Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Qupperneq 19
Kynningarblað - Sumarnámskeið 3Vikublað 27.–28. maí 2015
H
jónin Edda Rún Ragnars-
dóttir og Sigurður Vignir
Matthíasson hafa starfrækt
Reiðskóla Reykjavíkur í
Víðidal síðan 2001.
Reiðskóli Reykjavíkur býður upp
á sumarnámskeið fyrir börn og ung-
linga á aldrinum 6–15 ára, um er að
ræða tíu virka daga og börnin mæta
á hverjum virkum degi í tvær vikur,
annaðhvort fyrir eða eftir hádegi,
frá kl. 9–12 eða kl. 13–16. Einnig
er hægt að velja um viku ef þannig
stendur á, en mælt er með tveimur
vikum. „Námskeiðin enda svo með
grillveislu og foreldrasýningu,“ segir
Edda.
Kennt er á mismunandi stigum,
annars vegar byrjendanámskeið
fyrir börn sem hafa aldrei komið ná-
lægt hestum áður, framhald eitt fyr-
ir þau sem hafa til dæmis farið einu
sinni á námskeið áður eða hafa smá
reynslu af hestum og framhald tvö
fyrir þau sem hafa tekið námskeið
áður eða valda námskeiðinu.
Boðið er upp á ævintýranám-
skeið tvisvar yfir sumarið, nám-
skeiðin eru fyrir börn sem eru
orðin vel vön. Þá er riðið út í nátt-
úruna, til að mynda upp í Heið-
mörk og Hólmsheiði. „Við höfum
frábærar reiðleiðir í allar áttir hér í
hjarta borgarinnar,“ segir Edda. „Við
sundríðum ef veður leyfir, alls kon-
ar kúnstir gerðar, það er borðað úti
í náttúrunni og þetta er svona ferða-
lagafílingur.“
Gangskiptinganámskeiðið er síð-
an í boði fyrir börn sem vilja læra að
skipta um gangtegundir, þegar það
á að gerast, inni á hringvelli undir
stjórn kennara. „Börnin eru tekin
upp á myndband og farið yfir setu
og stjórnun hestsins,“ segir Edda.
„Í hóp eru 20 börn með tveimur
kennurum og tveimur hópstjórum
ásamt leiðbeinendum. Í byrjenda-
hópnum er nánast einn leiðbein-
andi með hverju barni. Það eru hins
vegar aldrei fleiri en tíu börn á baki í
einu,“ segir Edda.
Hvert barn fær úthlutað sínum
hesti og er með hann út hvert nám-
skeið. „Þannig myndast samband
milli barns og hests,“ segir Edda.
„Börnin eru oft í faðmlögum við
sinn hest þegar námskeiði lýkur og
koma síðan í heimsókn nokkrum
sinnum yfir sumarið.“ Edda segir
að sama eigi við um leiðbeinend-
ur skólans, en margar stúlknanna
sem kenna hjá henni hafa kennt
hjá Reiðskólanum í nokkur ár og
myndast því ekki síður samband
milli þeirra og barnanna.
Reiðskóli Reykjavíkur er að
Fákabóli 3, Víðidal. Skráning á
námskeið fer fram hjá Eddu Rún í
síma 777-8002. Allar nánari upplýs-
ingar má einnig finna á heimasíðu
skólans reidskoli.is og á netfanginu
reiðskoli@reiðskoli.is. Reiðskóli
Reykjavíkur er með frístundakort
ÍTR. n
Samband barns við hest
myndast á hverju námskeiði
Reiðskóli Reykjavíkur: Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga
Sundfélagið Ægir starfrækir sundskóla yfir sumartímann fyrir börn frá 4 ára aldri í innilauginni í Breiðholtslaug við
Austurberg. Hvert námskeið er í 2 vikur og kennt er daglega á virkum dögum í 30 mínútur í senn. Hvert tveggja vikna
námskeið kostar 6.000 krónur.
Námskeiðin hefjast þann 8. júní og er kennt frá kl. 8:30 og til kl. 14:00 eða í 9 hópum yfir daginn. 8:30, 9:00, 9:45,
10:15, 11:00, 11:30, 12:30, 13:00 og 13:30
1. Námskeið 8. júní - 19. júní
2. Námskeið 22. júní - 3. júlí
3. Námskeið 6. júlí - 17. júlí
4. Námskeið 20. júlí - 31. Júlí
Skráning er hafin og tekið er á móti skráningum á milli 10 og 12 virka daga í síma 820-3156. Einnig má senda
skráningar og fyrirspurnir á gudrun@aegir.is. Nánari upplýsingar er að finna á www.agir.is