Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 18
2 Sumarnámskeið - Kynningarblað Ö rvar Ingi Jóhannesson hefur kennt börnum og fullorðnum á píanó í tíu ár, en sjálfur lauk hann burtfararprófi árið 2006. Örvar Ingi býður upp á nám­ skeið í píanókennslu fyrir börn, ung­ linga og fullorðna og eru námskeið í boði allt árið. Innritun á sumar­ námskeið er nú hafin. Námskeið eru í boði allt árið og eru sumarnámskeiðin tilvalin fyrir þá sem vilja prófa að læra á píanó, en sumarnámskeiðin eru eitt skipti í viku í sex vikur. „Sumarnámskeiðin eru mjög sniðug fyrir börn og fullorðna sem vilja prófa að læra á píanó, en ekki skuldbinda sig heila önn í heilt ár, segir Örvar Ingi. Margir sem hafa byrjað að læra á sumarnámskeiði hafa síðan haldið náminu áfram. Margir nemenda Örvars Inga hafa fylgt honum í nokkur ár og eru þeir á öllum aldri, sá yngsti sem er í námi núna er sjö ára og sá elsti er 75 ára, en elsti nemandinn sem Örvar Ingi hefur kennt var 86 ára. Það er því aldrei of seint að byrja að læra. „Það er enginn aldursflokkur algengari en annar,“ segir Örvar Ingi. „ Sumir hafa aldrei lært á hljóðfæri þegar þeir byrja.“ Örvar Ingi nefnir sem dæmi að einn nemandi hans hafi lært í sex ár á sínum tíma, síðan ekkert spilað í 35 ár, en byrjað aftur að læra í fyrra og sé að ná fínum árangri. Örvar Ingi hefur einnig útbúið eigið kennsluefni fyrir börn og kom fyrsta heftið út í byrjun þessa árs. Fleiri kennarar en Örvar Ingi nota heftið í kennslu hjá sér. Tónfræði er kennd með í tímum, en ekki eru sér­ stakir tónfræðitímar. „Ég kenni hins vegar spuna, að spila eitthvað og að spila eftir eyranu,“ segir Örvar Ingi. Píanókennsla Örvars Inga er að Suðurlandsbraut 32, Reykjavík, sími 857­3224, netfang pianokennsla@ hotmail.com, heimasíða piano­ kennsla.is og pianobaekur.is. n Vikublað 27.–28. maí 2015 Aldrei of seint að byrja að læra Sumarnámskeiðin eru tilvalin fyrir þá sem vilja prófa Sumarbúðir KFUM og KFUK eru vinsæll valkostur Markmiðið að efla þroska einstaklingsins til líkama, sálar og anda Aníta Nótt Sigurgeirsdóttir 8 ára. Píanóhefti Örvars Inga. Eitt hefti hefur komið út fyrir börn og annað fyrir fullorðna. Fleiri eru í smíðum. Kennarinn. Örvar Ingi Jóhannesson og áhugasamur nemandi. S umarbúðir KFUM og KFUK eru vinsæll valkostur barna og unglinga á hverju sumri. Flestir dvalarflokkar eru 5–7 daga langir og er boð­ ið upp á fjölbreytt úrval aldurskiptra flokka fyrir krakka á öllum aldri. Það er margt í boði í sumarbúðunum og tíminn flýgur áfram við leik og störf. „Hópleikir, íþróttir, útivera, list­ sköpun, bátsferðir, söngur, leikrit og svo ótal margt fleira er meðal þess sem krakkarnir fá að gera í sumar­ búðunum og að sjálfsögðu er það líka breytilegt eftir aldri og að ein­ hverju leyti ólíkt á milli sumarbúða,“ segir Jóhann Þorsteinsson, æsku­ lýðsfulltrúi hjá KFUM og KFUK. Sumarbúðir KFUM og KFUK eru fimm talsins, Vatnaskógur, Vindás­ hlíð, Kaldársel, Ölver og Hólavatn. Að auki býður félagið upp á leikja­ námskeið í Kópavogi og í Reykjanes­ bæ þar sem krakkarnir geta komið að morgni og farið heim síðdegis. Nú þegar hafa tæplega tvö þúsund börn verið skráð fyrir sumarið en búast má við að um þúsund börn bætist í þann hóp áður en fjörið byrjar í júní. Saga sumarbúða KFUM og KFUK er tæplega hundrað ára og það er því næsta öruggt að starfið byggir á mik­ illi reynslu, „en markmiðið er alltaf það sama, að efla þroska einstak­ lingsins til líkama, sálar og anda,“ segir Jóhann. Allar frekari upplýsingar um sumartilboð KFUM og KFUK má fá í síma 588­8899 og á heimasíðu fé­ lagsins kfum.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.