki sami hluturinn. Stórir
þorskhnakkar og litlir þorskhnakk
ar eru ekki það sama og svo mætti
lengi telja,“ segir Kristján Berg,
ósáttur við ASÍ.
Þá segir hann veiðarfæri og ald
ur á fiski skipta mjög miklu máli
þegar hann kaupir inn fisk fyrir sín
ar verslanir.
„Fólk má hringja“
„Þetta hefur verið hratt og illa unnið
undanfarin ár. Við hræðumst ekki
verðkannanir, enda má fólk hringja og
koma í verslanir okkar, hvenær sem er.
Allt er ítarlega verðmerkt og tegunda
merkt í fiskborðum okkar. En það
verður að bera saman réttu hlutina
þegar verðkannanir eru gerðar. Við
berum ekki saman epli og appelsín
ur. Það verður að bera saman gæði
og réttar vörur, annað er óviðunandi
hvað mig varðar að mínu mati og al
gerlega óásættanlegt fyrir neytendur.“
Kristjana er þessu ósammála.
Vandað sé til verka þegar verðlags
eftirlitið framkvæmir verðkönnun og
allir sitji við sama borð.
„Ég er til dæmis að bera saman
ódýrasta kílóverðið af ýsuflökum í
þessari könnun. Er hans ýsuflak betra
en í hinum 25 fiskbúðunum sem tóku
þátt í könnuninni?“
Mikill verðmunur í ár
Könnunin í ár sýndi, líkt og í fyrra,
mikinn verðmun milli fiskbúða.
Lægsta verðið var oftast að finna hjá
Litlu Fiskbúðinni Miðvangi Hafnar
firði eða í 14 tilvikum af 32 og hjá Litlu
Fiskbúðinni Háaleitisbraut í átta til
vikum. Verslunin Kjöt og fiskur Berg
staðastræti var með hæsta verðið
í sex tilvikum af 32 og Melabúðin,
Hafið fiskiprinsinn Hlíðasmára og
Gallerý fiskur Nethyl voru með hæsta
verðið í fjórum tilvikum. Aðeins Fisk
búð Sjávar fangs Ísafirði átti til all
ar tegundirnar sem skoðaðar voru í
könnuninni en þar á eftir kom Gallerý
fiskur sem átti til 30 tegundir.
Fæstar tegundirnar sem skoð
aðar voru, voru til hjá Fiskbúðinni
Sjávar höllin Hólagarði eða aðeins
átta tegundir af 32 og SamkaupÚrval
Hafnarfirði átti 12 tegundir.
Munur á hæsta og lægsta verði í
könnuninni var frá 24 prósentum
upp í 153 prósent. Mestur verðmun
ur í könnuninni var á súrum hval
sem var dýrastur á 3.763 kr./kg. hjá
Fiskbúð Sjávarfangs, en ódýrastur
á 1.490 kr./kg. hjá Litlu fiskbúð
inni Háaleitisbraut en það er 2.273
króna verðmunur eða 153 prósent.
Minnstur verðmunur var á roðflettu
og beinlausu ýsuflaki sem var ódýr
ast á 1.690 kr./kg. hjá Litlu fiskbúð
inni Miðvangi en dýrast á 2.090 kr./
kg. hjá Hagkaupum Kringlunni og
Kjöt og fisk, en það er 400 króna
verðmunur eða 24 prósent. n
„Er hans ýsuflak
betra en í hin-
um 25 fiskbúðunum sem
tóku þátt í könnuninni?
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Fiskikóngurinn
Kristján Berg Ásgeirs-
son er ekki sáttur við
verðkönnun ASÍ.