Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2015, Síða 24
8 Sumarnámskeið - Kynningarblað Vikublað 27.–28. maí 2015
Tónlistarhátíð unga fólksins
Það hefur hvetjandi áhrif á tónlistarnám að hitta annað ungt fólk sem hefur svipuð áhugamál
T
ónlistarhátíð unga fólksins
(TUF) er hátíð fyrir ungt tón-
listarfólk sem vill koma sér í
form fyrir veturinn, kynnast
öðru ungu fólki í músík og
upplifa nýjar hliðar á tónlistinni. Há-
tíðin stendur yfir dagana 6.–15. ágúst
og rennur seinasta helgin saman við
Cycle-listahátíðina í Kópavogi sem
stendur yfir dagana 13.–16. ágúst.
Þar gefst ungu tónlistarfólki tækifæri
að sjá og kynnast frábæru alþjóðlegu
listafólki úr tónlistar- og myndlistar-
heiminum. Umsóknarfrestur er til 1.
júní.
Að sögn Guðnýjar Þóru Guð-
mundsdóttur, stofnanda hátíðar-
innar, verða hljóðfæranámskeið í
boði fyrir nemendur sem eru að
ljúka miðprófi og upp í háskólapróf.
Strengjasveitarnámskeið er í boði fyr-
ir þá sem lokið hafa grunnprófi. Þátt-
takendum stendur til boða að taka
þátt í kammertónlist, námskeiði í
samtímatónlist, frjálsum spuna og
jóga. Auk þess að taka þátt í hinu ár-
lega fótboltamóti TUF og grillveislu.
Allir þátttakendur fá ókeypis aðgang
að öllum opinberum tónleikum í
Salnum á kvöldin með heimsfrægum
tónlistarmönnum auk sigurvegara
tónleikakeppni TUF 2015, Geirþrúði
Önnu Guðmundsdóttur sellóleikara.
„Það hefur gríðarlega hvetjandi
áhrif á tónlistarnám að hitta annað
ungt fólk sem hefur svipuð áhugamál,
kynnast og vinna saman að snúnum
verkefnum,“ segir Guðný. „Allir nem-
endur geta komið fram á tónleikum
í Salnum í Kópavogi en aðalmálið er
þó að taka þátt og upplifa eitthvað
nýtt. Við hvetjum sérstaklega unga
tónlistarnema utan af landi til að taka
þátt,“ segir Guðný.
Á Tónlistarhátíð unga fólksins
2015 verður einvala lið íslenskra og
erlendra kennara. Á fiðlu: Auður Haf-
steinsdóttir og Guðný Guðmunds-
dóttir, fyrrv. konsertmeistari. Á víólu:
Svava Bernharðsdóttir. Á selló: Pia
Eva Greiner Davis. Á píanó: Peter
Maté. Á klarínett: Arngunnur Árna-
dóttir. Á þverflautu: Áshildur Har-
aldsdóttir.
Strengjasveit: Helga Þórarins-
dóttir. Frjáls spuni: Gyða Valtýsdóttir.
Samtímatónlist: Ingi Garðar Erlends-
son og Þórunn Gréta Sigurðardóttir.
Jóga: Guðbjörg Sandholt.
Masterclassar: Prof. Vlad Dimulescu
píanó. Madalina Pasol píanó. Razvan
Dragnea píanó. Trio Pro Arte kamm-
ertónlist.
Nánari upplýsingar um Tónlist-
arhátíð unga fólksins má fá í síma, á
netfanginu musicfest@musicfest.is
og á heimasíðunni musicfest.is
Reynslusögur: Svava Bernharðs-
dóttir, víóluleikari og tónlistarkennari
„Dóttir mín sem nú stundar fram-
haldsnám í fiðlu við Juilliard tón-
listarháskólann í New York á fullum
skólastyrk varð fyrir svo varanlegum
áhrifum á Tónlistarhátíð unga fólks-
ins, þá fimmtán ára óharðnaður ung-
lingur, að hún setti allt á fullt með
fyrrgreindum afleiðingum. Hennar
saga er ekki einskök. TUF kem-
ur með heiminn að fótum íslenskra
ungmenna, opnar fyrir þeim heims-
menninguna, aðgengi að frábæru
tónlistarfólki og skapar góð kynni af
samnemendum sem koma víða að.“
Þórdís, 12 ára, sellónemandi í Tón-
skóla Sigursveins „TUF var mjög góð
upplifun hjá mér. Verkin sem við spil-
uðum voru mörg og frekar krefjandi
fyrir mig en fyrir vikið var rosalega
gaman þegar ég var búin að læra þau.
Ég hefði aldrei trúað því fyrsta daginn
á námskeiðinu að við myndum ná að
spila þetta allt svona vel í lokin á tón-
leikum. Ég finn það núna þegar ég er
að byrja í hljómsveitinni minni í tón-
listarskólanum hvað mér hefur far-
ið mikið fram í nótnalestri við það að
fara á námskeiðið. Það var rosa gam-
an að vera hjá Helgu Þórarinsdóttur
og ég lærði margt af henni. Einnig
fannst mér mjög gaman að taka þátt
í spunanum sem fékk mann til að
hugsa út fyrir rammann sem getur
komið sér mjög vel. Ég get hiklaust
mælt með TUF við aðra.“ n
Stærsti bátafloti í
sumarbúðum á Íslandi
Ástjörn einu sumarbúðirnar sem eru í þjóðgarði
S
umarbúðirnar Ástjörn í
Kelduhverfi eru fyrir drengi
og stúlkur á aldrinum 6–12
ára og 13–15 ára unglinga.
Börn koma í sumarbúðirn-
ar alls staðar að af landinu, en flest
koma frá Norðurlandi og úr Reykja-
vík. „Mörg börnin sem koma til okk-
ar eiga foreldra sem voru í sumar-
búðum hjá okkur þegar þeir voru
börn og það er mjög ánægjulegt því
það sýnir að foreldrarnir vilja veita
börnunum sínum það sem þau sjálf
upplifðu hér,“ segir Árni Hilmarsson
forstöðumaður. Flest börnin koma
í einn flokk, en sum dvelja lengur.
Flokkarnir eru 8 og 10 dagar, og ung-
lingavikan er 7 dagar.
Tjörnin og skógurinn umhverfis
sumarbúðirnar veita börnunum fjöl-
marga möguleika til leikja og úti-
veru. Má nefna t.d. knattspyrnu- og
körfuboltavöll, kvöldvökur, Bibl-
íutíma, föndur, alls kyns leiki og
keppnir í skóginum og víðar, íþrótta-
hús í næsta nágrenni, sund í tjörn-
inni á góðviðrisdögum, hestaleigu
og margt fleira. Landvörður kemur
og fræðir börnin um þjóðgarðinn.
Bátar eru af ýmsum gerðum: árabát-
ar, kajakar, kanóar, hjólabátar og
skútur. „Hjá okkur er stærsti bátafloti
í sumarbúðum á Íslandi, en við erum
með um 30 báta af öllum gerðum,
meira að segja svokallaða sökkvi-
báta!“ segir Árni. Bátarnir eru notað-
ir daglega ef veður leyfir.
Ástjörn hefur þá sérstöðu að það
eru einu sumarbúðirnar á Íslandi
sem eru í þjóðgarði, rétt hjá Ásbyrgi
í Kelduhverfi. Einnig má nefna að
þvottahús er á staðnum þar sem
allt er þvegið af börnunum og fara
þau því heim með hrein föt í tösk-
unni, mörgum foreldrum til mikill-
ar ánægju.
Sumarbúðirnar Ástjörn hafa
starfað síðan 1946 og hafa frá upp-
hafi verið reknar á kristilegum
grunni. Kristin gildi og viðhorf eru
mjög mikilvægur þáttur í starfinu.
Það er mjög algengt að starfs-
menn Ástjarnar og þeir sjálfboðalið-
ar sem að starfinu koma hafi sjálfir
dvalið sem börn í sumarbúðunum
og segir Árni ómetanlegt að eiga
svona gott bakland sem leggur starf-
inu lið.
Skráning er í síma 462-3980 og á
heimasíðunni astjorn.is. Netfang er
astjorn@astjorn.is n